Hlynur - 15.07.1968, Blaðsíða 8
I
KJÖRBÚÐINNI
FJÁRFESTING
Ekki ósjaldan hefur maður
heyrt verzlunarstjóra tala um,
að það taki því ekki að leiðbeina
þessum eða hinum starfsmanna
þeirra.
Orsakir þessa telja þeir, að
hún eða hann muni dvelja svo
stutt í þeirra þjónustu, að það
borgi sig ekki.
En auðvitað er ekki hægt að
dæma starfsaldur fólks hjá fyr-
irtæki fyrirfram.
í mörgum tilvikum gera verzl-
unarstjórar sér ekki ljóst, þeg-
ar þeir eru að ráða starfsmann,
að þeir eru að fjárfesta. Eins og
við öll vitum, er hægt að fjár-
festa á ýmsa vegu. Öllum verzl-
unum stendur til boða að kaupa
sömu tegund af Hugin-kössum,
Levin kæli- og frystiborðum, og
allir geta keypt Dick hnífa, og
ekki nóg með það, þið getið
einnig fengið allar upplýsingar
um notkun, viðhald og reynslu
annarra.
Allt öðru máli gegnir, þegar
þú ræður starfsmann. Þar ert
þú ekki að fjárfesta í tæki, sem
þú getur stillt eftir geðþótta,
heldur í manni, sem þú átt kost
á að móta og gera að góðum
starfsmanni.
Hvernig?
Allir sem byrja nýtt starf,
bera vissan kvíða í brjósti fyrir
starfinu, hvort sem um er að
ræða stöðubreytingu eða byrj-
anda í starfi. Ekki er óeðlilegt,
að hugsað sé til væntanlegra
starfsfélaga og yfirmanns, og
til þess sem glíman stendur um
— viðskiptavinarins.
Þetta verður verzlunarstjór-
inn að hafa í huga, þegar hann
tekur á móti nýjum starfsmanni.
Verzlunarstjóra ber umfram
allt að kynna hinn nýja starfs-
mann fyrir væntanlegum
vinnufélögum og segja honum
hvaða starf hver um sig hefur
með höndum, þannig að hann
geti leitað til þeirra með þau
vandamál, sem byrjanda er
nauðsynlegt að fá greið svör við.
Verzlunarstjórinn á með að-
stoð starfsfólksins að koma hin-
um nýja starfsfélaga inn í þau
störf, sem honum er trúað fyr-
ir. Með því gerið þið tvennt:
Eigið þátt í góðri fjárfestingu,
og um leið eignizt þið góðan
starfsfélaga og vin.
Sjá næstu bls.
í KJÖRBÚÐINNI
Eins og frá hcfur verið skýrt hér í blaðinu, hefur Árni Einars-
son, sem annazt hefur þáttinn í kjörbúðinni, tekið við nýju starfi
í Véladeild SÍS. Nú hefur verið ráðið, að í stað hans verði þáttur-
inn framvegis skrifaður til skiptis af ýmsum starfsmönnum Inn-
flutningsdeildar SÍS eða kaupfélaganna, sem reynslu hafa í mál-
efnum sem varða kjörbúðir, og að þessu sinni er höfundur þáttarins
Kristinn Ketilsson, sölumaður hjá Birgðastöð SÍS.
8 HLYNUR