Vesturbæjarblaðið - okt. 2019, Blaðsíða 14
14 Vesturbæjarblaðið OKTÓBER 2019
Hópmeðferð fyrir
13 til 15 ára unglinga
Valgerður Ólafsdóttir sálfræðingur
í skólaþjónustu á Þjónustumiðstöð
Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða og
Sólveig Hlín Kristjánsdóttir sálfræðingur
á heilsugæslustöð Miðbæjar eru að
leggja lokahönd á skipulagningu
vinnustofu fyrir sálfræðinga Heilsugæslu
Höfuðborgarsvæðisins og sálfræðinga
skólaþjónustu Velferðarsviðs.
Á vinnustofunni sem var haldin 23.
ágúst var hópmeðferðin Kartaflan
kynnt. Hópmeðferðin hentar 13 til 15 ára
unglingum sem glíma við tilfinningavanda
og byggir á grunnæfingum í núvitund,
hugrænni atferlismeðferð og virkniþjálfun.
Á vinnustofunni var farið ítarlega yfir
innihald hópmeðferðarinnar og voru
aðrir sálfræðingar hvattir til að fara af
stað með hópa á Þjónustumiðstöðvum og
Heilsugæslustöðvum. Sálfræðingarnir Valgerður Ólafsdóttir og Sólveig Hlín Kristjáns-
dóttir höfundar hópmeðferðarinnar
Kartaflan
www.borgarbokasafn.is
Borgarbókasafnið
@borgarbokasafn
Nánar á
AUS TFR
Í
H
Í B
O
R
G
A
R
B
Ó
KA
S
A
FN
IN
U
Fjölbreytt
dagskrá
fyrir börn á
öllum aldri.
borgarbokasafn.is
24. - 28.
október
GETRAUNANÚMER
KR ER
107
Reykjavíkurborg ráðgerir að halda áfram með
tilraunaverkefni sem snerist um búsetu háskóla
nema í þjónustuíbúðum aldraðra. Tveir nemar
fengu slíkar íbúðir úthlutaðar á síðasta ári og
í nýrri skýrslu um verkefnið kemur fram að
reynslan af verkefninu hafi verið góð.
Á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborg í ágústlok
var samþykkt tillaga um að háskólanemar myndu
leigja þjónustuíbúð í fimm þjónustukjörnum fyrir
aldraða og starfa við félagslega umönnun og virkni
á staðnum. Gert er ráð fyrir að frá og með haust
inu 2019 muni einn nemi dvelja á hverjum stað
en síðan verði bætt við tveimur á ári næstu tvö
ár. Andrea Ósk Sigurbjörnsdóttir, nemi í tóm
stundafræði, var annar þeirra nemenda sem tóku
þátt í verkefninu. Hún segir að upplifun hennar af
því hafi verið jákvæð þó að vissulega hafi áskoranir
nar verið margar.
Andrea Ósk Sigurbjörnsdóttir háskólanemi tók
þátt í verkefninu og segir upplifunina hafa verið
jákvæða.
Fleiri nemar í íbúðir fyrir aldraða
Borgin áfram með tilraunaverkefni
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Flott föt, fyrir flottar konur
www.systrasamlagid.is