Gistiskýrslur - 01.07.1998, Blaðsíða 9
Inngangur
Introduction
1. Gistináttatalning Hagstofu íslands
1. Overnight stays statistics
Gistiskýrslur 1997 er fímmta ritið sem Hagstofan gefiir út í
ritröðinni Gistiskýrslur. í inngangi þessa rits eru yfirlitstöflur
allt affur til ársins 1985 ásamt skýringartexta og myndum.
Töfluhluti ritsins nærtil áranna 1995-1997. í töfluhlutanum
er talnaefnið sundurliðað eftir landsvæðum, ríkisfangi og
tímabilum. Upplýsingaöflun Hagstofunnar fer þannig ífarn
að gististöðum og öllum þeim er selja gistiþjónustu eru send
skýrslueyðublöð til útfyllingar en á þau skal færa fjölda gesta
og gistinátta sundurliðaðan eftir ríkisfangi. Ríkisföngin eru
auk Islands 14 Evrópulönd, þaðan sem flestir ferðamenn
koma, Bandaríkin, Kanada og Japan. Aðrir gestir teljast sem
aðrir Evrópubúar eða frá öðrum löndum. Fram til ársins
1995 var einungis safnað tölum um fjölda gistinátta en í júní
árið 1995 var auk þess byrj að að safna upplýsingum um fjölda
næturgesta. Byrjunarörðugleikar háðu talningu gestakoma
framan af og því er ekki hægt að birta tölur um þær fyrr en
fráárinu 1996.
Réttur Hagstofu til að kreija seljendur gistiþjónustu
upplýsinga er byggður á 10. gr. laga um veitinga- og gististaði
nr. 67/1985. Þar segir: „Rekstraraðilar, erundir þessi lög falla,
skulu veita stjómvöldum upplýsingar skv. nánari fyrir-mælum
Hagstofú Islands. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar
til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni almennt og/
eða rekstri veitinga- og gistihúsa sérstaklega sem atvinnu-
greinar." í samræmi við þessa lagagrein og venjur skuldbindur
Hagstofan sig til að fara með alla vitneskju um starfsemi
einstakra gististaða sem trúnaðarmál og lætur aðeins í té
upplýsingar í töflum eins og fram kemur í þessu riti.
Skýrslueyðublöð þau sem Hagstofan sendir seljendum
gistiþjónustutil útfyllingaremþrjú. Tvö þeirra em svokölluð
hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir gistinætur.
Þessi blöð em einungis ætluð til notkunar á gististöðunum
og er hægt að fylla þau út eftir hvem dag. Þriðja eyðublaðið
„Gistiskýrsla til Hagstofú“ er eina blaðið sem senda skal
Hagstofúnni. A það skal færa samtölur mánaðarins af hjálpar-
blöðunum ásamt upplýsingum um gistirými. Eyðublöðin
em einnig til í tölvutæku formi fyrir töflureikni (Excel).
2. Flokkun gististaða
2. Classification of tourist accommodation
Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. í úrvinnslu Hag-
stofúnnar er henni skipt í sex meginflokka.
Fyrsti flokkur er hótel oggistiheimili. Nánar tiltekið hótel,
hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, Edduhótel,
önnur sumarhótel og sumargistiheimili. I þessum flokki em
öll hótel og gistiheimili sem em með sérstaka gestamóttöku
og bjóða upp á lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á
herbergjum og salemum. Auk þess em í þessum flokki
gistiheimili þar sem gistirými er 16 rúm eða fleiri og/eða 8
herbergi eða fleiri. Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr.
regiugerðar nr. 288/1987 um veitinga- og gististaði. Þessi
flokkur gistiþjónustu tekur til stærsta hluta allrar gistiþjónustu
í landinu. Tveir þriðju hlutar gistinátta sem gistináttatalning
Hagstofúnnar nær til em á gististöðum í þessum flokki. Arið
1997 var fyrst byrjað að flokka þá gististaði sérstaklega sem
uppfylla skilyrði um aðbúnað og þjónustu til þess að geta
kallast hótel. A hóteli er gestamóttaka opin allan sólar-
hringinn og morgunverður framreiddur. Fullbúin snyrting
skal vera á a.m.k. 75% herbergja. I þessu riti em birtar sér-
stakar töflur og yfirlit um gistirými og fjölda gistinátta á
hótelum árið 1997.
Annar flokkur gististaða er heimagististaðir. Fram til ársins
1995 var þessi flokkur kallaður bœndagististaðir en var þá
skipt í annars vegar í hótel eða gistiheimili og hins vegar
heimagististaði. Fyrrum bændagististaðir, sem vom árið 1995
með gistirými við áðumefnd viðmiðunarmörk eða stærra,
flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir minni sem heima-
gististaðir. Til heimagististaða telst öll gisting á einkaheimilum
fólks hvort sem er í kaupstöðum eða á sveitabýlum. Bændur
era ósjaldan með eitt til tvö sumarhús að auki og þar sem erfitt
hefúr reynst að fá þessa gistingu nákvæmlega sundurliðaða
ífá hinni hefðbundnu heimagistingu er sú gisting talin með í
heimagistingunni. Leigi bændur sumarhús sín út til stéttar-
eða starfsmannafélaga er sú gisting ekki meðtalin hér.
Þriðji flokkur gististaða er sumarhús/smáhýsi. Þá er átt
við sumarhúsa- eða smáhýsahverfi með a.m.k þremur húsum.
Umfang sumarhúsagistingar er mun umfangsmeiri en heima-
gistingar í þeim tilvikum þegar þessar tvær tegundir gistingar
em reknar samhliða. Einungis er átt við sumarhús sem leigð
eru út í hagnaðarskyni, ekki t.d. sumarhús stéttar- og starfs-
mannafélaga.
Fjórði flokkur gististaða er farfuglaheimili. Farfugla-
heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda
en gestir þurfa að hafa með sér sængurfót eða leigja þau á
staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. Öll
farfúglaheimili era í Bandalagi íslenskra farfúgla sem er aðili
að Alþjóðasamtökum farfugla (IYHF).
Fimmti flokkur gististaða nær til svefnpokagististaða. Þeir
geta verið sumarhótel, félagsheimili og skólar sem selja
gistingu í svefnpokum á gólfdýnum í stómm vistarverum.
Ymsir gististaðir bjóða upp á svefnpokagistingu í rúmum en
sú gisting telst með gistingu í uppbúnum rúmum.
Sjötti flokkur gististaða em tjaldsvœði og skálar. Til hans
teljast öll tjaldsvæði á landinu og gistiskálar á miðhálendi þar
sem gjald er tekið. Þessum flokki er skipt í tjaldsvæði í dreifbýli
og þéttbýli, tjaldsvæði á hálendi og skála á hálendi. Hálendið
skiptist síðan í þrjú svæði, norðurhálendi, austurhálendi og
suðurhálendi. Skipting hálendisins er í samræmi við tillögu
Landmótunar h/f sem vinnur að skipulagi hálendisins.
Loks má nefna sjöundu tegund gististaða, orlofshús fyrir-
tœkja og félagasamtaka. Ekki hefur reynst unnt að afla
upplýsinga um nýtingu í þessum flokki en hjá Fasteignamati
ríkisins fékkst þó uppgefinn fjöldi og stærð drlofshúsa sem
ekki em í einkaeign. í yfirlitstöflum 21 og 22 kemur fr am fj öldi