Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1998, Side 28
26
Sveitarsjóðareikningar 1997
2. Bókhaldslykill sveitarfélaga, úrvinnsla gagna og skýringar við töflur
Local government chart of accounts, processing of data and explanatory notes to the tables
Bókhaldslykill Sambands íslenskra sveitarfélaga
Grundvallarlykill hins samræmda bókhalds hefur 8 sæti.
Fyrstu tvö sætin sýna málaflokka og bókhaldseiningar
sveitarsjóðs. Þau eru bundin fyrir öll sveitarfélög. Næstu tvö
sæti eru notuð til sundurliðunar í deildir og starfsemisþætti.
Næstu þrjú sæti lykilsins (5.-7.) skipta útgjöldum og tekjum
eftir tegundum. Loks er síðasta sæti lykilsins notað til
flokkunar á tekjum og gjöldum á rekstur, gjaldfærða ijár-
festingu eða eignfærða fjárfestingu.
Ársreikningsform Hagstofu fylgir bókhaldslyklinum en
er ekki jafn sundurliðað. Það sýnir fyllstu sundurgreiningu á
fyrstu tvö sæti lykilsins og það síðasta. Hins vegar er ekki
beitt fyllstu sundurliðun á 3. og 4. sæti og formið gerir ekki
ráð fyrir greiningu á tegundir samkvæmt 5 -7. sæti lykilsins.
Eftirtöldum meginreglum er beitt í uppgjöri Hagstofunnar
um færslu bókhalds og reikningsskil sveitarfélaga.
Allar tekjur og gjöld sem tilheyra hverju uppgjörstímabili,
þ.e. almanaksárinu, erufærð áþvítímabili ántillitstilhvenær
greiðsla fer fram. Með öðrum orðum þá er um svonefndan
rekstrargrunn að ræða. Óinnheimtar tekjur færast til tekna á
rekstrarreikningi og til eignar í efnahagsreikningi. Á sama
hátt færast ógreidd gjöld til gjalda í rekstrarreikningi og til
skuldar í efnahagsreikningi.
í einu heildaryfirliti, rekstrar- og framkvæmdayfirliti, er
greint á milli rekstrar sveitarfélaga, gj aldfærðrar fjárfestingar
og eignfærðrar fjárfestingar þeirra. Á rekstur færast allar
tekjur og gjöld sem varðarekstur sveitarsjóðs. Á gjaldfterða
fjárfestingu færast útgjöld vegna framkvæmda og eigna-
breytinga, sem ekki eru eignfærð i efnahagsreikningi. Liðir
eins og götur, holræsi, leikvellir, skrúðgarðar, innan-
stokksmunir og áhöld teljast til gjaldfærðrar fjárfestingar. í
tekjuhlið er færð bein þátttaka annarra aðila í viðkomandi
gjaldfærðri fjárfestingu svo sem gatnagerðargjöld og þétt-
býlisvegafé. Til eignfœrðrarfjárfestingar teljast útgjöld til
kaupa á fasteignum, vinnuvélum, bílum og vélasamstæðum.
Þessar eignir eru færðar í eignahlið efnahagsreiknings. Bein
þátttaka annarra í eignfærðri fjárfestingu, t.d. framlög úr
ríkissj óði, eru færð í tekjuhlið eignfærðrar fj árfestingar. Ekki
er reiknað með árlegri afskrift húseigna eða annarra varanlegra
rekstrarfjármuna sveitarsjóðs, heldur er verðmæti eigna fært
i samræmi við mat eins og það er á hverjum tíma. Gert er ráð
fyrir að breyting á matsverði sé fcerð á endurmatsreikning
undir liðnum eigið fé í efnahagsreikningi.
Breytingar ársreikninga sveitarfélaga 1990.
í VIII. kafla sveitarstjómarlaga nr. 8/1986 er fjallað um
fjármál sveitarfélaga. Reglugerð samkvæmt 81. gr. laganna,
um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, var sett á árinu
1989. í I. kafla reglugerðarinnar em ákvæði um bókhald
sveitarfélaga. Þar segir m.a. að gefm skuli út handbók um
reikningshald sveitarfélaga og fyrirtækjaþeirraþar sem fram
komi leiðbeinandi reglur um flokkun og greiningu á tekjum
og gjöldum, eignum og skuldum sveitarfélaga á hverjum
tíma. S líkur bókhaldsly kill fy rir reikninga sveitarfélaga hefur
eins og áður sagði verið í notkun frá reikningsárinu 1979.
Setning reglugerðarinnar breytti litlu hvað þetta varðar og
breytingar á málaflokkum rekstrar- og framkvæmdayfirlits
vom óvemlegar.
I II. kafla reglugerðarinnar em ákvæði um ársreikninga
sveitarfélaga. í 9. gr. hennar segir að sveitarfélög, stofnanir
þeirra og fýrirtæki skuli beita eftirtöldum reikningsskila-
aðferðum:
a) Sértækum reikningsskilum fýrir sveitarsjóði og stofn-
anir sveitarfélaga sem reknar em á sambærilegum
gmndvelli.
b) Almennri reikningsskilaaðferð hjá fyrirtækjum í
atvinnurekstri.
Með þessu er kveðið á um að reikningar sveitarsjóða eigi
að fýlgja sértækri reikningsskilaaðferð en ekki almennri.
Þróuníþáátt var hafm áður og með upptöku bókhaldslykilsins
1979 var stigið stórt skref í þá átt, sérstaklega hvað varðar
færslu bókhaldsins (rekstrar- og framkvæmdayfirlit í stað
hreins rekstrarreiknings) en í uppgjöri var í efnahagsreikn-
ingnum áfram stillt upp samkvæmt almennri reikningsskila-
aðferð (áhersla á eiginfjárstöðu frekar en peningalega stöðu)
og einföldu sjóðsstreymi.
í handbók bókhaldsnefndar Sambands íslenskra sveitar-
félaga, sem gefm var út samkvæmt reglugerðinni (Handbók
um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga, nóvember 1991),
em sveitarfélög hvött til að endurskoða þær reikningskila-
aðferðir sem beitt hafði verið hj á sveitarsjóðum og fýrirtækjum
þeirra fram til ársins 1990. Til leiðbeiningar við ákvörðun
um val á reikningsskilaaðferð er meðal annars bent á að rétt
sé að hafa í huga hvort rekstraryfirliti sé ætlað að gefa glögga
mynd af hagnaði eða tapi á viðkomandi tímabili og einnig
hvort eiginfj árstaða í efnahagsreikningi eigi að vera í samræmi
við almennt viðurkenndar reikningsskilaaðferðir fyrirtækja
í atvinnurekstri.
Bókhaldsnefndin gefur út eftirfarandi aðalreglur varðandi
reikningsskilaaðferðir hjá sveitarsjóði og algengustu fyrir-
tækjum sveitarfélaga (Handbók, kafli 5.1 bls. 1):
Sveitarsjóður og fyrirtæki Reikningsskila-
aðferð sbr. 9. gr.
S veitarsj óður.................. sértæk
Hafnarsjóður..................... sértæk
Vatnsveita....................... sértæk
Rafveita.......................................... almenn
Hitaveita......................................... almenn
Félagslegar ibúðir............... sértæk
Strætisvagnar..................................... almenn
Félagsheimili.................... sértæk
Framkvæmdasjóður.................................. almenn
Lífeyrissjóður - eftirlaunasjóður... almenn
Ljóst er að í ársreikningi sveitarsjóðs er rekstraryfirliti
ekki ætlað að gefa glögga mynd af hagnaði eða tapi á
viðkomandi tímabili heldur ráðstöfun tekna hans til hinna
ýmsu verkefna samanborið við fjárhagsáætlun. í efnahags-
reikningi sveitarsjóða er dregin fram peningaleg staða sem