Vesturbæjarblaðið - okt. 2019, Side 2
Hugmyndir eru um að byggja þrjár íbúðar hæðir
ofan á verslunarhúsið við Hagmel 67. Þann 30.
ágúst sl var lögð fram fyrirspurn hjá skipulags
fulltrúa frá Kristjönu Margréti Sigurðar dóttir um
hækkun hússins á lóðinni nr. 67 við. Hækkunin
felst í að byggja allt að þriggja hæða íbúðarhús
næði ofan á núverandi verslunarhúsnæði, sam
kvæmt uppdrætti T.Ark. Arkitekta ehf.
Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnis
stjóra og hefur nú verið lögð fram að nýju
ásamt jákvæðri umsögn skipulagsfulltrúa frá 25.
september sl. Ýmis starfsemi hefur verið í húsinu
í gegnum árin. Meðal annars sjoppa, bókabúðin
Úlfarsfell, Prentsmiðjan Skákprent, bakarí og
hverfis kráin Haukur í Horni. Ísbúð Vesturbæjar
er á Hagamel 67. Einnig Fisherman fiskverslun og
eldhús, blómabúð, Gallerí Vest og Thai Grill. Hug
myndir eru um að hver íbúðarhæð verði 320 fer
metrar að stærð eða alls um eitt þúsund fermetra.
Lítið hús Veitna tengir Hagamel 67 við blokkina við
Kaplaskjólsveg 27 til 31.
2 Vesturbæjarblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171
Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 551 1519 • 893 5904
Netfang: thordingimars@gmail.com
Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
Heimasíða: borgarblod.is
Net fang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son
Um brot: Valur Kristjánsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreif ing: Morgunblaðið
10. tbl. 22. árgangur
Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107 og 101.
Samkomulag sveitarfélaga og ríkisins um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu er ánægjulegt. Það sýnir hvað má gera
ef vilji er til. Það sýnir einnig nauðsyn þess að sveitarfélögin
komi sameiginlega að svo stóru verkefni.
Lengi höfðu sveitarfélögin unnið hvert fyrir sig og stundum eftir misjöfnum sjónarmiðum um þróun byggðar. Fyrir
nokkrum árum hófu þau samstarf um skipulagsmál á vegum
SSH – Samtaka sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu.
Fólki hefur fjölgað á suðvesturhorninu á umliðnum árum. Ekkert bendir til að sú fjölgun stöðvist. Fólksfjölgunin
veldur því að betur þarf að nýta það takmarkaða landrými sem
er fyrir hendi. Þótt skiptar skoðanir hafa verið um þéttingu
byggðar þá er flestum að verða þessi staðreynd ljós.
Á sama hátt þarf að huga að samgöngum. Samgöngumálin verða ekki endalaust leyst með fjölgun einkabíla. Það þýðir
þó ekki að bíllinn eigi að hverfa. Það þýðir að byggja þarf og
hlúa að öðrum samgöngum og gera þær notendavænar.
Uppbygging höfuðborgarsvæðisins er með þeim hætti að víða eru íbúðabyggðir í talsverðri fjarlægt frá
atvinnubyggðum. Með fjölgum íbúa er fólk fyrst nú að finna
fyrir umferðatöfum. Hingað til hafa þær tæpast þekkst. Og
þá er hrópað á lausnir. Lausnir frá hinu opinbera. Frá ríki
og sveitarfélögum.
Nú hafa forráðamenn sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu sest niður til að móta stefnu og fram
kvæmda áætlun til frambúðar í samvinnu við ríkið.
Því ber að fagna.
Samkomulag sem
ber að fagna
OKTÓBER 2019
ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
www.husavidgerdir.is/hafa-samband
info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070
Finndu okkur á
Fegrun og lenging líftíma
steyptra mannvirkja er
okkar áhugamál. Við
höfum náð góðum árangri
í margs konar múr- og
steypuviðgerðum,
múrfiltun, steiningu og
múrklæðningum. Hafðu samband
Við skoðum og gerum tilboð!
Þannig myndi Hagamelur 67 líta út eftir að byggt hefði verið þriggja hæða íbúðhús ofan á verslunarhús-
næðið. Teikning T.Ark. arkitektar.
Byggt ofan á Hagamel 67
Áform eru uppi um að koma
á fót mat höll í gamla póst hús
inu, Póst hús stræti 5 í Reykja vík.
Einnig hefur verið sótt um leyfi
til úti veit inga í porti Póst hús
stræt is 3, en í því húsi var gamla
miðbæjarlög reglu stöðin.
Sendi Fast eigna fé lagið Reit
ir sem er eig andi hús anna fyr ir
spurn til borg ar yf ir valda og spurði
hvort leyfi feng ist fyr ir veit inga
starf semi, mat höll, á 1. hæð og í
kjall ara gamla póst húss ins. Einnig
var spurt hvort leyfi feng ist til að
byggja yfir port á lóð Póst hús
stræt is 3 og út búa þar setsvæði í
tengsl um við mat höll ina.
Gamla Pósthúsið og gamla lögreglustöðin til vinstri. Þarna gætu
komið veitingar í stað pósts og lögreglu.
Mathöll í gamla Pósthúsið
Samkvæmt tillögu að fyrsta
áfanga nýs deiliskipulags
miðbæjarins var samþykkt á
fundi skipulags og samgöngu
ráðs nýverið að hlutar Lauga
vegs, Skólavörðustígs og Vega
mótastígs verði gerðir að varan
legum göngugötum.
Einnig verður unnið að hön
nun ýmissa lausna til að bæta
göturnar og umhverfið. Allt yfir
borð, gróður, götugögn og lýs
ing verður endurnýjað en hön
nun svæðisins verður unnin af
Arkís arkitektum í samstarfi við
Landhönnun. Fyrsti áfangi sem
nú er í deiliskipulags og forhön
nunarferli er Laugavegur á milli
Klapparstígs og Ingólfsstrætis
og Skólavörðustígur á milli Berg
staðastrætis og Laugavegar.
Gert er ráð fyrir að deiliskipu
lagið verði afgreitt á fyrsta árs
fjórðungi ársins 2020. Einnig
hefur verið samþykkt tillaga um
að Laugavegur frá Klapparstíg að
Ingólfsstræti, Skólavörðustígur
frá Bergstaðastræti að Laugavegi
og Bankastræti frá Skólavörðustíg
að Þingholtsstræti verði áfram
göngugötur í vetur eða frá 1.
október 2019 til 1. maí 2020.
Þessar götur verða opnar fyrir
akstur vegna vöruafgreiðslu
kl. 07.00 til 11.00 virka daga og
kl. 08.00 til 11.00 á laugardögum
á tímabilinu. Önnur umferð
ökutækja er óheimil á svæðinu
á göngugötutímabilinu og allar
bifreiðastöður einnig óheimilar.
Neðsti hluti Skólavörðustíg verður varanleg göngugata.
Hluti Laugavegs, Skólavörðustígs og Vegamótastígs
Verða varanlegar göngugötur