Feykir - 19.07.2017, Side 6
þriðji sonurinn, Kári, og yngsta
barnið, dóttirin Ásdís Björg,
árið 2003.
Inga segist vera hinn dæmi-
gerði hrútur, hún verði helst
alltaf að hafa nokkur járn í eld-
inum. „Ég er haldin víðhygli, ég
vil ekki nota orðið athyglis-
brestur, mér þykir það svo nei-
kvætt,“ segir Inga, sem fór að
líta í kringum sig eftir frekara
námi eftir að Sparisjóður
Hrútfirðinga á Borðeyri, sem
seinna sameinaðist Sparisjóði
Vestur-Húnvetninga, var lagð-
ur niður. Þar var tengdafaðir
hennar, Pálmi Sæmundsson,
sparisjóðsstjóri og þar vann
Inga milli barneigna og segir
það hafa verið gott og gaman
að kynnast slíkum störfum. „Ef
einhvers staðar var hægt að
læra öguð og vönduð vinnu-
brögð var það af Pálma í
Laugarholti,“ bætir hún við.
Ferðamálafræði við Háskól-
ann á Hólum varð fyrir valinu
og var hún viðloðandi það nám
með hléum frá árinu 2003 til
ársins 2014. Hún lauk diplóma-
námi í ferðamálafræði og síðar,
þegar unnt varð að stunda BA
námið í fjarnámi, fór hún í það
auk þess sem hún tók land-
varðar- og staðvarðarréttindi
samhliða, og útskrifaðist með
BA prófið árið 2014, skömmu
eftir fimmtugsafmælið.
Inga segir námið á Hólum
hafa verið virkilega gott,
praktískt og atvinnutengt. Það
hafi gefið henni alveg ótrúlega
mikið og verið hvatning að því
að þær, hún og tengdamóðir
hennar, keyptu Tangahúsið árið
2004 en þá hafði Kaupfélagið
hætt starfsemi sinni og húsið
misst hlutverk sitt. Þau voru ófá
handtökin við að koma húsinu
í stand, það var óeinangrað að
hluta og einfalt gler í gluggum
og húsið allt ansi hrátt. Þá kom
sér vel að Ragnar er lærður
smiður en hann hefur unnið
við það meðfram búskapnum.
„En við gerðum þetta mjög
skynsamlega, tókum aldrei
meira fyrir en við sáum að við
gætum með góðu móti klárað
og vorum ekkert að fara inn í
einhvern lánafrumskóg. Við
fengum ágætis styrki og þar bjó
ég vel að náminu á Hólum
varðandi það að gera rekstrar-
áætlanir og annað slíkt sem
reyndist hagnýtt, öll þessi beina
tenging námsins við atvinnu-
lífið. Við tókum bara hluta af
húsinu fyrir til að byrja með,
salurinn var ekki í notkun
fyrstu árin. En svo var
eftirspurnin sívaxandi og við
bættum honum við og end-
uðum á íbúðinni. Ég tók það
líka með mér úr náminu að less
Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir,
eða Inga, tekur á móti mér í
Tangahúsi, stóru og reisulegu
þriggja hæða húsi fremst á
Borðeyrinni. Þar rekur hún,
ásamt tengdamóður sinni, Ás-
dísi Guðmundsdóttur, myndar-
legt gistiheimili. Í Tangahúsi
var áður mötuneyti og gisti-
aðstaða fyrir starfsfólk slátur-
húss Kaupfélagsins en þegar
það lagðist af var húsið meðal
annars nýtt sem geymsla. Nú
gegnir húsið aftur hlutverki
sem gistiheimili með hlýlegum
vistarverum þar sem hægt er að
hýsa 23 gesti í tveggja til sex
manna herbergjum ásamt lítilli
íbúð á jarðhæð. Rétt utan við
gluggana er svo fjaran og
öldurnar gjálfra við tangann og
VIÐTAL
Fríða Eyjólfsdóttir
segir Inga að fjaran og fugla-
lífið þar þyki gestunum sérlega
sjarmerandi. Við setjumst
niður í rúmgóðum og afskap-
lega hlýlegum sal og látum fara
vel um okkur.
„Ég er Vatnsdælingur, frá
bænum Marðarnúpi, þar sem
ég er fædd og uppalin til 16 ára
aldurs þegar foreldrar mínir
brugðu búi vegna heilsubrests
föður míns. Þá fluttum við til
Reykjavíkur þar sem ég stund-
aði nám á náttúrufræðibraut í
Fjölbrautaskólanum við Ár-
múla þaðan sem ég útskrifaðist
sem stúdent árið 1984. Á þess-
um árum vann ég í Staðarskála
á sumrin og þaðan kemur mín
fyrsta tenging við Hrútafjörð-
inn. Ég fór svo í lögfræði í
Háskóla Íslands en fann mig
ekki alveg í því námi og hætti
eftir einn vetur. Ég bý samt
alveg að þeirri menntun, t.d.
varðandi akademísk vinnu-
brögð og grúsk. Svo ákvað ég að
fara til Frakklands, til Grenoble,
og var þar í eitt ár, fyrst í
frönskunámi og fór svo í nám í
menningarfræði.
Eftir það skrapp ég í Interrail
ferð um Evrópu í nokkrar vikur
en það hafði ég reyndar gert
eftir stúdentsprófið líka. Ég tók
stigspróf til að komast inn í
háskóla í Frakklandi en þrátt
fyrir að hafa staðist það ákvað
ég að fara aftur heim,“ segir
Inga. Skýringin kemur í kjöl-
farið en heima á Íslandi átti
Inga kærasta, Hrútfirðinginn
Ragnar Pálmason frá Laugar-
holti, rétt við Borðeyri. Þau
fóru að búa fljótlega eftir heim-
komuna og elsta barnið fæddist
árið 1987, sonurinn Jón Pálmar.
Inga ákvað svo að mennta sig
Borðeyri við Hrútafjörð er lítill staður með stóra sögu. Á eyrinni kúra nokkur hús sem flest
hafa um lengri eða skemmri tíma gegnt hlutverki í verslunarsögu staðarins, sögu sem bæði
er löng og merk. Borðeyri varð löggiltur verslunarstaður árið 1846 og á sér samfellda
verslunarsögu allt til ársins 2008 og var verslunin lengst af í höndum Kaupfélags
Hrútfirðinga. En tímarnir breytast og hús sem áður geymdu verslun og aðra blómlega
starfsemi Kaupfélagsins standa nú auð og yfirgefin. Á meðan hafa önnur hús sem svipað
var komið fyrir áður gengið í endurnýjun lífdaga og eru orðin hin mesta staðarprýði.
Blaðamaður Feykis brá sér í heimsókn til Borðeyrar og hitti þar fyrir konu sem hefur svo
sannarlega látið sig málefni litla þorpsins á eyrinni varða.
frekar og útskrifaðist sem
sjúkraliði frá Sjúkraliðaskóla
Íslands en hún hafði áður
unnið við aðhlynningu eldra
fólks. „Ég hef alltaf fundið mig
mjög vel með eldra fólki,“ segir
Inga. „Ég var svo heppin að
alast upp með þrjár kynslóðir
undir sama þaki og það er
ómetanlegt að hafa aðgang að
ömmu sinni og afa, maður sér
það alltaf betur og betur eftir
því sem maður eldist.“
Sveitalífið kallaði
Árið 1993 var kominn bú-
skaparhugur í ungu hjónin sem
sáu framtíðina ekki alveg fyrir
sér í Reykjavík, það var alltaf
eitthvað sem togaði, sérstaklega
á vorin. Synirnir voru nú orðnir
tveir en Auðunn Ingi hafði
bæst við fjölskylduna árið 1989.
Þau voru svo heppin að geta
tekið býlið á Kolbeinsá 1, sem
er utarlega í Hrútafirði, á leigu á
móti afa og ömmu Ragnars og
gátu gengið inn í búskapinn
ásamt þeim. Þar bjuggu þau í
tvö ár eða þar til þau festu kaup
á jörðinni Kollsá 2 sem er þar
skammt frá. Þar búa þau enn í
dag og reka sauðfjárbú með 530
fjár. Árið 1996 fæddist svo
Það er notalegt að setjast niður og fá sér kaffi í Riishúsi. MYNDIR: FE
Inga á Kollsá í Feykisviðtali
Kappsöm kona
með mörg járn í eldinum
6 28/2017