Gistiskýrslur - 01.07.1998, Page 9

Gistiskýrslur - 01.07.1998, Page 9
Inngangur Introduction 1. Gistináttatalning Hagstofu íslands 1. Overnight stays statistics Gistiskýrslur 1997 er fímmta ritið sem Hagstofan gefiir út í ritröðinni Gistiskýrslur. í inngangi þessa rits eru yfirlitstöflur allt affur til ársins 1985 ásamt skýringartexta og myndum. Töfluhluti ritsins nærtil áranna 1995-1997. í töfluhlutanum er talnaefnið sundurliðað eftir landsvæðum, ríkisfangi og tímabilum. Upplýsingaöflun Hagstofunnar fer þannig ífarn að gististöðum og öllum þeim er selja gistiþjónustu eru send skýrslueyðublöð til útfyllingar en á þau skal færa fjölda gesta og gistinátta sundurliðaðan eftir ríkisfangi. Ríkisföngin eru auk Islands 14 Evrópulönd, þaðan sem flestir ferðamenn koma, Bandaríkin, Kanada og Japan. Aðrir gestir teljast sem aðrir Evrópubúar eða frá öðrum löndum. Fram til ársins 1995 var einungis safnað tölum um fjölda gistinátta en í júní árið 1995 var auk þess byrj að að safna upplýsingum um fjölda næturgesta. Byrjunarörðugleikar háðu talningu gestakoma framan af og því er ekki hægt að birta tölur um þær fyrr en fráárinu 1996. Réttur Hagstofu til að kreija seljendur gistiþjónustu upplýsinga er byggður á 10. gr. laga um veitinga- og gististaði nr. 67/1985. Þar segir: „Rekstraraðilar, erundir þessi lög falla, skulu veita stjómvöldum upplýsingar skv. nánari fyrir-mælum Hagstofú Islands. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni almennt og/ eða rekstri veitinga- og gistihúsa sérstaklega sem atvinnu- greinar." í samræmi við þessa lagagrein og venjur skuldbindur Hagstofan sig til að fara með alla vitneskju um starfsemi einstakra gististaða sem trúnaðarmál og lætur aðeins í té upplýsingar í töflum eins og fram kemur í þessu riti. Skýrslueyðublöð þau sem Hagstofan sendir seljendum gistiþjónustutil útfyllingaremþrjú. Tvö þeirra em svokölluð hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir gistinætur. Þessi blöð em einungis ætluð til notkunar á gististöðunum og er hægt að fylla þau út eftir hvem dag. Þriðja eyðublaðið „Gistiskýrsla til Hagstofú“ er eina blaðið sem senda skal Hagstofúnni. A það skal færa samtölur mánaðarins af hjálpar- blöðunum ásamt upplýsingum um gistirými. Eyðublöðin em einnig til í tölvutæku formi fyrir töflureikni (Excel). 2. Flokkun gististaða 2. Classification of tourist accommodation Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. í úrvinnslu Hag- stofúnnar er henni skipt í sex meginflokka. Fyrsti flokkur er hótel oggistiheimili. Nánar tiltekið hótel, hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, Edduhótel, önnur sumarhótel og sumargistiheimili. I þessum flokki em öll hótel og gistiheimili sem em með sérstaka gestamóttöku og bjóða upp á lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á herbergjum og salemum. Auk þess em í þessum flokki gistiheimili þar sem gistirými er 16 rúm eða fleiri og/eða 8 herbergi eða fleiri. Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr. regiugerðar nr. 288/1987 um veitinga- og gististaði. Þessi flokkur gistiþjónustu tekur til stærsta hluta allrar gistiþjónustu í landinu. Tveir þriðju hlutar gistinátta sem gistináttatalning Hagstofúnnar nær til em á gististöðum í þessum flokki. Arið 1997 var fyrst byrjað að flokka þá gististaði sérstaklega sem uppfylla skilyrði um aðbúnað og þjónustu til þess að geta kallast hótel. A hóteli er gestamóttaka opin allan sólar- hringinn og morgunverður framreiddur. Fullbúin snyrting skal vera á a.m.k. 75% herbergja. I þessu riti em birtar sér- stakar töflur og yfirlit um gistirými og fjölda gistinátta á hótelum árið 1997. Annar flokkur gististaða er heimagististaðir. Fram til ársins 1995 var þessi flokkur kallaður bœndagististaðir en var þá skipt í annars vegar í hótel eða gistiheimili og hins vegar heimagististaði. Fyrrum bændagististaðir, sem vom árið 1995 með gistirými við áðumefnd viðmiðunarmörk eða stærra, flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir minni sem heima- gististaðir. Til heimagististaða telst öll gisting á einkaheimilum fólks hvort sem er í kaupstöðum eða á sveitabýlum. Bændur era ósjaldan með eitt til tvö sumarhús að auki og þar sem erfitt hefúr reynst að fá þessa gistingu nákvæmlega sundurliðaða ífá hinni hefðbundnu heimagistingu er sú gisting talin með í heimagistingunni. Leigi bændur sumarhús sín út til stéttar- eða starfsmannafélaga er sú gisting ekki meðtalin hér. Þriðji flokkur gististaða er sumarhús/smáhýsi. Þá er átt við sumarhúsa- eða smáhýsahverfi með a.m.k þremur húsum. Umfang sumarhúsagistingar er mun umfangsmeiri en heima- gistingar í þeim tilvikum þegar þessar tvær tegundir gistingar em reknar samhliða. Einungis er átt við sumarhús sem leigð eru út í hagnaðarskyni, ekki t.d. sumarhús stéttar- og starfs- mannafélaga. Fjórði flokkur gististaða er farfuglaheimili. Farfugla- heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda en gestir þurfa að hafa með sér sængurfót eða leigja þau á staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. Öll farfúglaheimili era í Bandalagi íslenskra farfúgla sem er aðili að Alþjóðasamtökum farfugla (IYHF). Fimmti flokkur gististaða nær til svefnpokagististaða. Þeir geta verið sumarhótel, félagsheimili og skólar sem selja gistingu í svefnpokum á gólfdýnum í stómm vistarverum. Ymsir gististaðir bjóða upp á svefnpokagistingu í rúmum en sú gisting telst með gistingu í uppbúnum rúmum. Sjötti flokkur gististaða em tjaldsvœði og skálar. Til hans teljast öll tjaldsvæði á landinu og gistiskálar á miðhálendi þar sem gjald er tekið. Þessum flokki er skipt í tjaldsvæði í dreifbýli og þéttbýli, tjaldsvæði á hálendi og skála á hálendi. Hálendið skiptist síðan í þrjú svæði, norðurhálendi, austurhálendi og suðurhálendi. Skipting hálendisins er í samræmi við tillögu Landmótunar h/f sem vinnur að skipulagi hálendisins. Loks má nefna sjöundu tegund gististaða, orlofshús fyrir- tœkja og félagasamtaka. Ekki hefur reynst unnt að afla upplýsinga um nýtingu í þessum flokki en hjá Fasteignamati ríkisins fékkst þó uppgefinn fjöldi og stærð drlofshúsa sem ekki em í einkaeign. í yfirlitstöflum 21 og 22 kemur fr am fj öldi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Gistiskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.