Fréttablaðið - 03.12.2002, Síða 28
28 3. desember 2002 ÞRIÐJUDAGUR
KIRKJUGARÐAR Á undanförnum
árum hefur það færst mjög í vöxt
að settir séu krossar með logandi
perum á leiði í kirkjugörðum land-
ins. Hingað til hefur aðeins verið
hægt að leigja kransa og hafa fyr-
irtæki skipt með sér görðunum.
Samkeppnin hefur því verið lítil
sem engin og hefur mörgum þótt
bagalegt að hafa ekki úr neinu að
velja þar sem aðeins hefur verið
boðið upp á eina tegund krossa. Í
ár ætlar ný jólavöruverslun í Hlíð-
arsmára að bjóða til sölu tilbúna
leiðakrossa. „Við hönnuðum kross-
ana sjálf og létum smíða þá erlend-
is en ætlum líka að selja krossa úr
ryðfríu stáli sem smíðaðir voru
fyrir okkur hér á landi,“ segir
Sigurlaug Björnsdóttir. „Það er
hægt að tengja krossana við geymi
og við reiknum með að það þurfi
aðeins að fylla á þá einu sinni yfir
jólahátíðina.“
Margir munu eflaust taka þess-
ari nýbreytni fegins hendi og hver
veit nema fleiri verslanir taki
þetta til fyrirmyndar og bjóði
krossa til sölu. Hagleikum mönn-
um ætti heldur ekki að verða
skotaskuld úr því að smíða sjálfir
slíka krossa og minnast þannig
hinna látnu á persónulegan og ein-
lægan hátt. Þetta myndi án efa
auka fjölbreytnina í jólaskreyting-
um kirkjugarða landsins og gefa
þeim hlýlegra yfirbragð. ■
Ljósakrossar verða æ algengari:
Samkeppnin
eykst í skrauti
21 DAGUR TIL JÓLA
JÓLATILBOÐ
10 tíma ljósakort kr. 3.500. 10 tíma ljós + 10 tíma slender tone kr. 10.000.
Gelneglur kr. 4.500. Gelneglur með french k.r 5.500. Nudd - gufa.
Verið velkomin
S. 567-8780
Ídag er tilvalið að setjast niðurog útbúa nokkur jólakort ásamt
fjölskyldu eða vinum.
Sniðugt er að
notfæra sér snjó-
leysið og tína
jurtir úr garðin-
um eða fá sér
göngutúr með lít-
inn poka og safna efni á leiðinni.
Séu jurtirnar rakar má pressa
þær eða þurrka með hárblásara.
Þá er hægt að líma þær á pappír
og búa þannig til einstaklega per-
sónuleg og skemmtileg jólakort.
Til að lífga enn meira upp á
kortin má nota liti með en gleym-
um því ekki að jurtirnar eru oft
mjög fjölskrúðugar ef vel er að
gáð og standa alveg fyrir sínu. ■
KIRKJUGARÐUR
Algengt er að aðstandendur minnist
látinna ástvina yfir hátíðirnar með því að
tendra ljósakrossa á leiðum þeirra.
Smákökuuppskrift:
Spesíur
JÓLABAKSTUR Margir eru farnir að
huga að jólabakstrinum. Líklega
eru fáar smákökur einfaldari en
spesíur og bragðið svíkur engan.
200 g smjör
250 g hveiti
100 g flórsykur
Öllu hnoðað saman og búin til
pylsa sem er geymd á köldum stað
áður en hún er skorin í sneiðar.
Bakað á 180 gráðum í um 5 mínút-
ur. ■
JÓL „Bernskujólin eru mér mjög
minnisstæð og jólin skiptu mig
auðvitað miklu máli sem barn,“
segir Anna Valdimarsdóttir. „Ég
minnist þess að ég settist stundum
á miðju sumri í hornið á sófanum
þar sem ég var vön að sitja á jólun-
um og hugsaði til jólanna. Þegar
ég hugsa til baka þá finnst mér
líka svo mikilvægt hvað mamma
var alltaf glöð á jólunum þrátt fyr-
ir að hún væri að vinna fram á síð-
asta dag. Hún var aldrei stressuð
eða í vondu skapi og þegar hún
horfði á okkur systkinin í jólaföt-
unum ljómaði andlit hennar.“
Pabbi Önnu rak bókaútgáfu og
því naut hún góðs af. „Á hverjum
jólum fékk ég einn háan og þung-
an pakka sem mér fannst lang-
mest spennandi og geymdi alltaf
þar til síðast. Í þessum pakka voru
nánast allar barnabækur sem
komu út fyrir jólin,“ segir Anna
og undirstrikar að jól án bóka séu
óhugsandi enn þann dag í dag. ■
ANNA VALDIMARSDÓTTIR
Jól án bóka eru óhugsandi.
Eftirminnilegustu jólin:
Bernskujólin eru minnisstæð
JÓL Ljósaseríur eru ómissandi þegar
nær dregur jólum. Ellý Sigfúsdóttir,
eigandi Byggt og búið, hefur um
árabil selt ljósaseríur. Hún segir
mikla tískustrauma vera í ljósaserí-
um. „Nú eru ljósaseríur með díóða-
perum vinsælastar hjá okkur. Serí-
urnar eru í laginu eins og hjörtu,
blóm, kúlur eða kubbar. Hjörtun og
blómin eru hvað vinsælust,“ segir
Ellý. Hún segir að ljósaseríurnar
séu ekki lengur bundnar við jólin,
nú séu þær orðnar heilsárs. „Íslend-
ingar hafa tekið þessum seríum
opnum örmum til að lýsa upp
skammdegið. Heilsársseríurnar
seljast nú meira en hinar hefð-
bundnu jólaseríur. Fólk bætir þeim
við jólaseríurnar. Við erum til dæm-
is með ansi margar nýmóðins serí-
ur.“ Nýju seríurnar eru ólíkar þeim
hefðbundnu að því leyti að þær eru
ekki með grænan sökkull eða græna
snúru. Sumar eru jafnvel ekki með
sökkul. Þess í stað er hann ofin inn í
snúruna.
Ellý segir að nýmóðins seríurn-
ar séu notaðar í alls kyns skreyt-
ingar, til að mynda í brúðkaups-
veislum, ofan í glervasa eða skál-
ar. „Við seldum ekki seríur á
sumrin en nú hefur það breyst,“
segir Ellý. „Hugarfarið er að
breytast hvað þetta varðar og það
er óhætt að segja að það hafi orðið
bylting í ljósaseríum.“ ■
JÓLATRÉ
Hægt er að móta jólatré úr ljósaseríunum.
BLÓMALJÓS
Blóm og hjörtu eru afar vinsæl nú. Bleik
hjörtu eru vinsæl hjá unglingsstúlkum.
JÓLALJÓS
Hægt er að fá ljósin sem græn jólatré.
Í BRÚÐKAUPSVEISLUN
Ljósaseríur eru nú einnig vinsælar
á sumrin.
Tískustraumar í ljósaseríum:
Heilsársseríur taka
við af jólaseríum
RISAVAXIÐ JÓLATRÉ
Þessu tréi hefur verið komið fyrir í Dort-
mund í Þýskalandi. Tréið, sem er 45 metr-
ara á hæð, er búið til úr 1.700 furutrjám.
Meira en 13.000 ljós munu lýsa það upp í
desember.
AP
/M
AR
TI
N
M
EI
SS
N
ER
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI