Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1998, Qupperneq 15
Sveitarsjóðareikningar 1997
13
samanborið við 10,2% árið áður. Gjöldin jukust um 10,3
milljarða króna að nafnvirði milli ára eða um 18,6% að
raungildi miðað við vísitölu neysluverðs. Árið 1996 jukust
gjöldin einnig að raungildi eða um 10,4%. Aukningin bæði
árin skýrist að stórum hluta af því að sveitarfélög tóku við
rekstri grunnskóla frá 1. ágúst 1996. Árið 1997 jukust
rekstrargjöldsveitarfélagaum 17,5%aðraungildi,fjármagns-
kostnaður um 5,4% og fjárfesting um 25,1%.
Upplýsingar um gjöld sveitarfélaga miðast einkum við
skiptingu þeirra á málaflokka. Fram hefur komið að í sumum
tilvikum eru gjöldin að hluta endurgreidd af ríkissjóði vegna
þátttöku hans í stofn- eða rekstrarkostnaði tiltekinna verkefna.
Breytt verkaskipting ríkis og sveitarfélaga frá ársbyrjun
1990 einfaldaði öll fjárhagsleg samskipti þessara aðila og
dró verulega úr sameiginlegri fjármögnun verkefna. Verg
gjöld sveitarfélaga til hinna ýmsu málaflokka árin 1996 og
1997 eru sýnd í 6. yfírliti.
Fjárfrekustu málaflokkar sveitarfélaga á árinu 1997 voru
sem fyrr almannatryggingar og félagshjálp, gatnagerð,
fræðslumál, íþróttir og útvist. Alls runnu 70,8% af heildar-
gjöldum sveitarfélaganna til þessara viðfangsefna á árið
1997 samanborið við 66,5% árið 1996. Undanfarin ár hafa
þessi útgjöld numið tveimur þriðju hlutum af útgjöldum
sveitarfélaganna. Fíækkun hlutfallsins á árinu 1997 skýrist
einkum af flutningi grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga
síðla árs 1996 en með því jukust fr amlög þeirratil fræðslumála
verulega. Af einstökum málaflokkum vógu félagsþjónusta
og fræðslumál langþyngst í útgjöldum sveitarfélaga á árinu
1997 eðasemnemurtæpumhelmingi. 7.yfirlitsýnirskiptingu
þessara gjalda árin 1996 og 1997.
7. yfirlit. Framlög sveitarfélaga til félagsþjónustu og fræðslumála 1996-1997
Summary 7. Local government expenditure on social security and welfare and education 1996-1997
Milljónir króna á verðlagi hvers árs Hlutfallstölur, % 1
Million ISK at current prices Percentage ‘
1996 1997 1996 | 1997
Félagsþjónusta Social security and welfare
Gjöld umfram Outlays in excess of service
þjónustutekjur 7.923 8.519 15,9 14,2 revenue
Verg rekstrargjöld 10.088 10.994 20,3 18,3 Gross opreational outlays
Verg fjárfesting 1.162 1.378 2,3 2,3 Gross capital investment
Þjónustutekjur -3.327 -3.853 -6,7 -6,4 Service revenue
Gjöld samtals 11.250 12.372 22,6 20,6 Total expenditure
Sameiginlegur kostnaður 779 903 1,6 1,5 Administration
Félagshjálp 3.520 3.846 7,1 6,4 Social assistance
Dagvist bama 4.762 5.322 9,6 8,9 Children 's daycare
Dvalarheimili og íbúðir aldraðra 1.511 1.609 3,0 2,7 Retirement homes
Annað 678 691 1,3 1,2 Other
Fræðslumál Eduation
Gjöld umfram Outlays in excess of service
þjónustutekjur 10.257 15.307 20,6 25,5 revenue
Verg rekstrargjöld 8.805 14.060 17,7 23,4 Gross opreational outlays
Verg fjárfesting 2.414 3.021 4,9 5,0 Gross capital investment
Þjónustutekjur -962 -1.774 -1,9 -3,0 Service revenue
Gjöld samtals 11.219 17.081 22,6 28,5 Total expenditure
Yfirstjóm 418 667 0,8 1,1 Administration
Grunnskólar 8.328 14.039 16,8 23,4 Compulsory schools
Tónlistarskólar 1.085 1.139 2,2 1,9 Music schools
Skólaakstur 331 340 0,7 0,6 School buses
Annað 1.057 895 2,1 1,5 Other
' Hlutfall af heildargiöldum sveitarfélaga. Percentage of total local government expenditure.
Útgjöld vegna félagsþjónustu námu alls 12,4 milljörðum
kr. á árinu 1997 og jukust um 8,0% að raungildi frá árinu á
undan. Þrátt fyrir það lækkaði vægi þessa málaflokks úr
22,6% af heildargjöldum sveitarsjóða í 20,6% á árinu 1997.
Lækkunin skýrist af mikilli aukningu á heildargjöldum
sveitarfélaga vegna rekstrar þeirra á grunnskólanum allt árið
1997 samanborið við 5 mánaðareksturárið áður. Áhrifþessa
koma ffam í útgjöldum sveitarfélaga til fræðslumála en þau
jukust úr 11,2 milljörðum kr. árið 1996 í 17,1 milljarð kr. árið
1997 eða sem nemur 49,6% að raungildi. Hlutdeild fræðslu-
mála í útgjöldum sveitarfélaga jókst úr 22,6% árið 1996 í
28,5% árið 1997 og er þetta orðinn fjárfrekasti málaflokkur
sveitarfélaganna.
Gjöld sveitarfélaga vegna fræðslumála eru að stærstum
hlutavegnagrunnskólans. Þessigjöldnámu 14,0milljörðum
kr. á árinu 1997 samanborið við 8,3 milljarða kr. árið 1996.
Útgjöld vegna grunnskóla á árinu 1997 skiptust þannig að
rekstrargjöld námu 11,5 milljörðum kr. og fjárfesting 2,5