Þjóðólfur - 16.02.1942, Qupperneq 4
4
«3
0<3Z>03<32>00<3Z>00<ZZ>OD<2í>QOCZ£>0
g
| Dægurtnál
@
o0CS>00C5Z>0 0<32>00<3S>0
Vertíðin.
Ögæftir hafa mjög hamlað sjó-
sókn í verstöðvunum hér við
Faxaflóa það sem af er vertíð.
En þá sjaldan, að á sjó hefur
gefið, hefur afli reynzt lítill. Til-
kostnaðurinn við útgerðina hefur
aukizt allmikið frá því sem var
á síðustu vertíð. Verðið á fiskin-
um er hinsvegar allmiklu lægra
en var í fyrra, En það var ákveð-
ið í hinum alræmda fisksölusamn-
ingi, sem gerður var í sumar. Það
blæs því engan veginn byrlega
fyrir smáútvegimun, en vonandi
er, að úr rætist um gæftir og
afla það sem eftir er vertíðar-
innar.
Verður slökkt á vitunum?
Frá vitamálastjóra hefur blað-
inu borizt svohljóðandi tilkynn-
ing:
1. Leiðarljósin við Stykkishólm
hafa verið kveikt á ný.
2. Vegna hemaðaraðgerða getur
nú komið fyrir hvenær sem er
að slökkt verði á vitunum,
fleiri eða færri, hvar sem er
á landinu, fyrirvaralaust. Allir
sjófarendur eru því aðvaraðir
um að treysta ekki eins og áð-
ur á neinn vita, heldur taka
með þann möguleika að vitinn
logi ekki (sendi ekki). Engar
útvarpstilkynningar verða gefn-
ar út um slíkar reksturstrufl-
annan hátt að búast megi við
langvarandi rekstursstöðvun.
Lengsta þingið.
Ölafur Thors skýrði frá því í
áramótahugleiðingu sinni, að vor-
þingið 1941 hafi verið „lengsta
Alþingi, er hér hefur háð verið’ .
Afrek þess þykir honum „eigi
fært og heldur ekki nauðsynlegt
að rekja.” Segir hann þó, að
lausn þess í sjálfstæðismálinu sé
því ærið nógur vegsauki þótt ekk-
ert kæmi til annað. — Þingið
hefur nú leitt yfir sig slíka ó-
virðing, að einsdæmi mun vera
í sögu löggjafarþinga. Hníga þar
til mörg rök, en þó eigi sízt að-
gerðarleysi þess og hundsleg
þægð við hina pólitísku ofríkis-
menn. Öll þjóðin veit, að lengst
af þessu langa þingi, vom þing-
menn raunverulega aðgerðarlaus-
ir. Hefur verið gefin glögg og
óljúgfróð mynd af þinghaldinu
hér í blaðinu með eftirfarandi
orðum: „Þorri þingmanna ráfuðu
um lengi framan af þingi, verk-
lausir eins og umkomulitlir nið-
ursetningar í húsakynnum Al-
þingis, leiðir, nöldrandi og engu
fróðari en maðurinn á götunni um
það, hvað væri að gerast í af-
kimum stjórnmálanna”. — Það
verður rætt allítarlega í næstd
blöðum Þjóðólfs, hve hag og virð-
ingu Alþingis er nú aumlega kom
ið. Verður þetta því látið nægja
að sinni.
Vill ekki kosningar.
I áramótagrein sinni fer Ölaf-
ur Thors ekki dult með það, að
honum sé ógeðfelt að hugsa til
almennra kosninga á næsta vori,
enda hefur Mbl. oftar en einu
sinni tjáð þann vilja hans síð-
ustu mánuðina. — Ólafi farast
orð á þessa leið: „....verði kos-
Þeir, sem eru áskrifendur að
riti dr. Jóns Dúasonar, Landkönn-
un og landnám íslendinga í Vest-
urheimi, hjá mér, eru vinsamlega
beðnir að vitja 3. og 4, heftis,
sem nýlega eru komin út.
Valdimar Jóhannsson.
ið næsta vor, en á því eru nú
helzt horfur, er hætt við, að
margir telji að annað tveggja sé
að enginn nauður hafi rekið til
að fresta kosningum síðastliðið
vor, eða að óhæfa sé að tendra
nú — eftir að ógnir styrjaldar-
innar hafa færzt svo miklu nær
okkur, — kosningabálið, og láta
það loga fram á mift næsta ár,
og ef til vill sníða sundur þau
tengsl, er að undanfömu hafa
hnýtt saman óskyld öfl”. — ölaf-
ur Thors mun hafa tvíþætta á-
stæðu til að ókyrrast við tilhugs-
unina um almennar kosningar.
Annars vegar óttast hann að hiti
kosningabaráttunnar muni „svíða
í sundur” kærleiksböndin, sem
hafa tengt hann við Jónas Jóns-
son frá Hriflu. Hins yegar mun
hann kjósa margt annað hlut-
skipti sér til handa fremur en
að ganga fyrir bændur í nágrenni
Reykjavíkur og útvegsmenn suð-
ur með sjó og beiðast kjörfylgis
þeirra.
Hnútur til þingsins.
Ölafur Thors sendi Alþingi
kaldar kveðjur í áramótagrein
sinni í Mbl. Áður ér vikið að um-
mælum hans um „lengsfa þingið’.
— Síðar í greininni farast hon-
um orð um haustþingið síðasta
á þessa leið: „.... lyktaði með
því, að þingið var kvatt saman
til að ganga frá nýrri löggjöf í
dýrtíðarmálunum. Fór þar allt
verr en til var stofnað. Náðist sem
kunnugt er ekkert samkomulag
um lausn málsins og lauk þingi
svo, að á því var ekkert aðhafzt,
er að gagni mætti verða” (,letur-
br. hér). — Auðvitað er þessi
lýsing rétt. En það verður naum-
ast talið viðeigandi úr þessari
átt, að svo mjög sé fjölyrt um
hið átakanlega, umkomuleysi
þingsins. Ber tvennt til. Annars
vegar það, að Ölafur hefur sjálf-
ur fjölyrt um skort „mannsins
á. götunni” á tilbærilegri virðingu
fyrir Alþingi. Situr því sízt á
honum að varpa hnútum til þings
ins. Hin ástæðan er sú, að Ölaf-
ur er sjálfur einn aðalmaðurinn í
því pólitíska tafli, sem breytt
hefur löggjafarsamkundunni í
mangarabúð hinna ófyrirleitnustu
pólitísku braskara, sem stjórn-
málasaga vor kann frá að greina.
„Ytra tákn”.
Um núverandi ríkisstjóraem-
bætti segir Ólafur Thors á þessa
leið í áramótahugleiðingum sín-
um: „Af ytri táknum sjálfstæð-
is hefur ísland á þessu ári eign-
azt sinn fyrsta ríkisstjóra og hef-
ur sú nýskipan að allra dómi gef-
izt prýðilega”. •— Sannleikurinn
er sá, að meðal almennings til-
heyrir ríkisstjóraembættið, í þvi
formi, sem það er nú, hinu bros-
lega. Meðan æðsti maður þjóðar-
innar átti setu í öðru landi og
var þar að auki erlendur kon-
ungur, leiddu menn lítt að því
huga þótt þessi persóna væri að-
eins „ytra tákn”, valdalaus
„toppfígúra”, sem virtist eiga
harla litlu hlutverki að gegna í
<><><><>•<><><><><><>0000000
“Goddard’s’
Silfurduft
Silfurþurrkur
Húsgagnagl j ái
Glugga og
Speglalögur.
^ Aðalumboðsm.: S
Stlagnils Th. S, Blöndahl h.íi
ooooooooooooooooo
ATHUGIÐ. Gúmmíviðgerð-
ir fáið þið beztar í Gúmmí-
skógerð Austurbæjar, Lauga-
vegi 53B, sími 5052. Munið
ennfremur okkar ágætu is-
lenzku gúmmívörur, svo sem
skó, lím, belti, hanzka, hæl-
hlífar, gólfmottur og inniskó,
sterka og ódýra. Gúmmískó-
gerð Austurbæjar.
stjómskipun landsins. En síðan
„táknið” var flutt inn í landið
hafa menn ekki lengur getað
lokað augunum fyrir því, hve
skopleg er aðstaða þeirra manna,
sem hér uppi á Islandi eru sett-
ir í spor hins erlenda konungs.
Er og áreiðanlegt, að allur þorri
manna á Islandi hafa unnað syni
kempunnar Björns í Isafold miklu
betra hlutskiptis en þess, að vera
þýðingarlaust , ,ytra tákn”. —
Með nýrri skipan í stjómarfars-
málum vomm verður væntanlega
gerð á breyting um aðstöðu
æðsta manns þjóðarinnar, þannig
að hann verði ekki gerður skop-
legur í augum almennings með
því að vera tilefnisla.ust „ytra
tákn” meingallaðrar stjómskip-
unar.
„Naglasúpa”.
Áramótaummæli Ölafs Thors
um fisksölusamninginn þykja
minna nokkuð á ánægju kerling-
arinnar með naglasúpuna. Um
samninginn segir Ölafur: „Mun
hann reynast hagkvæmur og
verða vinsæll”. Verði Ölafi að
þessari spá — sem óskandi væri
— verður ástæðanna að leita í
þeim breytingum, sem fengizt hafa
og fást kunna á samningnum.
Á sama hátt áttu gæði naglasúp-
unnar rætur sínar í því, sem til
hennar var lagt umfram naglana
og vatnið.
„Happaverk”.
I áramótahugleiðingu í Morg-
| unblaðinu 31. des. segir Ölafur
Thors um samstarf sitt við Jónas
IJónsson frá Hriflu, að ekki verði
„um það deilt, að það var hið
. mesta happaverk”, — Almenn-
ingi mun þó virðast sem lítil
höpp hafi stafað af kaupskap
Höium fyrirliggjandi
ýmsar fegundír af efnívörum fíl skósmíða,
Leðurverzlun
Magnúsar Víglundssonar
6rarðasfrœfí 37. Símí 5668.
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
V
0
0
0
0
$
Þegar þér þurfíð að haekka brunafry$$~
ín$u á eí$um yðar, ínnansiokksmunum,
vörubír$ðum o$ öðru, ve$na verðhækk*
unarínnar, aeffuð þér að kaupa hækk~
unarfry$$ín$una hjá bandaríska íry$$ín$a«
féla$ínu FIREMEN'S INSURANCE COPANY,
enda heímílf að jafna áhæffu níður á
fleírrí en eífí féla$.
Fivemen's Insuvanc Copany
Of Newark, New Jersey
Aðalumboð fyrir fsland:
Carl D, Tulíníus & Co. h.f,
Ausfursfræfí 14, Reykjavík, símí 1730
0
0
0
0
o
§
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
1
s
0
0
0
0
0
SI6LINGAR
milli Breplands og Islands halda áfram
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip x förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Cuffíford & Clark Lfd.
sem jafnframt er bókarastaSa viS SparisjóS Reykjavíkur
og nágrennis, er laus til umsóknar frá 1. apríl n. k. aS
telja,
Byrjunarlaun kr. 6000,00, hækkandi i kr- 7800,00 auk
dýrtíSanippbótar.
Umsóknarfrestur til 25. þ. m. Umsóknir sendist til
SparisjóSs Reykjavíkur og nágrennis á Hverfisgötu 21.
þeirra félaga. Samt hefur Ölafur
nokkuð til síns máls. Samstarifð
heur reynzt hið mesta happaverk
— fyrir Kveldúlf.
ooooooooooooooooo
Þjóðólfur kemur næst út á
föstudaginn.
>oooooooooooooooo<