Fréttablaðið - 03.01.2012, Qupperneq 25
Kynning - AUGLÝSING
Námskeið fyrir þá sem vilja hætta
að reykja verður haldið á Heilsu-
hóteli Íslands helgina 3.-5. febrúar.
Námskeiðið er sérhannað af
þekktum einstaklingum sem oft
hafa aðstoðað reykingafólk. Að-
ferðin, sem beitt er, hefur skil-
að gríðarlegum árangri og flest-
ir hætt fyrir lífstíð án þess að nýta
nikótíntyggjó eða annað eftir
námskeið.
Leiðbeinendur eru Valgeir
Skagfjörð, leikari og tónlistarmað-
ur, og dr. Ásgeir Helgason, dósent í
sálfræði og lýðheilsufræðum.
Fyrirtæki og einstaklingar
geta staðfest þátttöku með því
að senda tölvupóst á netfangið
heilsa@heilsuhotel.is með helstu
upplýsingum.
Takmarkaður f jöldi kemst
að. Pantið því sem allra fyrst til
að missa ekki af þessu frábæra
tækifæri til betra lífs.
Verðið er 49.500 krónur með
gistingu, fæði og námskeiðs-
gjaldi. Flest stéttarfélög og fyrir-
tæki styrkja reykleysisnámskeið.
Upplýsingar eru í
síma 512-8040.
Hættum að reykja
Góð aðstaða er til gönguferða í nágrenni Heilsuhótelsins.
Heilsuhótel Íslands fékk nýverið afhent hvatningarverðlaun fyrir heilsu-
tengda ferðaþjónustu. Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála, afhenti
verðlaunin við hátíðlega athöfn. Verðlaunin gera Heilsuhótelinu kleift að
færa út kvíarnar og kynna starfsemi sína í Bandaríkjunum.
Hótelið hefur frá 2009 kynnt fyrir Íslendingum heilsumeðferð sem
byggir á því að endurhlaða batteríin og auka jákvæðni. Hún er góð leið
til lífsstílsbreytinga.
Hótelið býður tveggja vikna heilsudvöl flesta mánuði ársins. Þar
fá gestir fjölbreytta þjónustu, heilsufæði, fræðslu, hreyfingu, sauna
og náttúruböð auk meðferða að eigin ósk. Dvöl í Bláa lóninu er hluti
upplifunarinnar.
Heilsumeðferðin er vinsæl meðal erlendra gesta; Norðurlandabúar,
svo sem Norðmenn og Færeyingar, eru fjölmennir, einnig Tyrkir,
Hollendingar, Bandaríkjamenn og Bretar.
Heilsuhótel Íslands
vinnur til verðlauna
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, dr. Haukur Ingi Jónasson og Ragnar Sær Ragnarsson
Heilsuhóteli Íslands.
Ég heillaðist af þeirri hugmynd strax frá upphafi að hér á landi væri til heilsu-hótel þar sem hægt væri að huga að
mataræði og hreyfingu á sama tíma. Fólk
þarf heldur ekki til Austurlanda til að íhuga
og endurnæra sálina, við höfum hér okkar
hreina loft og hreina vatn ásamt fínni að-
stöðu,“ segir Sif Sigfúsdóttir, markaðs- og
samskiptastjóri á félagsvísindasviði Háskóla
Íslands og eigandi www.gerumeitthvad.is
viðburðavefs. Hún hefur tvívegis nýtt sér
þjónustu Heilsuhótels Íslands á Reykjanesi
ásamt eiginmanni sínum. Hún segir forvitn-
ina hafa rekið þau þangað fyrst og reynslan
hafi kennt þeim að vist þar sé góð fyrir heils-
una. „Hótelið er í alla staði mjög fínt og þægi-
legt og það er gaman að dvelja þar. Njóta þess
að fara í sauna, líkamsrækt, hitaklefa, slaka
á, fara í göngur snemma á morgnana, teygjur
og slökun inni, borða hollan mat og drekka
holla safa,“ segir Sif hrifin. „Þetta er tími sem
hver og einn á fyrir sig og ræktar eigin líkama
og sál. Þarna er dagskrá í gangi allan dag-
inn og hver einstaklingur getur valið úr hvað
hann vill gera, en það er líka nauðsynlegt að
vera einn með sjálfum sér og slaka á því það
gerist ekki oft í nútímaþjóðfélagi.“
Sif segir eiginmann sinn hafa losnað við
ýmsa smákvilla á Heilsuhótelinu. „Maður-
inn minn var með vöðvaverki sem búið var
að reyna að meðhöndla í langan tíma og
einnig með krónískt kvef í mörg ár. Hann
fékk undraverðan bata á einni viku með því
að hreinsa út allan sykur og kolvetni, sleppa
kaffi og auðvitað aukefnum í mat, þannig
að dvölin virkaði mjög vel á hann en hann
hafði ekki áður prófað að taka þetta allt út
í einu. Við sjáum það alltaf betur og betur
hvað mataræði stjórnar andlegu jafnt sem
líkamlegu jafnvægi.“
Sif kveðst lifa almennt fremur heilsu-
samlegu lífi. „Ég hef alltaf haft áhuga á að
borða hollt en dvölin á Heilsuhótelinu er ólík
öllu sem ég hef prófað. Þar fer ekkert inn fyrir
varirnar nema það sem kokkurinn setur fram
og þó maður ætti að geta breytt mataræðinu
heima þá er svo miklu betra að gera það með
öðrum og með aðgæslu fagfólks. Á sunnu-
dögum er einungis neytt safa og þeir eru
allir nýpressaðir. Svo er haldinn vatnsdagur
þar sem eingöngu er drukkið vatn og te. Allt
hefur þetta mjög góð áhrif á líkamann. Það
er eins og hann losi sig við eitur efni sem hafa
safnast upp, húðin hreinsast og appelsínuhúð
hverfur, maður fær eigin lega nýtt tækifæri
sem er líka ný byrjun.“
En hvernig gengur svo að viðhalda
þessum lífsstíl eftir að komið er heim?
„Okkur gekk vel að viðhalda honum í um
fimm mánuði án þess að hafa mikið fyrir
því. Svo smá sækir í sama horfið ef ekki er
hugað að heilsu og hreyfingu. Það er viss
tilhneiging hjá mér að gleyma sjálfri mér.
Er með fimm manna heimili og eins og svo
margir þekkja sem vinna fullt starf snúast
dagarnir um að fara heim eftir vinnu og
elda, setja í vélar og þrífa, huga að heima-
námi barnanna, sækja og skutla í íþróttir
og tómstundir og áður en maður veit af er
kominn háttatími. En á heilsuhótelinu er
frábært tækifæri fyrir fólk sem vill slaka á
og breyta til. Það fær hraða byrjun, léttist
fljótt og líkaminn tekur breytingum. Svo er
hægt að nýta sér alls kyns meðferðir bæði á
snyrti-og nuddstofu. Ég veit að hóteldvöl-
in hefur kveikt ljós hjá mörgum og verið
fólki stökkpallur inn í breyttan lífsstíl til
frambúðar.“
Dvöl á Heilsuhóteli Íslands
ólík öllu sem ég hef prófað
Smákvillar hverfa og sálin endurnærist, líkaminn léttist og húðin sléttist við dvöl á Heilsuhóteli Íslands í Reykjanesbæ að sögn Sifjar Sigfúsdóttur,
markaðs- og samskiptastjóra í Háskóla Íslands. Hún hefur tvívegis nýtt sér þjónustu hótelsins ásamt eiginmanni sínum.
„Ég veit að hóteldvölin hefur kveikt ljós hjá mörgum og verið stökkpallur inn í breyttan lífsstíl til frambúðar,“ segir Sif Sigfúsdóttir.
Næstu Námskeið
HeilsuHótels
ÍslaNds
Námskeið vorið 2012
6.-20. janúar
2.-16. mars
4.-18. maí
1. -15. júní
Betra er að
panta tímanlega
vegna aukinnar
aðsóknar á vor-
námskeiðin.
Flest stéttarfélög
og fyrirtæki
styrkja einstak-
linga á nám-
skeiðin.