Feykir


Feykir - 19.07.2017, Page 11

Feykir - 19.07.2017, Page 11
2 tsk. rautt vínedik salt og pipar blóðberg til skrauts Aðferð: Olíuskvettan er hituð í djúpri pönnu eða potti og niðurskornu beikoni og pylsum (t.d. pólskar kryddpylsur) bætt á pönnuna og steikt þar til beikonið er gyllt. Þá er kjötið tekið af pönnunni og laukurinn gljáður í olíunni. Því næst er tómatnum, vatni, kjötkrafti og baunum bætt út í og soðið í 10 mínútur (ef baunir eru forsoðnar). Beikoni og pylsum bætt út í og suðan látin koma upp á ný um leið og ediki og kryddi er bætt við eftir smekk. Skreytt með blóðbergi fyrir framreiðslu. Ef notaðar eru ósoðnar baunir (lagðar í bleyti daginn fyrir elda- mennsku) er suðutíminn töluvert lengri eftir að baunum hefur verið bætt í. Í stað grænna linsubauna má nota aðrar linsubaunir eða kjúkl- ingabaunir. Þessi réttur er einfaldur í allri gerð og býður upp á mikinn sveigjanleika í eldamennsku, eftir því hvað til er í skápunum og tilefni. Til dæmis má breyta áferðinni úr glás í súpu með því að leika sér að hlutföllum bauna og vökva og standi hugurinn til bragðmikillar matar- gerðar má auka við kryddið, t.d. með chili pipar. Eins og margir réttir sem eldaðir eru í einum potti þá bragðast hann ekki síður vel upphitaður. EFTIRRÉTTUR Rabarbarakaka með rjómaosti 100 g smjör 250 g sykur 1 dl mjólk 1 egg 1 dl rjómaostur 3 dl hveiti 1 tsk. lyftiduft 4-5 rabarbarastilkar Aðferð: Smjör og sykur þeytt saman, eggi bætt út í og hrært. Því næst er öllu öðru hráefni bætt í, utan rabarbaranum, og hrært. Deigið sett í eldfast mót og rabarbarabitum (2-3 cm) stungið ofan í deigið. Bakað við 175°C í um 50 mínútur. Í stað rabarbara má nota rifsber eða önnur súr ber, ef vill. Kakan er afar bragðgóð ein og sér og enn betri með þeyttum rjóma eða vanilluís. Erla Björk skorar á Guðmund Björn Eyþórsson sem næsta mat- gæðing. Verði ykkur að góðu! KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Ása, Svala, Gróa og Lilja. Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Feykir spyr... Ætlar þú að fylgjast með EM kvenna í knattspyrnu? Spurt á Facebook UMSJÓN palli@feykir.is Tilvitnun vikunnar „Fátt er jafnbrigðult og óstöðugt einsog hið elskandi brjóst, og þó er það sá eini staður í veröldinni þar sem til er samlíðan.” - Halldór Kiljan Laxness (Sjálfstætt fólk) „Nei, það ætla ég ekki að gera.“ Anna Margrét Geirsdóttir „Auðvitað fylgist ég með stelpunum okkar. Áfram Ísland!“ Helga Dóra Lúðvíksdóttir „Já, ég reikna með því! Verður maður ekki að styðja stelpurnar okkar í anda.“ Höskuldur B. Erlingsson Beitukóngur, sveigjanleg glás og rabarbarakaka MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN frida@feykir.is Þessa vikuna skyggnumst við í pottana hjá Erlu Björk Örnólfsdóttur, sjávarlíffræðingi og rektor Háskólans á Hólum. Erla hefur búið á Hólum frá því í maí 2012 og er nú að hefja sitt sjötta starfsár við háskólann. „Ég nýt búsetu á Hólum, umlukin tignarlegum fjöllum og fádæma veðursæld,“ segir Erla. „Uppskriftir þær sem ég deili eru mínar uppáhalds, en uppruni dálætisins er af nokkuð ólíkum toga. Aðalrétturinn, sem er orkuríkt vetrarfóður, og kakan eiga það sammerkt að vera árstíðabundin í matargerð og aðgengilegt hráefni á meðan erfiðara er að nálgast beitukóng til matreiðslu en hann er afar skemmtilegt hráefni. Beitukóngur er sæsnigill, sem finnst víða á grunnsævi, t.d. í Húnaflóa og Skagafirði, þó eingöngu hafi hann verið veiddur í Breiðafirði og þá til útflutnings. Verði þessi uppskrift einhverjum hvatning til að skella niður gildru og safna beitukóngi, þá væri það frábært. Það er dálítið maus að hreinsa beitukónginn, en vel þess virði,“ segir Erla. Matgæðingur vikunnar er Erla Björk FORRÉTTUR Kryddleginn beitukóngur á salatbeði 500 g beitukóngur (hreinsaður) 100 ml ólífu olía 80 ml hvítt basamic edik 20 g fersk basilika 8 hvítlauksgeirar ögn af sykri salt og pipar eftir smekk Aðferð: Til þess að ná 500 grömmum af hreinsuðum beitukóngi þarf töluverðan fjölda af beitukóngum. Beitukóngar sem eru um sex til átta sentímetrar eru þægilegri til meðhöndlunar en byrja þarf á að brjóta þá úr kuðungnum, t.d.með klaufhamri, og skera því næst innyflin frá bolnum. Búkur snigilsins er skolaður í vatni og því næst soðinn í 30-35 mínútur. Beitukóngurinn er skorinn í tvennt eftir suðu og kældur áður en hann er baðaður í kryddleginum. Öllu hráefni í kryddlöginn er blandað saman og hellt yfir beitukóngana og geymt í kæli í 2-3 tíma fyrir framreiðslu. Grænt salat hvers konar er gott með þessum rétti. AÐALRÉTTUR Glás með kryddpylsu og linsubaunum 2 msk. matarolía 360 g sterkar pylsur 150 g beikon 2 laukar 1 dós niðursoðnir tómatar 2 bollar vatn (eða eftir þörfum) kjötkraftur 800 g soðnar grænar linsubaunir úr dós 1 tsk. paprika Erla Björk. MYND ÚR EINKASAFNI „Með öðru auganu.“ Ingibjörn Öxndal Ninni 28/2017 11

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.