Fréttablaðið - 20.01.2020, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 20.01.2020, Blaðsíða 43
Opinn fundur 23. janúar á Grand hótel kl. 9:00 til 10:30. AÐ STANDA Í STORMINUM – Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets. ÞEGAR RAFORKUKERFIÐ BRESTUR – Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK. SÖGUR ÚR LOFTLÍNUNNI – Malín Frid, harðasti iðnaðarmaður Íslands 2019, Veitum. STARFSHÓPUR STJÓRNVALDA UM ÚRBÆTUR Á INNVIÐUM – Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu FUNDARSTJÓRI: Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku. Skráning á www.samorka.is 1995 – 2020 ára Borgarbókasafnið fer nú af stað með nýja viðburðaröð sem ber heitið Húslestur í skammdeginu þar sem góðir gestir hvaðanæva líta inn með sína uppá- haldstexta. Lesið verður upp úr ýmsum textum; fróðleik, skáld- skap, ljóðum og dagbókum. Rit- höfundarnir Elísabet Jökulsdóttir og Jónína Leósdóttir ríða á vaðið og lesa í Borgarbókasafninu, Menn- ingarhúsi Gerðubergs á miðviku- dag, 22. janúar, klukkan 20.00. Elísabet Jökulsdóttir hlaut Fjöru- verðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, fyrir ljóðabókina Ástin er ein taugahrúga árið 2015. Þá var hún tilnefnd til Menningarverð- launa DV og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir sömu bók. Árið 2018 hlaut Elísabet viðurkenn- ingu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarps- ins fyrir ritstörf sín. Jónína Leósdóttir hefur skrifað endurminningabækur, skáldsögur og barna- og ungmennabækur. Árið 2016 birtist fyrsta bókin í bóka- f lokknum vinsæla um eftirlauna- þegann Eddu sem leysir glæpi, en von er á fimmtu bókinni um Eddu á næstu vikum. Næstu húslestrar verða síðan 19. febrúar, gestir tilkynntir síðar, og miðvikudaginn 18. mars en þá verða gestir Anna Gyða Sigurgísla- dóttir og Eiríkur Guðmundsson. – kb Húslestur í skammdeginu Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LESIÐ VERÐUR UPP ÚR ÝMSUM TEXTUM; FRÓÐLEIK, SKÁLDSKAP, LJÓÐUM OG DAGBÓKUM. Heil Hálfviti! KVIKMYNDIR Jojo Rabbit Leikstjórn: Taika Waititi Aðalhlutverk: Roman Griffin Davis, Thomasin McKenzie, Scarlett Johansson, Taika Waititi Jojo er lítill og góður nasisti sem tekur þátt í starfi Hitlersæskunnar af slíkum metnaði að sjálfur foringinn er ósýnilegi vinurinn hans. Sameig- inleg áhugamál eins og seinni heims- styrjaldarbröltið og djúpstæð fyrir- litning á gyðingum tengja félagana sterkum böndum og eðlilega má vart á milli sjá hvor þeirra er barnalegri og meiri kjáni, hinn tæplega ellefu ára gamli Jojo eða hinn galsafengni og ímyndaði Adolf Hitler. Tilvera Jojo litla fer kannski ekki alveg á hvolf, en í það minnsta á hliðina, þegar hann kemst að því að móðir hans er ekki alveg jafn góður nasisti og hann sjálfur og hefur skotið skjólshúsi yfir gyðing uppi á háalofti. Unglingsstúlkuna Elsu sem hefur misst allt sitt fólk í lestarvagna dauðans. Samskipti þeirra Elsu og Jojo eru vitaskuld full tortryggni og van- trausts til þess að byrja með en gagn- kvæma vantraustið víkur þó jafnt og þétt eftir því sem krakkarnir kynn- ast betur og innra með Jojo vakna til- finningar sem hann hvorki skilur né ræður almennilega við. Enda hvorki hatur né fyrirlitning. Á sama tíma snarlækkar gengisvísitala ímynd- aða vinarins með asnalega yfirvara- skeggið og alls þess andskota sem hann stendur fyrir. Jojo Rabbit er marglaga og stór- merkilegt furðuverk, ágeng ádeila og kolsvört kómedía sem gengur nánast fullkomlega upp í dásam- lega bernskum fáránleika sínum þegar horft er með augum barnsins sá einhverja ógeðslegustu atburði í sögu Evrópu á síðustu öld. Hinn ímyndaði Hitler er fábjáni. Hálfviti sem tíu ára krakki sér í gegnum um leið og hann stendur frammi fyrir köldum veruleika lífs- ins, dauðans, stríðsins og skugga- hliðar nasimans. Í heimi Jojo Rabbit er ekkert svo sorglegt eða hræðilegt að ekki megi hlæja að því. Það segir sitt í þeim efnum að í súrrealískum heimi myndarinnar getur flippaða grínskvettan Rebel Wilson vaðið uppi sem nasistabrussan Fraulein Rahm eins og ekkert sé sjálfsagðara. Að ógleymdum kostulegum Sam Rockwell og Alfie Allen sem fjöl- breytileikafagnandi handbendi Hitlers. Hinn ungi Roman Griffin Davis er lífið og sálin í þessum hrá skinna leik og skilar yndislegum Jojo með örugg- um stuðningi sérlega góðrar Scarlett Johansson í hlutverki mömmu hans og Thomasin McKenzie sem er ómót- stæðilega heillandi í túlkun sinni á gyðingastelpunni Elsu. Handritshöfundurinn, leikstjór- inn og gyðingurinn Waititi her- nemur síðan allar sínar senur þar sem hann mergsýgur hlutverk skíta- labbans Hitlers og fíf lagang hans í huga Jojo um leið og hann færir okkur dásamlega, napra, grjótharða og óvægna ádeilu á stríð, nasisma og eitraða og fordómafulla heimsku almennt. Þórarinn Þórarinsson NIÐURSTAÐA: Frábær kolsvört komedía þar sem ekkert er svo heilagt eða andstyggilegt að ekki megi hlæja að því. Dásamlega leikin og falleg ástar- og þroskasaga sem á sér stað í súrrelískt ljótum kafla mannkynssögunnar. Jojo er lítill góður nasisti. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M Á N U D A G U R 2 0 . J A N Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.