Gistiskýrslur - 01.07.2002, Blaðsíða 9

Gistiskýrslur - 01.07.2002, Blaðsíða 9
Inngangur Introduction 1. Gistináttatalning Hagstofu íslands 1. Overnight stays statistics Gistiskýrslur 2001 er níunda ritið sem Hagstofan gefur út í ritröðinni Gistiskýrslur. I inngangi ritsins eru yfirlitstöflur ásamt skýringartexta og myndum. Yfirlitin ná sum hver aftur til ársins 1985 en þá hófst gistináttatalning Hagstofunnar. Onnur ná skemur aftur í tímann eða tvö til fjögur ár. I töflu- hlutanum er talnaefnið sundurliðað eftir landsvæðum, ríkis- fangi og tímabilum. Upplýsingaöflun Hagstofunnar fer þannig fram að gististöðum og öllum þeim sem selja gisti- þjónustu eru send skýrslueyðublöð til útfyllingar en á þau skal færa fjölda gesta og gistinátta sundurliðaðan eftir ríkisfangi. Ríkisföngin eru auk Islands 14 Evrópulönd, þaðan sem flestir ferðamenn koma, Bandaríkin, Kanada og Japan. Aðrir gestir teljast aðrir Evrópubúar eða íbúar annarra landa. Fram til ársins 1995 var einungis safnað tölum um fjölda gistinátta en í júní árið 1995 var auk þess byrjað að safna upplýsingum um fjölda næturgesta. Byrjunarörðug- leikar háðu talningu gestakoma framan af og því er ekki hægt að birta tölur um þær fyrr en frá og með árinu 1996. Þann 25. mars 2001 hófst þátttaka Islands í samstarfi með fjórtán öðrum Evrópuríkjum sem kennt er við Schengen. Frá þeim degi var horfið frá landamæraeftirliti innan svæðis- ins og útlendingaeftirlitið hætti að safna upplýsingum um komur ferðamanna til Islands skipt eftir ríkisfangi. Þar af leiðandi falla niður þær töflur og yfirlit sem áður birtust í þessu riti um fjölda erlendra ferðamanna til landsins. Réttur Hagstofu til að krefja seljendur gistiþjónustu upp- lýsinga er byggður á 10. gr. laga um veitinga- og gististaði nr. 67/1985. Þar segir: „Rekstraraðilar, er undir þessi lög falla, skulu veita stjómvöldum upplýsingar skv. nánari fyrirmælum Hagstofu Islands. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni almennt og/eða rekstri veitinga- og gistíhúsa sérstaklega sem atvinnu- greinar." í samræmi við þessa lagagrein og venjur skuldbindur Hagstofan sig til að fara með alla vitneskju um starfsemi einstakra gististaða sem trúnaðarmál og lætur aðeins í té upplýsingar í töflum eins og fram kemur í þessu riti. Skýrslueyðublöð þau sem Hagstofan sendir seljendum gistiþjónustu til útfyllingar eru þrjú. Tvö þeirra eru svo- kölluð hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir gistinætur. Þessi blöð em einungis ætluð til notkunar á gisti- stöðunum og er hægt að fylla þau út eftir hvern dag. Þriðja eyðublaðið „Gistiskýrsla til Hagstofu" er eina blaðið sem senda skal Hagstofunni. Á það skal færa samtölur mánaðar- ins af hjálparblöðunum ásamt upplýsingum um gisti- rými. Eyðublöðin eru einnig til í tölvutæku forrni fyrir töflu- reikni (Excel). 2. Flokkun gististaða 2. Classification of tourist accommodation Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. I úrvinnslu Hag- stofunnar er henni skipt í sex meginflokka. Fyrsti flokkur er hótel og gistiheimili. Nánar tiltekið hótel, hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, sumarhótel og sumargistiheimili. I þessum flokki em öll hótel og gistiheimili sem eru með sérstaka gestamóttöku og bjóða upp á lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á herbergjum og salernum. Auk þess em í þessum flokki gistiheimili þar sem gistirými er 16 rúm eða fleiri og/eða 8 herbergi eða fleiri. Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr. reglugerðar nr. 288/1987 um veitinga- og gististaði. Þessi flokkur gistiþjónustu tekur til mest allrar gistiþjónustu í landinu. Tveir þriðju hlutar gistinátta sem gistináttatalning Hagstofunnar nær til eru á gististöðum í þessum flokki. Árið 1997 var fyrst byrjað að flokka þá gististaði sérstaklega sem uppfylla skilyrði um aðbúnað og þjónustu til þess að geta kallast hótel. Á hóteli er gestamóttaka opin allan sólarhringinn og morgunverður framreiddur. Fullbúin snyrting skal vera á a.m.k. 75% herbergja. Annar flokkur gististaða er orlofshúsabyggðir. Þá er átt við sumarhúsa- eða smáhýsahverfi með a.m.k. þremur húsum. Umfang orlofshúsagistingar er mun meira en heima- gistingar í þeim tilvikum þegar þessar tvær tegundir gisting- ar eru reknar samhliða. Einungis er átt við sumarhús sem leigð eru út í hagnaðarskyni, ekki t.d. sumarhús stéttar- og starfsmannafélaga. Hús innan orlofshúsabyggða sem leigð eru út til stéttar- og starfsmannafélaga eru ekki heldur með- talin. Þriðji flokkur gististaðaer heimagististaðir. Fram til ársins 1995 var hluti þessa flokks kallaður bœndagististaðir en var þá skipt í annars vegar hótel eða gistiheimili og hins vegar heimagistístaði. Fyrrum bændagistístaðir, sem voru árið 1995 með gistirými við áðurnefnd viðmiðunarmörk eða stærra, flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir minni sem heimagististaðir. Til heimagististaða telst öll gisting á einka- heimilum hvort sem er í kaupstöðum eða á sveitabýlum. Bændur eru ósjaldan með eitt til tvö sumarhús að auki og þar sem erfitt hefur reynst að fá þessa gistingu nákvæmlega sundurliðaða frá hinni hefðbundnu heimagistingu er sú gisting talin með heimagistingunni. Leigi bændur sumarhús sín út til stéttar- eða starfsmannafélaga er sú gisting ekki meðtalin hér. Fjórði flokkur gististaða er farfuglaheimili. Farfugla- heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda en gestir þurfa að hafa með sér sængurföt eða leigja þau á staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. Öll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Gistiskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.