Framtíðin - 23.07.1929, Blaðsíða 3

Framtíðin - 23.07.1929, Blaðsíða 3
♦ f R AMTIÐIN Eg vildi--------- Eg vildi að þig snerti minn ástareldur, sem allri fegurstu hrifning veldur, því alt mitt líf er hans hjarta bál, hann brennur hreinast í minni sál. Eg vildi að þú findir hita míns hjarta, þá, hyrfl angistar skýið svarta, er ógnandi hylur Eden minn, sem er hinn draumværi faðmur þinn, Eg vildi að sálirnar saman rynnu og saman eldarnir lífsins brynnu — við yrðum saman til enda þá, sem er mín ljúfasta hjartans þrá. tekið til greina — er hulið í at- hugaleysi og gleymsku — og er því sjaldan nefnt á nafn. Málið flyt- ur ekki liugmyndir likamlega. Slíkt er heldur ekki unt í nokkrum sál- fræðilegum skilningi. Öll tungumál eru tákn venjulegrar reynslu. Og þessi reynsla grundvallar þýðingu alls sem rætt er og ritað. Raunar sjáum vér ekki jörðina fara hring- ferð um sólina á hverju ári. En at- huganir á vissum tímum ársins gera skynjun á þessu mögulega. Skynjun og útskýring þess, sem athugað er, grundvallar þekkingu alla. Ef til vill eru þetta sjálfséð eða óefuð sannindi. En þó virðist naum- ast svo vera. Og eg verð að leggja áherslu á takmarkanir þekkingar- innar og á útbreiðslu hennar. Sam- andregið er það svona: 1. Öll vor venjulega þekking er grundvölluð á persónulegri reynslu, andverkun á örvun hinnar ytri tilveru. — 2. Engin leiðsla, sending eða flutning- , ur þessa er mögulegur líkamlega. ----------- Til gamans. Læknirinn: »Hvaða áhrif hefir svefnlyfið á yður?« Magnús: »Ágæt! Pví miður gleymi eg vanalega að nota það, og sofna svo sérlega vært. En svo bregst það naumast, að konan mín vekur mig um miðja nótt, til þess að vita livort eg hafi tekið meðalið. — Áhrifin eru, eins og eg segi, fyrir- tak!« Móðir við lítinn dreng: »Tefðu nú ekki meira fyrir mér. Farðu inn í norðurstofuna og leiktu þér«. Drengurinn: »En þá er eg svo aleinn«. \ Móðir: »í>að ertu ekki. Guð er hjá þér«. v Drengurinn gerir eins og hún segir, en kemur aftur eftir dálitla stund og segir: »Okkur guði leiðist svo fjarska mikið«. Sveinn: »Pú varst upp í sveit á sunnudaginn«. Jósef: »Jú, eg heimsótti séra Jakob frænda minn. »Sveinn: »Pið hafið náttúrlega verið í andlegum hugleiðingum all- an daginn«. Jósef: »Já, ekki vantaði það«. Sveinn: »Og lásuð biblíuna«. Jósef: »Ekki bar nú á því. Við átum fyrst steikta gæs upp til agna. Svo drukkum við portvín, svo toddy og loks doggbrandið frá honum Guðbrandi. Frænda minn var nú farið að syfja. »Pað er víst mál komið að fara að blessa«, sagði hann, hallaði sér útaf í legu- bekknum, lokaði hægt augunum og var innan stundar fariun að skera hrúta«. Faðirinn við biðil dóttur sinnar: »Haldið þér, að þér getið uppfylt allar óskir hennar og látið henni líða svo vel, að hún hafi yfir engu að kvarta?« Biðillinn, ástfanginn: »Já, auð- vitað — enginn efi á því«. Faðirinn: »Pá tekst yður að temja hana betur og hafa meiri hemil á henni en mér hefir tekist«. Móðirin við Friðrik litla: »Pví sagðir þú mér ekki, að barnsfóstr- an braut flöskuna, fyrst þú sást það?« Friðrik litli: »Hún mútaði mér«. Móðirin: »Hvernig?« Friðrik litli: »Hún lofaði mér, að luín skyldi ekki þvo mér í heila viku, ef eg þegði«. Frú A.: »Nei, en hvað þetta er falleg blúnda — hvað hún er sæt!« Frú B.: »Hún er frá honum Iíoff- ner, og ekki er hann síður sætur«. Frú A.: »So-o! Hafið þér kann- ske smakkað á honum?« Frú B.: »En hafið þér kannske smakkað á blúndunni?« Læknirinn: »Pað veldur mér ó- segjanlegrar ánægju, Björn minn, að þér hafið nú fengið heilsuna aftur. Pér voruð þó sannarlega hættulega veikur«. Björn: »Mér er svo að fullu batn- að, að eg bara kenni mér hreint einskis meins nú. Og þetta á eg alt yður að þakka«. Læknirinn: »Nei, segið þér ekki, Björn minn, að þetta sé eingöngu mér að þakka. Með þekkingu minni er eg verkfæri i hendi guðs. Svo það er ekki síður, heldur miklu frekar, honum að þakka«. Björn: »Pað er og — og rétt er nú það! En fyrst því horfir svo- leiðis við, þætti mér vænt um að allur reikningurinn væri falinn hon- um til innheimtu, eða yður og honum gæti komið saman um að greiðslan gengí öll til hans. Mér kæmi betur að eiga um þetta við hann. — Ætli að það þurfi að borga honum fyr en í eilífðinni!« Hrossakaupmaðurinn: »Eg sver það við sáluhjálp inína, að það er bara gigt, sem gengur að fætinum á hestinum. Annars er þetta mesti dugnaðarklár — hreinasta metfé, skal eg nú segja þér« Kaupandinn: »En ef nú gigtin yrði að staðaldri, myndi eg þá ekki fá klárinn fyrir slikk eða lítið sem ekkert? Hrossakaupm.: »Jú, auðvitað. — En slíkt kemur nú reyndar ekki til mála. Eins og eg hefi sagt þér, þá er hann metfé«. Kaupandinn: »Pað er lakur kaup- maður, sem lastar sína vöru«, segir máltækið. En bykkjuna ætti eg að 3 fá fyrir mjög lítið. Við skulum sem sé ganga út frá því, að því sé eins varið með hana og tengdamóður mína, er segist hafa haft gigt í þrjátíu ár og tólf mánuði á hverju ári«. Tveir náungar komu labbandi eftir götunni. Leiddust þeir eins og kærustupör. En reyndar höfðu þeir fengið sér heldur ríflega neðan í því og höfðu nóg með að verja hvor 'annan falli, svo valtir voru þeir á fótunum. Komu þeir úr brúð- kaupsfagnaði, þar sem veitt hafði verið af rausn og óspart drukkið bæði Guðbrandarblanda og whisky. Hið síðarnefnda virtist helst hafa komið neðan úr jörðinni, því enginn gestanna hafði hugmynd um hvernig það var þangað komið — jafnvel ekki tveir »þefarar«, er voru nú reyndar boðslettur, en var af kurteisi leyft að vera með. Alt í einu nema hinir meira en sætkendu félagar staðar. Verður þá öðrum þeirra litið upp í loftið, sér tunglið, er skein í heiði, og segir: »Heyrðu nú, lagsi! er þetta tunglið eða stóra ljósið hjá Áfengisversl- uninni?« »Ja, skrambinn hafi^það, ef eg þori að fullyrða, hvort heldur er«, svaraði hinn og virti tunglið gaum- gæfilega fyrir sér. Bar nú þriðja brúðkaupsgestinn þarna að. Sá var þreifandi blind- fullur. Báðu þeir hann að láta í Ijós sitt álit á þessu. »Pað get eg hreint ekki«, sagði hann. »Eg bý á öðru landshorni og hefi ekki komið hér í tuttugu ár. Eg er eig- inlega bráðókunnugur hér í bæn- um núorðið«. En það voru ekki aðeins matarréttirnir, ljúffengir og kjarngóðir — heldur fremur — miklu frem- ur liljan sem bar af öllum liljum dalsins, hin indæla, töfrandi rósarrjóða mær, $em bar á borðið, — það var hún er mest dróg að sér at- hygli hans og gakntók huga hans. Honum virtist augu hennar bera þess vott að sál hennar væri að vakna. Ljósblik augna henn- ar lýstu djúpu og auðugu tilfinningalífi og sterkri þrá — að hún mundi elska heitt og innilega. Við kvöldverðinn var enginn þögull við borð- ið. Hið góðviljaða og kærleiksríka viðmót, sem var glöggur vottur sannrar risnu en engrar upp- gerðar, og hið brosandi andlit hinnar yndislegu yíigismeyjar glöddu ferðamanninn óumræðilega, og honum fanst hann vera alveg heima hjá sér. Og borðhaldið varð langt sökuin hinna fjörugu samræðna. Allir tóku þátt í þeim og allir voru glaðir og ánægðir. Bóndinn fræddi gestinn um búnað og búnað- arháttu í þessu afskekta bygðarlagi. Og dalur- inn birtist sálarsýn ferðamannsins eins og undra- heimur, þar sem stöðug barátta við óhagstæð náttúruöfl blandast töfrandi ró og draumværð. Ferðamaðurinn greindi og frá surnu af því fjöl- breytta er fyrir hann hafði borið á ferðum hans um heiminn. Hann hafði horfst í augu við hætt- ur og dauða, þjáðst af skæðum drepsóttum, lið- ið skipbrot oftar en einu sinni. Margar freist- 8 ingar voru fyrir liann lagðar. En enginn þeirra fjötraði sál hans eða líf. Tvisvar sinnum Ijóstr- aði hann upp samsæri gegn yfirmönnum á skipi sem liann var á og var ofsóttur og eltur af manndrápsmönnum fyrir það. En hann komst ómeiddur gegnum allar hættur: »En þetta á ég alt móður minni að þakka«, sagði hann með á- horslu. »Hún bað mig að lofa sér því að ég skyldi vera skírlífur, ráðvandur og hreinskilinn við aðra og sjálfan' mig. Svo það er henni að þakka að eg komst klakklaust gegnum það alt. — ílenni ber þakklæti«. Hjarta Valrósar sló ótt og títt. Hún var nú sælli en hún ha^ði nokkru sinni verið. Nærvera hans, hin hreina, göfuga ásýnd hans, fylti hjarta hennar hlýju og yndi og orð hans bergmáluðu í sál hennar með innilegri hrifning. Til er mál- tæki sem segir: »Sá sem er góður sonur móður sinni, ann henni og fylgir ráðum hennar verður góður eiginmaður sem elskar konu sína og heigar henni líf sitt. Valrós sá kongson æskudrauma sinna, hug- sjón alls þess er hún þráði, takinark ástarinnar — ástar hennar. Og hún sá það eins og við sjáum stjörnur blika á heiðu vetrarkvöldi. Æska hennar, hin skyndilega koma þessa ferðamanns, heillandi samræða — alt sem hann sagði — varð til þess, að hún sá alt í einu vetfangi* án frekari umhugsunar. En umhugsunin kom. Kunningi: »Svei mér ef eg er ekki orðiun bráðskotinn í henni Jónu Sveins«. Annar kunningi: »Altaf ertu sama fíflið — sami gapinn. Hún sem er þegar hálfpipruð og dauðskotin í öllum netna — þér«.

x

Framtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framtíðin
https://timarit.is/publication/1397

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.