Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1998, Page 29

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1998, Page 29
Sveitarsjóðareikningar 1997 27 niðurstöðutala en ekki er lagt upp úr að sýna eiginfjárstöðu í samræmi við almennar reikningsskilaaðferðir atvinnufyrir- tækja. Sveitarsjóðum ber því að beita sértækri reiknings- skilaaðferð sbr. a. lið 9. gr. reglugerðar nr. 280/1989. Þar skipta eftirfarandi atriði mestu máli: a. Skatttekjur, ráðstöfun þeirra og fjármagnshreyfmgar með samanburði við fjárhagsáætlun. b. Peningaleg staða í upphafi og við lok tímabils. c. Lykiltölur. d. Skýringar. Eftirfarandi yfirlit sýnir helstu frávik í reikningsyfirlitum sem byggjast á almennum reikningsskilum annars vegar og þar sem beitt er sértækri reikningsskilaaðferð hins vegar. Sveitarfélögin hafa smám saman verið að þróa uppgjörsað- ferðir sínar í átt til sértækra reikningsskila og kemur hér einnig fram hvenær helstu breytingar áttu sér stað. Almenn aðferð Rekstrarreikningur „Sjóðstreymi“ (hét einnig fjármagnsyfirlit en var í raun sjóðstreymi) Efnahagsreikningur (eiginfjárstaða) Sértcek aðferð Rekstrar- og ffamkvæmdayfírlit Fjármagnsyfirlit Hvenær breytt Með ársreikningi 1979 Með ársreikningi 1990 (nýtt fjármagnsyfírlit) Efnahagsreikningur (peningaleg staða) Raunbreyting peningalegrar stöðu Lykiltölur Með ársreikningi 1990 Með ársreikningi 1990 Með ársreikningi 1990 Uppsetning rekstrar- og framkvæmdayfirlits var svipuð bæði árin 1989 og 1990. Þó er rétt að nefna tvær breytingar. Arið 1990 voru allar skatttekjur færðar undir liðinn sam- eiginlegar tekjur en ýmsar tekjur, sem voru áður færðar á þennan lið, bókfærast nú á viðkomandi málaflokka. Fram til ársins 1989 voru færslur vaxta í reikningsskilum sveitarfél- aga mismunandi og hefur það gert samanburð á reikningum þeirra erfiðari. Frá 1990 er sveitarfélögum gert að færa allar vaxtatekjur, vaxtagjöld og verðbætur í málaflokk 28 og þar er einnig gert ráð fyrir möguleika á færslum reiknaðra flármagnsliða. Meginmarkmið efnahagsreiknings sveitarsjóðs og þeirra fyrirtækja og stofnana sveitarfélaga sem beita sértækum reikningsskilaaðferðum er að draga fram peningalega stöðu þeirra í árslok. Peningaleg staða er í raun sú fjárhæð í efna- hagsreikningi sveitarsjóðs semmestumáli skiptir. Fastafjár- munir eru sýndir ósundurliðaðir í hinni nýju uppsetningu efnahagsreikningsins. Sundurliðun þeirra kemur fram í sér- stöku yfirliti sem Hagstofan óskar eftir frá sveitarfélögunum. Gert er ráð fyrir að ljárfesting sveitarfélaga verði í auknum mæli gjaldfærð á komandi árum. Ástæðan er sú að með nákvæmri skilgreiningu á peningalegri stöðu skiptir færsla annarra eigna í efnahagsreikningi sveitarsjóðs minnamáli en áður. Einnig er mikilvægt ákvæði í reglugerð nr. 280/1989 þess efnis að sveitarfélög eigi að halda nákvæma eignaskrá. Gert er ráð fyrir að í efnahagsreikningi komi fram tilvísun í skýringar á eignum og skuldbindingum utan efnahags- reiknings. Fram til ársins 1989 miðaði úrvinnsla Hagstofu við að „hrein eign eigin fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag" færðist sem sjálfstæður liður í eignahlið efnahagsreiknings sveitarsjóðs. Frá ársbyrjun 1990 var þessi liður felldur úr efnahagsreikningnum. Frá árinu 1990 er raunbreyting á peningalegri stöðu frá upphaíí reikningsárs til árslokamiðað við vísitölu byggingar- kostnaðar reiknuð út á sérstöku yfirliti í reikningum sveitar- sjóða. Breytingu á peningalegri stöðu má stemma af við heildamiðurstöður á rekstrar- og framkvæmdayfirliti þegar sú fjárhæð hefur verið færð til verðlags í árslok. Hinu nýj a fj ármagnsy firliti er fyrst og ff emst ætlað að sýna ráðstöfun á skatttekjum sveitarfélagsins og aðrar peninga- legar hreyfmgar á því tímabili sem það tekur til. Úrvinnsla ársreikninga 1997. Bókhaldslykill sveitarfélaga gerir meðal annars ráð fyrir að útgjöld til málaflokka séu brúttófærð. Við það er einnig miðað á eyðublöðum Hagstofu. I þessari skýrslu em sýndar þrjár megintöflur fyrir fjármál sveitarfélaga á árinu 1997 og ein tafla fyrir fjármál fyrirtækja sveitarfélaga. Tafla 1 sýnir úrvinnslu á reikningum sveitarfélaga eftir kjördæmum og öllum sveitarfélögum. Taflan sýnir megin- stærðir á rekstrar- og framkvœmdayfirliti og á efnahags- reikningi sveitarfélaga í milljónum króna. Tafla 2 sýnir fjárhæðir í töflu 1 í krónum á hvem íbúa sveitarfélaga eftir sömu skiptingu á kj ördæmi og sveitarfélög. Þessi tafla einfaldar mjög innbyrðis samanburð milli sveitar- félaga. Tafla 3 sýnir fármagnsyfirlit, þar sem fram kemur ráð- stöfun skatttekna sveitarfélaganna og aðrar peningalegar hreyfingar á árinu. Tafla 4 sýnir sundurliðun á rekstrartekjum, rekstrar- gjöldum, eignum og skuldum vatnsveitna, rafveitna, hita- veitna, hafnarsj óða, félagslegra íbúða og fr amkvæmdarsj óða sveitarfélaga sem rekin eru sem fyrirtæki með sjálfstœðan fjárhag. Loks eru öll önnur slík fyrirtæki sveitarfélaga sýnd í samtölu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.