Jólablaðið - 24.12.1928, Blaðsíða 2

Jólablaðið - 24.12.1928, Blaðsíða 2
2 JÓLABLAÐIÐ Nú hringja klukkur o£ knlla — kalla’ yfir alla jörð, áminna einn hvern o£ alla um auðmjúka þakkargjörð. Nú fer að nálgast nóttin, nóttin helgust af öllum, Miljónum hjarta hlýnar í hreysum og dýrum höllum. Samstiltir hugir hníga hljóðir að fótskör Hans, ofar stjörnunum stíga stefna til Meistarans. Hjörtu allra nú eru til ánægju og friðar gjörn. Kveikjum á kertunum okkar. — I kvöld eru allir börn. Það var aðfangadagur jóia. Dagurinn var geng- inn til hvilu í vestrinu og nóttin hafði dregið húm- tjöldin fyrir rekkju hans. Englarnir voru nýbúnir að tendra miljónir jólaljósa, stjörnurnar, um alla hina miklu, dimmbláu hvelvingu næturhiminsins og máninn sýndi ofurlitla rönd eins og glófægt blikandi Tyrkjasverð, Pað var ys á fólkinu í Mjóanesi, Pað var að búa sig til kirkjuferðar, til að hlýða helgum tíðum jólanna, og nú voru kirkjuklukkurnar farnar að kalla; ómur þeirra barst innan frá Stað út yfir fjörðinn í hljóðláíri kvöldkyrðinni og fylti loftið hátíðleik. Fólkið hafði orðið seint fyrir því mörgu var að sinna áður en helgin byrjaði, en nú var það loks- ins tilbúið. Jón bóndi, „höldurinn" á stórbýlinu og eigandi að mestum hluta jarðarinnar, gekk á undan niður að lendingunni því farið skildi sjóveg. Vinnu- fólkið fylgdi þögult og hátíðlegt á eftir, stássbúið svo sem föng voru til hjá hverjum einum, því hvenær skyldi skarta ef ekki á jóiunum. Og krakkarnir komu hiaupandi síðust, hniptu hvert í annað og skríktu ofurlítið, en þorðu ekki að hafa hátt, af því full- orðna fólkið var þögult og alvörugefið. „Ætli við getum fengið að vera með ykkur inn- eftir?“ sagði Pórður í hjáleigunni, sem kom ofan að lendingunni jafnt hinum. „Bátskriflið mitt er svo lekt, að það er ekki á flot setjandi“. „ Ja, jeg ætla nú ekki innyfir sjálfur", sagði Jón bóndi. „Einhver þarf að vera heima til að hirða um kýrnar. Verst að jeg held Hringur taki ykkur ekki öll, en einhver ráð verður að hafa. Pað getur þá tvent farið á selabyttunni. Kannskje þú viljir damla á byttunni Gunnar minn og einhver stúlkn- anna með þjer. Pá kemst alt hitt fólkið í Hring. Cunnar vinnumaður, knálegur piltur hálfþrítugur, leit til Puríðar. — Puríður var eldastúlka og hægri hönd húsfreyjunnar í Mjóanesi, og það vissu allir að Gunnar var að draga sig eftir henni, enda var Puriður myndar stúlka, kát og fjörug en talsvert stríðin. Fjekk Gunnar oft að kenna á því. Puríður gekk að byttunni. — „Ef Gunnar treystir sjer ekki að róa, þá er jeg viss um að hann Jói í hjáleigunni rær með mig inneftir“, sagði hún ertin. Jói var strax til taks. Hann var unglingur 19 ára, og þóttist vera maður fyrir sinn hatt. — Gunn- ar ýtti honum frá, og sló þegjandi skorðurnar undan byttunni. — Hitt fólkið hafði sett Hring fram á með- an og var komið á stað. — Peir Jón og Gunnar skutu byttuni á flot, Puriður settist afturí en Gunn- ar undir árar. Pað var vel hálf vika sjáfar inn og yfir fjörð- inn frá Mjóanesi að Stað og lá fjörðurinn opinn út til hafsins, — Gunnar rjeri þegjandi, en skotraði augunum við og við til Puríðar. Pað var ekki laust við að það sæti í honum þetta, að hún hafði gert sig líklega til að taka Jóa fram yfir hann, bæði nú og stundum oftats. Pegar þau voru komin skarat á leið, tók að hvessa á sunnan, — nöpur frostgola, höld og hryss- ingsleg. Gunnar sje þjett á árarnar, en altaf hvesti meir og það fór að íra á. — Er minst varði, brast önnur

x

Jólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1373

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.