Morgunblaðið - 17.10.2019, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða yfirvélstjóra dráttarbáta Faxaflóahafna sf. til starfa.
Starfið felst m.a. í vélstjórn á dráttarbátum sem og yfirumsjón með viðhaldi og umgengni um borð
í dráttarbátum Faxaflóahafna sf.
Unnið er í dagvinnu alla virka daga frá 07:00 til 17:00.
Viðkomandi er verkstjóri annarra vélstjóra í þeim viðhalds- og umgengnisverkefnum dráttarbáta
sem sinna þarf hverju sinni auk annarra tilfallandi verkefna tengt hafnarþjónustu.
Hæfniskröfur eru vélstjórnarréttindi VF.1, reynsla af yfirvélstjórn skipa, öryggisnám Slysavarnaskóla
sjómanna, góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta.
Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnavernd þá er óskað eftir að umsækjandi geti lagt fram
sakavottorð.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is
eigi síðar en fimmtudaginn 31. október n.k.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Gísli J. Hallsson yfirhafnsögumaður, gisli@faxafloahafnir.is
Yfirvélstjóri Faxaflóahafna sf.
Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra, en undir hatti
Umhyggju starfa 18 foreldrafélög langveikra barna á Íslandi. Markmið Umhyggju er að standa vörð
um réttindi langveikra barna og styðja við fjölskyldur þeirra á margvíslegan hátt. Sálfræðiþjónusta
fyrir foreldra langveikra barna er meðal þeirrar þjónustu sem Umhyggja býður upp á.
Umhyggja – félag langveikra barna
óskar eftir sálfræðingi í 50-100% starfshlutfall
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stuðnings- og ráðgjafarviðtöl við foreldra langveikra barna
• Þátttaka í fræðslustarfi, fyrirlestrum eða námskeiðum um
sálfræðileg málefni fyrir fjölskyldur langveikra barna
• Önnur verkefni sem framkvæmdastjóri/stjórn felur starfs-
manni
Menntun og hæfniskröfur
• Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi
• Þekking og reynsla á málefnum langveikra barna æskileg
• Þekking og reynsla af vinnu með áföll æskileg
• Sérlega góð færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og sveigjanleiki
Umhyggja býður sanngjörn kjör og sveigjanleika í starfi. Umsóknum ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal
skilað til Umhyggju -félags langveikra barna, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík, eða í tölvupósti á netfangið
arny@umhyggja.is eigi síðar en 1. nóvember. Miðað er við að starf hefjist sem fyrst eftir áramótin, eða í
samráði við starfsmann.
Nánari upplýsingar veitir Árný Ingvarsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri í
síma 6617166 eða arny@umhyggja.is
hagvangur.is
Fullt af öflugu sölufólki!
Stjórn Samstarfsvettvangs um loftslagsmál
og grænar lausnir hefur samþykkt að form-
legt nafn verði eftirleiðis Grænvangur, og
Green by Iceland á ensku. Í tilkynningu seg-
ir að nafnið Grænvangur sé líklegt til að fest-
ast í sessi í máli manna. Þá sé enska nafnið
Green by Iceland lýsandi og vísi til verkefn-
isins Inspired by Iceland sem hafi virkað vel.
Þá hafa tveir verkefnisstjórar verið ráðnir til
Grænvangs, þær Kamma Thordarson í
kynningarmálin og Birta Kristín Helgadótt-
ir sem verður verkefnisstjóri á sviði grein-
inga.
Reynt fólk sem nýtur trausts
Kamma Thordarson útskrifaðist frá há-
skóla í París með meistarapróf í alþjóða-
samskiptum með áherslu á orkumál og
blaðamennsku. Einnig er hún menntuð í kín-
versku. Undanfarið ár hefur Kamma unnið á
samskiptasviði Íslandsstofu og sinnt þar vef-
gerð og samfélagsmiðlum.
Birta Kristín er með M.Sc-próf í umhverf-
is- og orkuverkfræði með áherslu á end-
urnýjanlega orkugjafa frá Háskóla Íslands.
Undanfarin ár hefur hún starfað sem ráð-
gjafi við málefni er lúta að endurnýjanlegri
orku hjá verkfræðistofunni Eflu.
„Starf Grænvangs er óðum að taka á sig
mynd. Það er mikilvægt fyrir okkur að fá til
okkar reynt fólk sem nýtur trausts á sínu
sviði til þess að takast á við þau stóru verk-
efni sem bíða okkar,“ segir í tilkynningu,
haft eftir Eggerti Benedikt Guðmundssyni,
forstöðumanni Grænvangs.
Efla samstarf og draga úr losun
Stofnfundur Grænvangs var 19. september. Hlutverk hans er
að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda og stuðla að kolefnishlutleysi árið 2040.
Þá er unnið með fyrirtækjum að markaðssetningu grænna
lausna á alþjóðamarkaði og unnið að kynningu á Íslandi sem
leiðandi lands á sviði sjálfbærni.
Að Grænvangi standa forsætisráðuneytið, umhverfis- og auð-
lindaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytið; Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðar-
ins, Samorka, Orkuklasinn, Viðskiptaráð Íslands,
Bændasamtök Íslands, háskólar og Íslandsstofa, auk fjölda fyr-
irtækja. Starfsemin er hýst hjá Íslandsstofu og náið samstarf
milli þeirrar stofnunar og Grænvangs. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Haustlitir Umhverfismál eru hvarvetna ofarlega á baugi og
leitað er grænna lausna. Í skógum Heiðmerkur við Elliðavatn.
Góður Grænvangur
Verkefnisstjórar til starfa
Starfsemin að taka á sig mynd
Birta Kristín
Helgadóttir
Eggert Benedikt
Guðmundsson
Kamma
Thordarson
Stofnuð hefur verið ráðgjaf-
arþjónustan Birki ráðgjöf
þar sem boðið er upp á
mannauðs- og rekstrar-
ráðgjöf frá ráðgjöfum með
mikla reynslu úr atvinnulíf-
inu. Einnig er í boði fræðsla
og vinnustofur fyrir stjórn-
endur og starfsmenn. Hjá
Birki ráðgjöf er lögð áhersla
á langtímaárangur og eft-
irfylgni. Að baki Birki ráð-
gjöf standa Guðmundur Páll
Gíslason, Ingibjörg Gísla-
dóttir og Rakel Heiðmars-
dóttir.
Guðmundur Páll er við-
skiptafræðingur að mennt og
hefur meðal annars starfað
sem framkvæmdastjóri hjá
Skeljungi, rekstrarstjóri hjá
Högum og framkvæmda-
stjóri hjá West Ham Football
Club. Ingibjörg er með há-
skólapróf í boðskiptafræðum
í viðskiptaumhverfi og fram-
haldspróf á sviði starfsþró-
unar. Hún hefur starfað við
mannauðsráðgjöf til stjórn-
enda og stjórnendaþjálfun á
skóla- og frístundasviði
Reykjavíkurborgar síðast-
liðin 16 ár. Rakel er með
doktorspróf í ráðgjafar-
sálfræði og hefur starfað við
mannauðsstjórnun í um 14
ár, meðal annars hjá Norður-
áli og Bláa lóninu.
Ráðgjafar Frá vinstri talið Rakel Heiðmarsdóttir, Guðmundur Páll Gísla-
son og Ingibjörg Gísladóttir, sem öll búa að mikilli reynslu úr atvinnulífi.
Þrjú munu sinna ráðgjöf hjá Birki