Fréttablaðið - 02.03.2020, Síða 44

Fréttablaðið - 02.03.2020, Síða 44
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Tveimur árum eftir dauða sinn hefur tónskáldið Jóh a n n Jóh a n n s s on vakið mikla athygli og heillað gagnrýnendur á Kvikmyndahátíðinni í Berlín með Last and First Men sem reyndist því miður fyrsta og síðasta kvikmyndin sem hann leikstýrði. „Það var mjög sérstakt ferli að klára myndina án Jóhanns og ein- manalegt að geta ekki átt í sam- talinu við leikstjórann sem límir allt saman,“ segir Þórir Snær Sigur- jónsson, framleiðandi myndarinnar, nýkominn af Berlínarhátíðinni þar sem myndin og Jóhann voru ausin lofi. „Ég held að allir sem að myndinni komu hafi upplifað þennan ein- manaleika og sorg, hvort sem setið var yfir klippi, tónlist eða öðrum ákvörðunum sem þurfti að taka.“ Yfirþyrmandi þöglir hrópendur Jóhann ræddi hugmynd sína að myndinni við Þóri Snæ fyrst 2012 um það leyti sem hann var á leið í fyrsta kvikmyndatökuleiðangurinn til gömlu Júgóslavíu. Þar myndaði hann stórfengleg, brútalísk minnis- merkin sem gegna hlutverki ein- hvers konar hrópenda í eyðimörk deyjandi mannkyns eftir tvo millj- arða ára. Engar eiginlegar persónur eru í myndinni en Óskarsverðlaunaleik- konan Tilda Swinton er í hlutverki einhvers konar sögumanns og er eina röddin sem heyrist í verkinu sem meðal annars hefur verið lýst sem 70 mínútna einstökum kvik- myndaviðburði. Þórir Snær segist strax hafa hrifist af hugmynd Jóhanns sem byggði handrit sitt á tveimur síðustu köfl- um samnefndrar vísindaskáldsögu frá 1930, eftir Olaf Stapledon, sem hverfast um hnignun og endalok síðustu siðmenningar mannkyns. Sjálfur sagði Jóhann myndina vera á mörkum skáldskapar og heimilda- myndar, hugleiðingu um mislukk- aða Útópíu sem er sett í samhengi með frásagnarhætti vísindaskáld- skapar. Eina leiðin Þegar Jóhann varð bráðkvaddur fyrir tveimur árum þurfti samstarfs- fólk hans að ljúka verkinu og í raun má segja að hann hafi verið búinn að varða þann torfæra veg fyrir það. „Samt sem áður var sýn Jóhanns á verkið svo skýr frá byrjun að við fundum öll á okkur hvernig átti að hnýta lokahnútinn,“ heldur Þórir Snær áfram. „Svo fólst gáfa Jóhanns líka í því að velja sér samstarfsfólk, gefa því stefnu og treysta því síðan.“ Þórir Snær segir að í ljósi þessa hafi hvert og eitt þeirra því orðið að treysta á eigin hæfileika og færni frekar en „að giska á hvað Jói hefði viljað eða hvað hann hafði sagt við einhvern um hvernig eitthvað átti að vera. Það var eina leiðin til að klára verkið.“ Heillaðir gagnrýnendur Eftir að hafa ítrekað heillað áhorf- endur og blásið lífi í alls konar kvik- myndir með tónlist sinni er óhætt að segja að Jóhann heitinn hitti fólk ekki síður í hjartastað sem leik- stjóri. Gagnrýnandi The Playlist segir Last and First Men vera „mikilfeng- lega upplifun“ og kollegi hans hjá IndieWire.com talar um „hrífandi heimsendasýn“ auk þess sem það ágæta kvikmyndaveftímarit telur frumraun Jóhanns meðal tíu bestu kvikmyndanna á Berlínarhátíðinni. Þórir Snær segir viðtökurnar framar öllum vonum. „Mér finnst þetta algert meistaraverk, eitt það magnaðasta verk sem ég hef komið að,“ heldur framleiðandinn áfram en bætir við að hann hafi gert sér grein fyrir að myndin væri ekki fyrir alla. „Myndin er abstrakt, engar per- sónur í mynd og snertir á stórum viðfangsefnum en hún virðist hafa hitt gagnrýnendur í hjartastað og hefur verið lýst sem trúarlegri upp- lifun og einni frumlegustu sci-fi- mynd síðari ára. Hvorki meira né minna. Það er ótrúlega þakklátt að fólk skuli meðtaka myndina og vera á sömu blaðsíðu og við sem komum að gerð hennar.“ toti@frettabladid.is Heimsendasýn Jóhanns heillar í Berlín Tveimur árum eftir ótímabært andlát gerir Jóhann Jóhannsson stormandi lukku með kvikmyndinni Last and First Men sem því miður reyndist bæði fyrsta og síðasta leikstjórnarverkefni hans. Þórir Snær Sigurjónsson segir það hafa verið einmanalegt að klára myndina án leikstjórans. Jóhann Jóhannsson lést fyrir tveimur árum en minnir nú rækilega á snilli sína í Berlín. MYND/JÓNATAN GRÉTARSSON Kvikmyndatökumaðurinn Sturla Brandth Grøvlen og Þórir Snær framleiðandi fylgdu hinsta kvik- myndaverki Jóhanns á Kvikmynda- hátíðina í Berlín. MYND/ELSA MARÍA SAMT SEM ÁÐUR VAR SÝN JÓHANNS Á VERKIÐ SVO SKÝR FRÁ BYRJUN AÐ VIÐ FUNDUM ÖLL Á OKKUR HVERNIG ÁTTI AÐ HNÝTA LOKA- HNÚTINN. 2 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN Vikutilboð 27. feb. til 4. mars Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 11–18.30 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorg) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði RÝMUM FYRIR NÝRRI GERÐ Perfect–T stillanlegur botn með 25% afslætti ÞRÁÐLAUS FJARST ÝRING ENDA- OG HLIÐARSTOPPARAR USB TENGI Aukahlutur á mynd: Simbakoddi Verðdæmi A 90 x 200 Perfect-T botn (25% afsl.) með Rest Luxury heilsudýnu (20% afsl.) Fullt verð: 218.900 Verðdæmi B 90 x 200 Perfect-T botn (25% afsl.) með Simba heilsudýnu Fullt verð: 269.990 kr. Aðeins 166.170 kr. Aðeins 224.240 kr.  Vandaður, stillanlegur botn sem fullkomnar slökun þína.  Botninn dregst að vegg þegar honum er lyft svo höfuðsvæði helst á sama stað.  Á þráðlausri fjartsýringu getur þú fest þína bestu stellingu í minni.  Enda- og hliða- stopparar sjá til þessa að dýnurnar hreyfast sem minnst. 25% AFSLÁTTUR Perfect-T stillanlegum botni VIKUTILBOÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.