Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 15.01.1994, Blaðsíða 13
Sveitarsjóðareikningar 1991
11
Hreyfingar á efnahagsliðum sveitarfélaga voru að mestu í
jafnvægi árið 1991. Hér á eftir verður fjallað sérstaklega um
tekjur, gjöld og efnahag sveitarfélaga, bæði með tilliti til
heildarumsvifa þeirra og umsvifa á hvern íbúa eftir stærð
sveitarfélaga á sama hátt og gert var hér að framan.
Tekjur sveitarfélaga 1991. Heildartekjur sveitarfélaga
námu um 9,4% af landsframleiðslu á árinu 1991 og breyttist
samsetning þeirra lrtils háttar samanborið við árið á undan.
Tekjurnar jukust um 5,1 % að raungildi miðað við breytingar
framfærsluvísitölu.
Skatttekjur voru sem fyrr meginuppistaðan í tekjuöflun
sveitarfélaganna eða sem nam um tveimur þriðju hlutum
hennar. Er það nokkru lægra hlutfall en hjá ríkissjóði. Beinir
skattar vega mun þyngra r tekjuöflun sveitarfélaga en
ríkissjóðs. Árið 1991 námu beinir skattar sveitarfélaga um
60% af skatttekjum þeirra og hefur það hlutfall verið mjög
stöðugt um árabil. Hlutdeild beinna skatta af skatttekjum
ríkissjóðs hefur verið um fimmtungur. Sveitarfélög hafa
einnig ýmsar eigin tekjur af starfsemi sinni sem og framlög
frá öðrum bæði til rekstrar og fjárfestingar, einkum frá
rikissjóði vegna hlutdeildar í kostnaði af sameiginlegri
starfsemi. Tekjur sveitarfélaganna og skipting þeirra er sýnd
í 5. yfirliti.
5. yfirlit. Tekjur sveitarfélaga 1990 og 1991
Table 5. Local government revenue 1990 and 1991
Millj. króna á verðlagi hvers árs Hlutfallstölur, %
Million ISK at current prices Percentage break-down
1990 1991 1990 1991
Heildartekjur 31.810 36.284 100,0 100,0 Total revenue
Skatttekjur 22.584 24.626 71,0 67,9 Tax revenue
Beinir skattar 13.702 15.024 43,1 41,4 Direct taxes
Utsvör 13.702 15.024 43,1 41,4 Municipal income tax
Óbeinir skattar 8.882 9.602 27,9 26,5 Indirect taxes
Fasteignaskattar 3.672 4.517 11,5 12,4 Real estate tax
Jöfnunarsjóður sv.fél. 817 943 2,6 2,6 Municipal Equalization Fund
Aðstöðugjöld 4.140 3.763 13,0 10,4 Business tax
Aðrir óbeinir skattar 253 379 0,8 1,0 Other
Þjónustutekjur 5.350 6.229 16,8 17,2 Service revenue
Vaxtatekjur 1.278 1.144 4,0 3,2 Interest
Tekjur til fjárfestingar 2.117 3.624 6,7 10,0 Capital transfers received
Ýmsar tekjur 481 661 1,5 1,8 Miscellaneous
Hlutdeild einstakra tekjustofna í heildartekjum sveitarfélaga
reyndist svipuð á árunum 1991 og 1990, en hún breyttist
talsvertfráárinu 1989tilársins 1990.Máttirekjaþábreytingu
til lagasetningar um breytta verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga sem tók gildi frá ársbyrjun 1990. Við skoðun á
hlutdeild einstakra tekjustofna sveitarfélaga í fyrri skýrslum
Hagstofunnar má sjá að samsetningin breyttist lítils háttar á
níunda áratugnum. Skýrast þær breytingar einkum af breyttri
verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, íhlutun ríkisins í
lögbundin framlög til Jöfnunarsjóðs s veitarfélaga og upptöku
staðgreiðslukerfis tekjuskatta einstaklinga í ársbyrjun 1988.
16. yfirliti erfrekari greining áþjónustutekjum sveitarfélaga
og innkomnum framlögum til fjárfestingar með hliðsjón af
því hvernig þessar tekjur hafa komið inn og gengið upp í
útgjöld sveitarfélaga til hinna ýmsu málaflokka.