Vesturbæjarblaðið - Oct 2019, Page 13

Vesturbæjarblaðið - Oct 2019, Page 13
Frístundamiðstöðin Tjörnin vinnur þessi misserin að inn leiðingu nýrrar mennta­ stefnu Reykjavíkurborgar inn í frí stunda starfið í hverfinu. Þróunar verkefnið Föruneytið er ein þeirra leiða og hefur verkefnið það að markmiði að efla félagslegt taumhald barna og ungmenna hverfisins. Ísland hefur verið í fararbroddi þegar kemur að forvörnum og höfum við oftar en ekki komið í fréttum erlendis þar sem íslenska forvarnamódelið er tekið til fyrirmyndar. Ótrúlegur árangur hefur náðst síðustu ár með módelinu, meðal annars með því að efla þátttöku barna og unglinga í skipulögðum tómstundum og þar af leiðandi minnka neyslu áfengis og annarra vímuefna. Einn lykilþátturinn í forvarnarmódelinu er samvinna allra aðila sem koma að upp­ eldi barna og unglinga og þar er foreldra röltið afar mikilvægt. Foreldraröltið og eftirfylgni lög­ boðins útivistartíma eflir öryggi hverfisins og býr til samfélag þar sem foreldrar og forsjáraði­ lar taka höndum saman og eru samstilltir. Frístundamiðstöðin Tjörnin hefur því nú gefið út handbók fyrir foreldra um foreldrarölt. Þar er farið yfir hvers vegna foreldrarölt skiptir svona miklu máli, tillögur að skipulagi röltsins og upplýsingar um tengiliði. Markmiðið með þessari handbók er að foreldrar og forsjáraðilar verði öruggari í skipulagi og framkvæmd foreldraröltsins hafi aðgang að leiðarvísi fyrir þetta mikilvæga starf. Foreldraröltið tengir saman foreldra, styrkir þau í hlutverkinu sínu og býr til öruggara hverfi fyrir börnin og unglingana til að alast upp í. Forstöðumenn félagsmiðstöðva Tjarnarinnar eru búin að senda út handbókina til bekkjarfulltrúa og foreldrafélaga skólanna í hverfinu sem hafa það hlutverk að vera ábyrgðaraðilar röltisins. Starfsfólk Tjarnar innar er afskaplega spennt að eiga í góðu samstarfi við foreldra og forsjáraðila hverfisins í vetur. 13VesturbæjarblaðiðOKTÓBER 2019 Þróunarverkefnið Föruneytið Þessi mynd er frá foreldrarölti í Vesturbæ. Frístundamiðstöðin Tjörnin hefur nú gefið út handbók fyrir foreldra um foreldrarölt. - Leið til að efla félagslegt taumhald barna og ungmenna Fæst í Ly f ju , e inkaapótekum, Græn he i l sa og Hei l suhús inu, nánar i upplýs ingar og ne tsa la www.ce lsus . i s Ægissíðu 121 / 107 Reykjavík s ími 5515995 / celsus. is Rannsóknir sýna að óeðlileg meltingarflóra getur valdið þyngdaraukningu sem erfitt er að losna við. Hin einstaka blanda stuðlar að því að koma á heilbrigðri meltingar­ flóru og því að fita er brotin niður í lifrinni og notuð sem orka í staðin fyrir að verða að fituforða. Kemur á blóðsykursjafnvægi. Hæsta magn af B vítamínum sem fyrirfinnst er í spíruðum kínóafræjum. Lífræn B­ vítamínin í blöndunni vinna saman og efla virkni hvors annars. Einstök patent skráð formúla úr hágæða ræktuðum kínóafræjum. STUÐLAR AÐ KJÖRÞYNGD aukakílóin burt Styður lifrarensím sem eru nauðsynleg fyrir efnaskipti fitu í lifrinni B- COMPLEX spíruð kínóafræ B1, B2, B3, B5, B6, B9 og B12 biotin, niacin og fólinsýra Klínísk ar rannsó knir NÝTT LEIÐANET Strætó mun halda opið hús um Nýtt leiðanet á Háskólatorgi, þriðjudaginn 29. október kl. 12.00-14.00 og 16.00-18.00. Við hvetjum alla áhugasama um samgöngumál að kíkja við og spjalla við starfsfólk Strætó um framtíð almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Sími: 588 9705 www.skautaholl.is Opnunartímar: Mánud. Þriðjud. og miðvikud. 13:00-14:30 Fimmtudaga 13:00-14:30 og 17:00-19:30 Föstudaga 13:00-14:30 Laugardaga og sunnudaga 13:00-17:00 Skólar og sérhópar: Mánudag til föstudags 10:00 til 15:00.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.