Varðveislumál : í bóka- og skjalasöfnum - 01.12.1989, Qupperneq 3

Varðveislumál : í bóka- og skjalasöfnum - 01.12.1989, Qupperneq 3
fyrirlestur. Þar var m.a. unnið að undirbúningi norræns námskeiðs um varðveislumál sem NVBF ætlar að standa fyrir næsta sumar er verður sennilega haldið í Kaupmannahöfn í byrjun ágúst. Hverju landi mun gefinn kostur á að senda 5-8 manns. Verður það nánar auglýst þegar þar að kemur. Þá munu Bókavarðafélag íslands og Félag um skjalastjóm í sameiningu gangast fyrir fræðslufundi um þessi efni í vor. Ritfregnir NORDINFO-NYTT 11(1988), nr. 4 er helgað varðveislumálum. Þar eru margar fróðlegar greinar um ástand þessara mála á Norðurlöndum, m.a. sú sem næst er nefnd. Stefanía Júlíusdóttir: Biblioteksmaterialets tilstand i islandske biblioteker og formentlig udvikling de nœste 15 ár. NORDINFO-NYTT 11(1988), nr. 4. Greinarhöfundur segir frá niðurstöðum fundar sem hún boðaði til í okt. 1988 með forstöðumönn- um heistu bókasafna landsins til þess að afla upplýsinga um ástand safnefnis. Þeir voru beðnir um að lýsa ástandi safnkosts á söfnum sínum og leggja fram skýrslu um það. Fram kom að sam- kvæmt sjónmati virtist ástand safnefnis í nokkuð góðu lagi. Eldri dagblöð og tímarit eru helst talin í eyðileggingarhættu en ekki hefur verið gerð vísindaleg athugun á ástandi safnefnis hér á landi. Ekkert þeirra salfia sem könnunin tók til hefur nú rykþéttar geymslur þar sem fylgst er með raka og hita. Einnig var reynt að sjá fram í tímann og gera sér grein fyrir því hvemig aðstæður yrðu hér á landi eftir 15 ár varðandi geymslur fyrir safnefni sem áhugi er á að varðveita til frambúðar og hvemig aðgangur muni verða að þessu efni. Stefanía Júlíusdóttir: Nokkur atriði um geymsluskilyrði ú skjala- og bókasöfnum. Sveitarstjórnarmál 1984. s. 260-264. Þessa grein ættu allir bóka- og skjalaverðir að verða sér úti um. Hér em rakin öll helstu atriði sem skipta máli um varðveislu í bóka- og skjalasöfnum, svo sem hita- og rakastig, áhrif ljóss, ryks og meðferð mismunandi safnefnis. Hoel, lvar: Papirnedbrydning. En underspgelse af papirsurhed og papirstyrke i nordiske bpger 1850-1985 (Det Kongelige Bibliotek. Forskningsrapporter; 1). í þessari bók gerir höfundur grein fyrir rannsókn- um er hann vann að á vegum Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að pappír í bókum frá árabilinu 1880/90-1960/70 sé mjög súr á Norðurlöndum. Þá leggur hann áherslu á mikilvægi þess að binda inn bækur sem á að varðveita. Bandið kemur mjög í veg fyrir eyðileggingu, m.a. vegna þess að loft leikur þá síður um blaðsíðurnar. ísland var ekki með í rannsókn Hoels og er það miður því fróðlegt hefði verið að sjá t.d. hver áhrif loftslag hefur haft á endingu þess pappírs sem hér hefur verið notaður í skjöl og bækur. Páll L. Einarsson: Þjóðaraifurinn súr og stökkur. Morgunblaðið 23. apríl 1989 (Viðtöl við Áslaugu Jóns- dóttur.forstöðumann viðgerðarstofu Þjóðskalasafns o.fl.). Bent er á að þótt ástand pappírs í bókum virðist betra hér en víða annars staðar vegna minni mengunar og kaldara loftslags sé ekki ástæða til að ætla annað en sama ástand skapist hér og annars staðar, þ.e. að bækur og blöð molni niður með tímanum. Einnig er rætt um mikilvægi þess að nota góðan pappír, því dýrara sé að þurfa að afsýra hann í framtíðinni.

x

Varðveislumál : í bóka- og skjalasöfnum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Varðveislumál : í bóka- og skjalasöfnum
https://timarit.is/publication/1409

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.