Þjóðólfur - 22.09.1941, Síða 3

Þjóðólfur - 22.09.1941, Síða 3
ÞJÓÐÖLFUR 3 '^,t,iiii,,,iiiiini*,*iiin,,iii,,**i*,,ii,,,,***,*,****,,i* ************** | DÆQURMÁL | ^iiiiiiiiiiiiiiiiiiniik. 9 9 0 iiiiiiiiiiiiiiiii,,iii**'c' Nazistar — eða kommúnistar Ekki alls fyrir löngu tekur Tíminn að ýfast á ný við útgáfufélagið Land- námu. Gefur blaðið í skyn, að helztu áhrifámenn í félagsskap þessum séu nazistar eða jafnvel kommúnistar. Meðal þeirra manna, sem þarna eiga hlut að máli, eru t. d. Ólafur Sveins- son sölustjóri, Árni Jónsson frá Múla, Jakob Frímannson kaupfélagsstjóri, Kristján Guðlaugsson ritstjóri, Ás- geir Ásgeirsson bankastjóri, Andrés Þormar gjaldkeri, Páll Isólfsson organleikari, Ragnar Ólafsson lög- fræðingur, Sigurður Nordal prófessor, Ragnar Jónsson fulltrúi og Ármann Halldórsson skólastjóri, svo að nefnd- ir séu helztu kommúnistarnir og naz- istarnir. . Hér hafa verið nefndir menn, sem allir telja sig til „þjóð- stjórnar“flokkanna þriggja, endaþótt Tíminn stimpli alla þá, er að útgáf- unni standa, sem kommúnista eða nazista. Jafnvel flokksmenn hús- bænda Tímans komast ekki undan nafngiftinni. Sannast hér átakanlega á Tímanum hið fornkveðna, ,,að ekki sér hann sina menn,“ svo að þeir verða að sæta af hans hálfu jafn til- efnislausúm árásum og aðrir. — Annars er það nú orðin aðalvörn í málum af hálfu Jónasar Jónssonar og nánustu sálufélaga hans, að and- stæðingarnir séu nazistar eða komm- únistar. Mun erfitt að benda á skýr- ari sönnun fyrir málefnalegu gjald- þroti þessa vogreks á fjörum is- lenzkra stjómmála. Hvað líður útgáfubókum Landnámu ? Vegna annarra lúalegra aðdróttana i garð Landnámu af hálfu Tímans spurðist Þjóðólfur fyrir um það, hvar komið væri heildarútgáfu félagsins á verkum Gunnars Gunnarssonar og fékk þessar upplýsingar: Sjálfævi- saga skáldsins, Kirkjan á fjallinu, er nú að mestu leyti fullþýdd. Eru tvö fyrstu bindin þegar komin i prent- smiðjuna og hið fyrra fullsett fyrir Framh. á 4. síðu. Hið íslenzka fornritafélag kemur út á morgun á 700 ára dánardegi SNORRA STURLUSONAR BóEtaverzlun Sigfúsar Eymundssonar W" Gerizt áskrifendur að Þjóðólfi. Afgr. Laugavegi 18. Nú er tímabært að kaupa Eddu Snorra Sturlusonar með skáldatali. Gignizt og lesið petta meistara- verk íslenzkra bókmennta. ^zTæsi í Bókabuð KRON Alþýðuhúsiitu f MEIRA EN HUNDRAÐ ÁR hefir WALL ROPE verk- smiðjan Iramieitt beztu kaðla og tóg, sem til eru ó heimsmarkaðinum. LONGEST ROPE WALK IN THEWORLD HOW'S ROPE R EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI AUSTURSTRÆTI 14 - SÍMI 5904 Umboðsmenn Djóðólfs | eru beðnir að endursenda nú þegar óseld eintök af 8. og 9. tbl. Þeir umboðsmenn, sem enn hafa ekki gert skil til blaðsins, eru beðnir_að gera það hið fyrsta. / Afgreiðslan, Laugavegi 18. sjáið þér, kjósendur góðir! að miklu varðar að kjósa vel ... Ég spyr yður: Viljið þið nú hafa fulltrúa, sem hugsa um engan hlut, taka til orða í engu máli, og gefa atkvæði sín beint út í loftið? Fulltrúa, sem líta helzt á það, hvern ávinning þeir geti sjálfir haft af atkvæðum sín- um? Fulltrúa, sem ekki þora að mæla í mitt hóf við höfðingj- ana ? Fulltrúa, sem ekkert hirða um hvað þér viljið, og sem helzt eru áfram um, að allt geti hald- izt í gamla horfinu. Eða viljið þér hafa fulltrúa, sem greind, framkvæmd og kjarkur er í? Fulltrúa, sem vita og finna, hvar skórinn kreppir að yður, og sem með gætni, en þó með djörfung og frjálslyndi vilja stuðla til þess, að heill og hagsæld yðar eflist í öllu? Það er að miklu leyti undir sjálfum yður komið, hvernig þjóðfundurinn reynist, hvort hann leggur á þau ráð, sem yður eru heillavænlegust eður ekki.“ 1 greinum þessum voru menn og hvattir til að gera sér í höf- uðdráttum grein fyrir skoðun- um sínum á málefnum þjóðar- innar, og kjósa sér fulltrúa með tilliti til þess. Segir, ,,að sá kjós- andi t. a. m. sem er sannfærð- ur um, að sú tilhögun, sem nú er á mörgum hlutum hjá oss, eldir einungis eftir af gömlum lögum og tilskipunum, og sam- svarar á engan hátt þörfum þjóðarinnar og kröfum tímans, heldur er einmitt fyrir það orð- in bæði hvumleið og óvinsæl, hann getur engan veginn verið ánægður með þann fulltrúa, sem álítur, eins og svo margir gjöra, að flest sé í svo góðu lagi hjá oss, sem það þurfi að vera, og getur þess vegna ekki fengið af sér, nema með deyfð og tregðu, að mæla fram með nokkrum breytingum eða bótum á gamla horfinu.“ IV. I fjórðu grein Þjóðólfs um þessi mál birtir blaðið skorin- orð stefnuatriði sín varðandi stjórnskipun landsins og sam- band þess við Danmörku. Eru þau á þessa leið: „Vér viljum í fyrsta máta, að ísland verði þjóðfélag út af fyr- ir sig á þann hátt, að það sé laust undan ölium yfirráðum hinnar dönsku þjóðar, en hafi aðeins konung hennar yfir sér; og skal hann sér í Iagi vera nokkurs konar sameiningarband milli Dana og íslendinga til bróðurlegrar vináttu og jafn- réttis í öllum viðskiptum, eins og hann Iíka skal vera miðill hins íslenzka þjóðfélags í öllrnn málurn, sem það kann að eiga saman að sælda við önnur ríki. Og vér viljum í annan máta, að þjóðfélag þetta fái stjórnar- bót, sem sé fólginn í innlendri ábyrgðarstjóm, er láti fulltrúa þjóðarinnar, kosna eftir frjáls- um kosningalögum, hafa lög- gjafarvaldið í höndum sér.“ Þegar hér var komið, voru stjórnarvöldin tekin að renna óhýru auga til Þjóðólfs. Og þeg- ar sett voru tvö næstu blöð, kom boð frá stiftsyfirvöldunum þess efnis, að þau vildu fá að sjá prófarkir af blaðinu, enda þótt slík krafa hefði raunverulega ekki við nein rök að styðjast. Ritstjórinn varð þó við kröfunni og fór með próförkina til stipt- amtmanns. Gaf hann jafnframt þá yfirlýsingu, að hann væri fús til breytinga, ef eitthvað kynni skaðlegt í henni að finnast. Svo leið vika án þess að rit- stjóri Þjóðólfs fengi frekari vitneskju um það, hvað í ráði væri með blað hans. En 20. febr. fékk hann bréf frá stiftsyfir- völdunum, þar sem þau kunn- gerðu honum, að blað hans yrði ekki að sinni prentað í prent- smiðju landsins. Jafnframt gáfu þau prentaranum, Helga Helga- syni til kynna, að hann mætti ekki prenta í prentsmiðjunni neitt það, sem þau hefðu ekki áður kynnt sér. Ritstjórinn birti þá auglýs- ingu í Lanztíðindunum þess efn- is, að blað hans væri ,,af hin- um háu stiptsyfirvöldum Islands sett undir yfirskoðun og því næst hindrað með öllu að sinni, án dóms og laga, frá því að mega prentast í prentsmiðju landsins." V. Lanztíðindin létu fylgja aug- lýsingu Sveinbjarnar miður góðgjarnlega klausu frá eigin brjósti, þar sem gefið var í skyn, að í Þjóðólfi mundi eitt- hvað hafa átt að birtast, er verið gæti „landinu skaðlegt, eða að minnsta kosti svo lagað, að það fremur spilli en bæti.“ Undir þessari lúalegu ásökun vildi Sveinbjörn ekki liggja. Ákvað hann þegar að bregða sér til Kaupmannahafnar, en það var ekki í lítið ráðizt á þeim tímum, og láta prenta blað sitt þar, svo að ljóst yrði, á hvaða rökum stöðvun blaðsins "væri byggð. — Bændur kringum Reykjavík skutu saman 100 rbd. upp í ferðakostnað haris og tveir menn lánuðu honum sína hundr- að dalina hvor, því að Svein- björn var blásnauður maður og hafði fyrir fjölskyldu að sjá. I prentsmiðju S. L. Möllers í Kaupmannahöfn voru síðan prentuð tvö tölublöð af Þjóðólfi, sem komu út saman undir nafn- inu ,,Hljóðólfur“. Flutti hann þær ritgerðir, sem stiftsyfir- völdin höfðu gert að endanlegri ástæðu til stöðvunar á blaðinu. Voru þær þessar helztar: Fram- hald greinaflokksins, Til kjós- endanna í vor eð kemur, 5. grein, frásögn af pereatinu og ávarp Sveinbjarnar Hallgríms- sonar, er hann flutti á Dóm- kirkjuloftinu að aflokinni messugjörð sunnudagimi 10. febrúar, þar sem hann lýsti vantrausti safnaðarins á presti sínum. VI. Útgáfa Þjóðólfs var stöðvuð fyrir þær sakir einar, að hann hélt einarðlega á íslenzkum mál- stað. Djarflegar kröfur blaðs- ins í sjálfstæðismálinu og skyn- samlega ritaðar hugleiðingar þess um kosningu manna til þ jóðfundar féllu st jórnarvöldum landsins ekki í geð, því að þeirra afstöðu réðu danskir hagsmun- ir. Fyrir því átti að koma blað- inu endanlega á kné og firra stjórnarvöldin frekara ónæði af hálfu þess. Blað, sem íslenzkur maður stjómaði, fékkst þá, eins og stundum síðar, til að taka mál- stað hins erlenda valds gegn ís- lenzka málstaðnum. Eftir heimkomu Sveinbjarnar létu stiftsyfirvöldin niður falla bann sitt við útgáfu Þjóðólfs, og var blaðið prentað í prentsmiðju þeirra. Óx gengi þess með hverju ári, sem leið,ogbarþaðumlangt skeið höfuð og herðar fyrir önnur íslenzk blöð. Mestur varð vegur þess undir stjórn Jóns Guðmundssonar fyrrum sýslu- manns, og gerði hann blaðið að stórveldi í íslenzkum stjórnmál- um. Má vera, að nánar verði frá því sagt síðar. V. J.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.