Morgunblaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 3
HÄSTENS Árið 1852 hóf sænski söðlasmiðurinn Pehr Adolf Janson framleiðslu á reiðtygjum undir merkinu Hästens. Upp úr aldamótunum 1900 færðist framleiðslan að mestu yfir í smíði á rúmum og rúmdýnum sem enn í dag þykja með því besta sem völ er á fyrir svefnherbergi heimsins. Frá árinu 1952 hefur Hästens séð sænsku konungs- fjölskyldunni fyrir rúmum sem segir sitt um tímalaus gæði framleiðslunnar. Herlewing rúmið Herlewing er sögnin „að vakna“ á afríkönsku. Þessi nafngift er engin tilviljun. Þríþætt samverkandi gormakerfi undir 35 lögum af handunnum gæðaefnum úr náttúrunni lyfta þér á æðra stig — bæði í svefni og vöku. Hästens Herlewing er hugvitsamleg smíð þar sem miðju- gormarnir eru sjálfstæðir og bregðast hver um sig við þrýstingi, óháðir hver öðrum. Þannig geta tveir sofið í sama rúmi og hreyft sig án þess að trufla betri helminginn. Og ekki nóg með það. Tvö gormakerfi til viðbótar mynda undirstöðu þess að hver einasti hluti líkamans fái fullkominn stuðning. Það er varla hægt að ímynda sér þá hvíld sem hárnákvæm blanda af mýkt og stuðningi veitir þér. Þú verður bara að koma í verslun okkar, prófa og finna áhrifin af eigin raun. Verslun Hästens á Íslandi er til húsa í Faxafeni 5 á sama stað og Betra bak. Að baki hverju og einu Hästens-rúmi liggja um 320 vinnustundir þrautþjálfaðra handverksmanna og í Herlewing koma saman 35 lög úr 100% náttúruefnum sem leggja grunn að óviðjafnanlegum svefngæðum. Morgunblaðið og Hästens eru stolt af því að vinna saman að því að gefa einum heppnum áskrifandaMorgunblaðsins Herlewing-rúm frá Hästens.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.