Fréttablaðið - 03.01.2012, Page 46

Fréttablaðið - 03.01.2012, Page 46
3. janúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR42 Besti Bitinn í Bænum „Í dag eru það Tapashúsið og Grillmarkaðurinn. Þetta breytist mjög reglulega hjá mér en þetta eru uppáhaldsstaðirnir í dag.“ Elva Björk Barkardóttir, meistaranemi í lögfræði. „Ég tók smá tíma í að æfa þetta,“ segir Anna Gunndís Guðmunds- dóttir, eða Dunda, sem sló í gegn sem glamúrgellan Hildur Líf í Áramótaskaupinu. Spurð hvernig hún hafi sett sig í karakter segist hún aðallega hafa stuðst við viðtal sem Nilli tók við Hildi Líf í sjónvarpsþætt- inum Týnda kynslóðin. „Það var eina tengingin sem ég var með og svo bara ljósmyndir. Síðan var ég að vinna með frábærum leikstjóra og búningahönnuði og meistara Rögnu Fossberg, þann- ig að ég fékk gott gervi,“ segir Dunda, sem var með einar sokka- buxur undir hvoru brjóstinu til að ná útliti Hildar Lífar betur. Dunda er í eðli sínu dökkhærð en var með aflitað hár í Skaup- inu. „Það var aflitað fyrir sýn- ingu í Salsburg í Austurríki í sumar. Eftir það fór ég að leika hjá Leikfélagi Akureyrar í haust og þau vildu endilega halda þessu,“ segir hún og á við leikrit- ið Svarta kómedían. „Svo hopp- aði ég inn í Hildi Líf og núna er ég orðin dökkhærð fyrir næsta verkefni.“ Það er kvikmyndin Frost í leikstjórn Reynis Lyng- dal og hefjast tökur 9. janúar á Langjökli. Aðspurð segist Dunda hafa fengið góð viðbrögð við frammi- stöðu sinni í Skaupinu. „Mamma reyndar þekkti mig ekki og ekki heldur margir af mínum nánustu vinum. Ég ákvað að segja engum frá þessu, þannig að þetta kom fullt af fólki á óvart.“ Sjálf seg- ist hún ekkert þekkja Hildi Líf og getur því ekki borið saman persónuleika þeirra beggja. „Ég er ekki alveg dómbær á það.“ Dunda, sem útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands 2010, kveðst alveg vera til í að leika aftur í Skaupinu. „Ég myndi hiklaust gera það. Það var æðislegt að fá að taka þátt í þessu.“ freyr@frettabladid.is anna gunndís guðmundsdóttir: mamma þekkti mig ekki Óþekkjanleg í hlutverki Hildar Lífar í Skaupinu Skjárinn tryggði sér réttindin til notkunar á tíðninni FM 100,5 á uppboði sem haldið var af Póst- og fjarskiptastofnuninni þann 30. des- ember. Útvarpsstöðin Kaninn er á umræddri tíðni og mun Skjárinn því taka yfir rekstur stöðvarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem útvarpstíðni er boðin upp með þessum hætti en auk Skjásins sóttist Lýðræðishreyfing Ástþórs Magnússonar eftir tíðninni. „Leyfi Kanans hafði runnið út og útvarpsstöð Ástþórs hafði áður verið send út á þessari tíðni og því sóttist hann einnig eftir henni. Málið var þess vegna leyst með uppboðinu og átti Skjárinn hæsta tilboð,“ segir Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri Skjásins. Tíðn- in fór fyrir 370 þúsund krónur og mun Skjárinn taka yfir rekstur Kanans sem mun flytja í húsnæði Skjásins í Skipholti. „Við teljum að þetta muni styrkja stoðir fyrirtækisins enn frekar enda fara útvarps- og sjón- varpsrekstur vel saman. Það verð- ur engin röskun á starfsemi Kan- ans heldur munum við taka við stöðinni eins og hún er. Starfsfólk Skjásins er spennt fyrir liðsaukan- um enda skilja allir hversu mikill kostur það er fyrir okkur að vera með útvarpsrödd líka. Þetta styður hvort annað.“ Einar Bárðarson, stofnandi Kan- ans, mun stýra stöðinni áfram fyrir hönd Skjásins. - sm Skjárinn eignast Kanann Á uppBoð skjárinn tryggði sér tíðni Kanans á uppboði sem fór fram fyrir helgi. Fyrirtækið mun taka yfir rekstur útvarpsstöðvarinnar en Einar Bárðarson mun áfram stýra henni. FréttaBlaðið/valli „Þú segir mér ánægjulegar fréttir,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson. „Það er ákaflega gaman þegar vel gengur og ég er þakklátur fyrir að fólk hafi gaman af þessu.“ Árið 2011 seldi Helgi hátt í tuttugu þúsund plötur á Íslandi, sem gerir hann að næst- söluhæsta tónlistarmanni landsins á eftir Mugison. Þriðja hestamannaplata hans, Ég vil fara upp í sveit, seldist í um átta þúsund eintökum fyrir jól, auk þess sem plata hans með stórtónleikum í Hörpunni 17. júní seld- ist í hátt í sex þúsund eintökum, sem kom nokkuð á óvart. Þar fyrir utan seldust fyrstu tvær hestamannaplötur hans og Reiðmanna vindanna samanlagt í um 3.500 eintökum á árinu. Þá eru ótalin þau um það bil eitt þúsund eintök sem seldust af safnplötu Graf- íkur, sem Helgi söng með hér á árum áður. Aðspurður segist Helgi búast við því að halda aðra dægurperlu-tónleika í Hörpunni í sumar. Óvíst er þó hvort plata með þeim tónleikum kemur út annað árið í röð. Hestamannaplötur hans þrjár hafa saman- lagt selst í um 32 þúsund eintökum. Spurður hvort fjórða platan komi út á árinu segir hann það óákveðið. „Landsmót hestamanna verður í Reykjavík á þessu ári. Það ýtir kannski á mann eitthvað.“ Fari svo að Helgi sendi hvorki frá sér dægurperlu- né hestamannaplötu á árinu segir hann vel koma til greina að gera sóló- plötu með nýju efni, þá fyrstu í þrettán ár. „Það fer að koma tími á það.“ - fb Seldi hátt í 20 þúsund plötur vinsæll Plötur með Helga Björnssyni seldust í hátt í tuttugu þúsund eintökum á síðasta ári. FréttaBlaðið/stEFán sló í gegn anna gunndís guðmundsdóttir sló í gegn sem Hildur líf í áramóta­ skaupinu. FréttaBlaðið/stEFán Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Nýtt verk úr smiðju Vesturports frumsýnt í janúar Tryggðu þér miða strax!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.