Vesturbæjarblaðið - okt 2019, Qupperneq 6

Vesturbæjarblaðið - okt 2019, Qupperneq 6
6 Vesturbæjarblaðið OKTÓBER 2019 Framhald af bls. 4-5. Svo tók við önnur borgarstjórn í öðrum lit árið 1994 og þá var bætt í hæðina við Skúlagötu með árangri sem flestir þekkja. Ég held að flestir geti verið sammála um að þétta eigi byggð. En það er ekki sama hvernig það er gert. Það á ekki að þétta þar sem hún er þéttust og lóðaverð hvað hæst. Árangur af því sjáum við í dag með íbúðum sem ekki er markaður fyrir. Það virðist sem hugmyndin um fallega sýn um þéttingu byggðar hafi þynnst út og farið var að nota þéttingu byggðar yfir allskonar útfærslur sem unnu gegn upphaflegu hugmyndafræðinni.“ Lítið hlustað á athugasemdir “Þegar ég horfi til æskustöðva minna í Vesturbugtinni og míns gamla leiksvæðis þar sem var Danielsslippurinn niður af Bakkastíg verður mér hugsað til nýsamþykkts deiliskipulags þar sem eiga að koma of háar byggingar og úr takti við hin fíngerða mælikvarða byggðarinnar fyrir ofan. Reykjavíkurborg á þetta landsvæði og því þarf ekki að semja við lóðareigendur um nýtingu. En um það eru skýrar reglur í menningarstefnu í mannvirkjagerð og aðalskipulagi hvernig eigi að byggja í eldri hverfum: Áhersla skal lögð á heildarmynd og mælikvarða þegar byggt er í og við eldri byggð. Íbúasamtökin og íbúar hverfisins hafa gert athugasemdir við þetta en það er lítið á það hlustað. Hábyggingar og lúxusíbúðir Nú stendur til að byggja á fjörum reitum vestast í borginni við Ánanaust, Bykoreit, Landhelgisreit og Héðinsreit. "Ég óttast mjög að þar muni bygginnar rísa hátt og við eigum eftir sjá auglýstar lúxusíbúðir með frábæru útsýni, sem að hefur verið tekið frá öðrum, og verðlagið verður eftir því. Stígurinn með fram sjónum sem er sameiginleg eign borgarbúa verður líklega ennþá meira í skugga alla morgna vegna þessara bygginga. Þétting má því ekki ekki fara úr böndum þannig að hún komi niður á þeim íbúum sem fyrir eru. Það virðist því miður stöðugt vera gerast. Það er raunalegt að íbúar þurfi að standa í stappi við borgaryfirvöld sem eiga að gæta hagsmuna þeirra. Munum sjá það m.a. á Bykoreitnum á horni Hringbrautar og Ánanausta þar sem nú er verið að auglýsa nýtt deiliskipulag. Þar er fyrirhuguð byggð langt úr takti Gamla Vesturbæjarins og vísað til þegar byggðra blokkabygginga sem verða að skoðast sem skipulagsmistök. Síðan er bætt duglega við. Deiliskipulagið er greinilega einnig í andstöðu við gildandi markmið Aðalskipulags 2010 til 2030 sem eru að borg fyrir fólk sé leiðarljós aðalskipulagsins. Í stað höfuðáherslu á aukið byggingamagn er sjónum beint að hinu smáa og fíngerða í borgarumhverfinu. Æskilegt er að til verði þétt, fjölbreytt og skjólsæl byggð í manneskjulegum mælikvarða. Markmið aðalskipulagsins er að skapa borg þar sem húsið, gatan og opna rýmið er myndar órofa heild. Það eru líka skýr markmið í Menningarstefnu í mannvirkjagerð hvernig byggja á nýtt í eldri hverfum: Áhersla skal lögð á heildarmynd og mælikvarða þegar byggt er í og við eldri byggð." Magnús bætir við í lokin að fræðsla um hönnun og gæði borgarumhverfis skipti líka gríðarlegu máli og bót sé í máli að komin sé arkitektadeild í Listaháskólanum hér." Magnús hefur sjálfur kennt smiðum í áraraðir aðferðir við viðhald og uppbyggingu gamalla húsa sem og veitt ráðgjöf á Árbæjarsafninu til almennings sem er að gera upp húsin sín. Þá er Magnús þekktur um allt land vegna ráðgjafar um viðhald og endurgerðir gamalla kirkja sem prýða sveitir okkar og skipa svo stóran sess í menningarsögu og byggingarlist Íslendinga. Hugmyndir að byggingum við Mýrargötu. Á gamla leiksvæði Magnúsar Skúlasonar. Nú er unnið að undirbúningi f y r i r n æ s t u k o s n i n g a r fyrir “Hverfið mitt” sem verða frá 31. októ ber til 14. nóvem ber nk. Íbúar kjósa á vefnum hverfidmitt.is og verk­ efnin sem fá brautar gengi koma til framkvæmda á næsta ári. Stillt er upp 25 verkefnum sem íbúar geta kosið um. Hugmyndir að verkefnum voru fengnar frá íbúum með hugmyndaleit á liðn­ um vetri. Alls hafa 78 verkefni orðið að veruleika í Vesturbæ en á liðnu sumri hófust framkvæmdir við verkefni sem íbúar kusu á liðnu ári. Þá völdu íbúar í Vestur­ bænum þessi verkefni: Göngu­ þverun við verslunarhverfi á Granda. Fjölnota hreysti­ og kli­ fursvæði. Strætóskýli við Mela­ skóla. Tennisvöll við íþrótta hús Hagaskóla. Gönguþverun yfir Hofsvallagötu við Reynimel. Hunda gerði við Vesturbæjarlaug. Grenndargáma í Vesturbæinn vestan Tjarnar. Gönguþverun við Ægisborg. Að bæta gatnamót Framnesvegar og Vesturgötu. Leiktæki á Hringbrautarróló. Endurtyrfa sparkvöllinn við Skelja granda. Leggja göngustíg að strætóskýli við Suðurgötu. Setja upp hjólabraut við Granda skóla. Púttvöll á grasið við spenni­ stöðina. Flest þessara verk efna eru þegar tilbúin eða komin á framkvæmdastig. Uppsetning hjóla brautar mætti andstöðu þegar kom að því að setja hana upp, bæði við Grandaskóla og einnig á opnu svæði við Faxa­ skjól, þannig að hún var sett upp tímabundið bak við Vesturbæjar­ laug. Þar er í deiliskipulagsferli að koma fyrir hundagerði, sem er annað verkefni sem íbúar kusu. Bletturinn bak við Vesturbæjarlaug þar sem koma á hundagerði fyrir. Hverfið mitt - kosið 31. október til 14. nóvember Póst númerið 102 Reykja vík hefur form lega tekið gildi. Nýtt póst númerahverfi afmarkast af Suður götu í vestri, Hring braut í norðri, Bú staða vegi og Öskju hlíð í austri og strand línu í suðri. Innan hins nýja póst númers er að finna Há skóla Ís lands og Há skólinn í Reykja vík. Stúdenta­ garða Há skóla Ís lands, há skóla­ garða HR og Vísinda garða­ svæðið, á samt Reykja víkur flug­ velli. Þar er einnig að finna gömlu og nýju byggðina í Skerja­ firði, nýju byggðin á Hlíðar enda og úti vistar perluna í Naut hóls­ vík. Mörk fyrir póst númer 105 og 107 haldast ó breytt. Borgar ráð sam þykkti 17. janúar á þessu ári að óska þess við póst­ númera nefnd Íslandspósts að Vatns mýrin fengi póst númerið 102. Það var sam þykkt í júní. Samþykkt var í borgar ráði í sumar að greiða kostnað Ís lands­ pósts vegna breytingarinnar. Alls er um að ræða 2,3 milljóna kostnað. Þegar málið var tekið fyrir í borgar ráði bárust alls fimm um sagnir vegna breytin­ ganna. Já kvæðar komu meðal annars frá Knatt spyrnu fé laginu Val og framkvæmdaaðilum á Hlíðar enda en í búa sam tök í Skerja firði, Prýðifé lagið Skjöldur, mót mæltu þeim harð lega. Þau vildu fá að halda á fram að vera í póst númeri 101. Þá lýstu ein­ hverjir í búar á hyggjum af því að fasteignaverð gæti lækkað í verði við breytinguna. Séð yfir Hlíðarendasvæðið sem verður í 102 Reykjavík. 102 Reykjavík orðið að veruleika

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.