Fréttablaðið - 02.03.2020, Qupperneq 16
Gólfefnaverslunin Álfaborg býður nú aukið úrval af gólfefnum og hefur hafið
sölu á nýju harðparketi frá hinum
heimsþekkta framleiðanda Berry
Alloc.
„Móttökur viðskiptavina hafa
verið frábærar, enda er þetta
frábær viðbót við núverandi
vöruval í parketi,“ segir Kolbeinn
Össurarson. „Við höfum sjaldan
fengið eins góðar móttökur við
vörum frá nýjum birgja, hvort sem
það er á einstaklingsmarkaði, hjá
fagmönnum eða verktökum.“
Aukið vöruval í parketi
„Frá stofnun fyrirtækisins hefur
áhersla okkar verið á að bjóða upp
á vandaða vöru frá þekktum fram
leiðendum,“ segir Kolbeinn. „Við
höfum verið íhaldssöm í því að
bæta við okkur framleiðendum og
frekar lagt áherslu á samstarfsaðila
sem við höfum unnið með til
fjölda ára. Ef við sjáum hins vegar
tækifæri til þess að þétta vöruvalið
gerum við það.
Leiðarljósið er sem fyrr að veita
viðskiptavinum okkar heildar
lausnir við val á gólfefnum og
góða þjónustu,“ segir Kolbeinn.
„Íslenskir neytendur eru kröfu
harðir og við bjóðum þeim
einungis vandaða vöru á sam
keppnishæfum verðum, annað
gengur ekki.
Fyrirtækið Berry Alloc og vör
urnar frá því falla því einstaklega
vel að kröfum markaðarins. Það er
góð viðbót við núverandi vöruval í
parketi, en til fjölda ára höfum við
unnið með vinum okkar hjá Tark
ett með góðum árangri,“ útskýrir
Kolbeinn.
Berry Alloc harðparket
„Harðparketið frá Berry Alloc
uppfyllir ýtrustu kröfur, hvort
sem kemur að hörku, rispuvið
námi eða rakavörn. Þetta er harð
parket fyrir þá sem gera kröfur um
fallegt útlit og mikil gæði, enda
fylgir ábyrgð frá framleiðanda,“
segir Kolbeinn. „Það er líka auð
velt að leggja það, enda er það með
svokölluðum 5G lás, sem gerir
nánast öllum kleift að leggja það
á stuttum tíma. Parketið hefur
hörkustuðulinn 33 og er vatns
þolið, ásamt því að auðvelt er að
þrífa það og það hefur umhverfis
vottun og náttúrulegt útlit.
Nýja harðparketið frá Berry Alloc hefur fengið frábærar móttökur hjá viðskiptavinum. Álfaborg hefur sjaldan fengið eins góðar móttökur við vörum frá nýjum birgja, hvort sem það er á einstakl
ingsmarkaði, hjá fagmönnum eða verktökum, enda er parketið frábær viðbót við núverandi vöruval. Fyrirtækið og vörur þess falla mjög vel að kröfum markaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Álfaborg hefur
unnið með
framleiðand
anum Tarkett
með góðum
árangri í mörg
ár og býður upp
á viðarparket
frá fyrirtækinu í
miklu úrvali.
Vinsældir
Tarkett vínyl
parkets hafa
stöðugt verið
að aukast, en
það er afar
sterkt og útlit
þess er orðið
raunverulegt.
Vínylparket
er sterkara en
harðparket
og endist því
lengur, auk
þess sem það
er mýkra og
hljóðvist þess
er góð.
Þróunin í sölu á parketi hefur
verið í þá átt að viðskiptavinir
okkar velja frekar harðparket en
viðarparket eða gegnheilt parket,“
segir Kolbeinn. „Ástæðu þess má ef
til vill rekja til þess að útlit þess er
raunverulegra og verðið mun hag
stæðara. Í raun er harðparket 95%
umhverfisvænn viður og eingöngu
5% plast, en það er á yfirborði þess.
Það gerir yfirborð þess mjög slit
sterkt og endingu þess eftir því.
Við bjóðum nú harðparket í
mismunandi þykktum, allt frá 8
mm upp í 12 mm, í stærri og lengri
borðum en áður. Einnig bjóðum
við viðarparket í miklu úrvali eins
Íslenskir neyt-
endur eru kröfu-
harðir og við bjóðum
þeim einungis vandaða
vöru á samkeppnis-
hæfum verðum.
og áður,“ segir Kolbeinn. „Við erum
með umtalsvert magn af parketi á
lager, en einnig getum við sér
pantað með stuttum fyrirvara.“
Flísar, parket, dúkar, teppi,
vínylparket og múrefni
„Við erum þekkt fyrir mikið
úrval af gólfefnum, sérstaklega í
f lísum, og höfum verið leiðandi á
markaðnum,“ segir Kolbeinn. „Við
bjóðum einnig töluvert vöruúrval
af teppum, dúkum og vínylparketi.
Vinsældir Tarkett vínylparkets
hafa líka stöðugt verið að aukast,
enda er það frábær vara. Það er
afar sterkt og útlit þess er orðið
raunverulegt,“ segir Kolbeinn.
„Vínylparket er sterkara en harð
parket og endist því lengur, en auk
þess er það mýkra og hljóðvist þess
er góð. Einstaklingar og fyrirtæki
hafa því í auknum mæli valið þann
valkost fyrir gólf í eldhúsum, bað
herbergjum og öðrum rýmum sem
eru undir miklu álagi, enda þolir
það bleytu vel.“
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U DAG U R