Þjóðólfur - 22.06.1942, Side 4
ÞIOBOIFÐR
HUSNÆÐISVANDAMALIÐ
Eg held að valdhafar ríkis og bæja
hafi ekki gert sér það nægilega ljóst.
hversu húsnæðisvandræðin eru orðin al-
varlegt vandamál. Tugir fjölskyldna hafa
svo að segja hvergi höfði sínu að að halla,
fjöldi manna býr í íbúðum, sem ekki er
hægt að nefna mannabústaði, og -— það
sem ekki er sízt alvarlegt — ungt fólk víl-
ar fyrir sér að stofna heimili, 'vegna skorts
á húsakynnum. Heill þjóðarinnar krefst
úrbóta í þessu máli. Heilsusamlegar íbúð-
ir eru eitt meginskilyrði þegna í nútíma
þjóðfélagi.
NÝJAR BYGGINGAR
Pað hefur nú fregnast að fyrirhugaðar
séu ýmsar stórbyggingar. Undanfarið
hafa verið byggðar margar og dýrar lúx-
usvillur og nokkur stórhýsi fyrir kaup-
sýslufyrirtæki. Þetta er allt gott og bless-
að ef — byggingar íbúðarhúsa væru næg-
ar. Fyrst verðum við að hugsa um það,
sem nauðsyn krefur og síðan um það,
hvað við getum Jeyft okkur. Eg er ekki i
neinum vafa um það, að bygging heilsu-
samlegra og hagkvæmra íbúðarhúsa á
að ganga fyrir skrauthýsum og ýmsum
húsabáknum, sein nú eru fyrirhuguð
Það er heldur ekki víst, hversu mikið
byggingarefni verður mögulegt að fá
hingað til lands á meðan stríðið geisar,
ekki sízt ef við bruðlum með það.
FRJÁLST BLAÐ
Þjóðólfur er og á að vera frjálst blað.
IJað vill afnema flokkspólitíkina. Stéttar-
flokkar eiga rétt á sér innan vissra tak-
marka, en ekki sem ofbeldisflokkar.
— Þjóðólfur er ekki háður neinu öðru
en réttlætisvitund sinni. Hann vill beita
áhrifum sínum til hags fyrir þjóðarheild-
ina. — Eigum við ekki að gera Þjóðólf að
dagblaði, útbreiða hann, auglýsa í hon-
um og styrkja hann? — Nú skal tekið til
starfa í því augnamiði að vinna Jandi óg
þjóð.
t
HVORT VILTU?
Viltu atkvæðamikil stéttafélög, er hafi
þó ekki völd í landsmálum, eða viltu á-
framhaldandi stríð milli stéttaflokka og
flokksforingja — sem leitt hefur til al-
gerðs einræðis í mörgum löndum?
Viltu trausta stjórn, sem er óháð
stéttaflokkum, eða viltu að pólitísk
flokksstjórn ráði yfir ríkissjóði?
Viltu sækja fram með hag allrar þjóð-
arinnar fyrir augum, eða viltu berjast
fyrir nokkurn hluta hennar?
Viltu fylkja þér með þeim mönnum,
sem óska eftir óháðri þjóðkjörinni lands-
stjórn eða viltu verja hagsmunavirki
flokkaforkólfanna?
STEFNAN
Rifjum upp fyrir okkur nokkur megin-
atriði ur stefnuskrá þjóðveldismarina.
1. ísland verði frjájst og fullvalda ríki.
2. Þjóðerniskennd, sjálfsvirðing og á-
byrgðartilfinning einstaklingsins sé efld
og þroskuð.
3. Framtak og frelsi einstaklingsins
verði verndað og styrkt, þar sem það
brýtur ekki í bága við hagsmuni þjóð-
arheildarinnar.
4. Kosningum til þings og stjórnar verði
hagað þannig, að þjóðarheildin eigi ör-
ugga fulltrúa á Jöggjafarþingum og um-
boð almennings verði fremur falið inönn-
um en flokkum.
5. Stjórn Iandsins verði traust og stjórn-
hæf.
6. Stofnað verði réttarríki heildarinn-
ar í stað ofbeldisríkis flokksrrieirihluta.
7. Vísindi og tækni verði lögð til grund-
vallar við atvinnuvegi þjóðarinnar, og
forðazt se að kæfa sjálfsbjargarhvötina
með of háum sköttum,
Huginn,
Mánudagurinn 22. júní.
EFST Á BAUGl
Framhald af I. síðu,
ingu við anda ritfrelsisins. Það
á að vsra hverjum og einum
í sjálfsvald sett að túlka sltoðanir
sínar á opinberu færi, svo íremi,
að það sé ekki hættulegt öryggi
ríkisins eða brjóti í bága við al-
mennt borgaralegt velsæmi. Blöð-
in eiga að vera sá vettvangur,
þar sem mönnum sé frjálst að
ræða skoðanir sínar og hugðar-
efni innan J>ess ramma, er gild-
andi lagafyrirmæli setja.
tennan rétt vill íslen/.ka þjóðin
áreiðanlega ekki framselja enda
þótt „félagi” Stalin kunni að
leggja þar á strangan varnað í
sínu landij að menn fái óátalið
að hafa aðrar skoðanir en þær,
er hann „löggildir”, hvað þá að
gera grein fyrir þeim í blöðum.
ÓKYKKÐ I HERBÚÐUNUM
Sltáldsagan um áhættuþóknun-
ina og önnur áhka skynsamleg á-
reitni Þjóðviljans í garð Þjóð-
veldismanna, gefur vafalaust til
kynna eðlilega ókyrrð í herbúð-
um Sameingarflokks alþýðu —
ekki Kommúnistaflokksins. Við
*
bæjarstjórnarkosningarnar hér í
Reykjavík óx fylgi flokksins veru-
lega frá því, sem var í síðustu
Aljiingiskosningum. En Jiað mun
öllum ljóst, og engum fremur en
„sameiningarmönnum” sjálfuin
að þetta fylgi var ekki flokks-
fylgi ncma að nokkru leyti. Það
er engum vai'a undirorpið, að í
þeim kosningum köstuðu ýmsir
atkvæðum sínum á lista þessa
flokks til þess eins að tjá andúð
sína á stjórnmálastefnu þjóð-
stjórnarinnar, án jæss að þeir
hefðu minnsta áhuga fyrir því,
livaða „línur" menn á borð við
Brynjólf Bjarnason kynnu að
sækja til Moskva.
„Sameiningarmenn”' munu ótt-
ast, að það sé tiltölulega þuun-
skipuð fylking, er telur að þeir
séu „það, er koma skal”.
X + Y
Áratugum saman heíur Jónas
Jónsson frá Hriflu skrifað í Tím-
ann undir merkinu x + y. Á laug-
ardagsmorguninn var birtist í
Morgunblaðinu grein undir jiessu
merki. Hún er byggð- á álíka rök-
hugsun og langhundar [icir, sem
J. J. skrifar í fjölskyldublað sitt
nú síðustu árin.
HVAR HAFA ÞESSIK
MENN SKIPAÐ SÉR?
Blöðin, scm þjóna einka-
hagsmununum, eru að skeggræða
um j»að, í lnaða flokka þessi
„sundurleita lijörð” muni áður
hal'a skipað sér og hvaðan Þjóð-
veldismenn megi vænta kjörfylg-
is. Blöðin geta verið þess full-
viss, að augu manna í öllum flokk
um eru farin að opnast fyrir J>eim
staðreyndum, sem Þjóðveldismenn
vekja athygli á. Má því óhætt
fullyrða, að kjörfylgi þeirra
komi frá öllum jieim flokkum, cr
fyrir eru í landinu. Tjáir hinum
múlbundnu flokksblöðum þar ekki
um að sakast. Þau sanniiuli stamla
óhrakin, að cldii er unnt að
blekkja nema lítinn hluta munna
um alla tíð. Þess vegna yfirgefa
menn nú þá flokka, sem byggt
hafa allt sitt starf á hrakleg-
um blckkingum.
Foríngí Sjálfstœdísflobksíns
er fangí ílóvínaherbúðum
Bréfabók Þjódólfs
Framh. af 2. síðu.
leiðinga og athugasemda. Rétt er að taka
það fram, að sérleyfishafarnir á þessari
leið hafa lagt sig fram um það, að vanda
til farartækja og manna. Má með sanni
segja að bílstjórarnir eru nær undantekn-
ingarlaust traustir menn og röskir og að-
dáanlega þolinmóðir. — Samt sem áður
er þessi 16 tíma ferð með tilheyrandi sjó-
veiki, bílveiki og hörkuáframhaldi alla
leið í náttstað, enginn barnaleikur. Eina
verulega hvíldin er á Blönduósi, þar sem
staðið er við í klukkutíma og matast. Og
þar sem ferðum þessum er svo háttað,
að hvergi annarsstaðar á leiðinni er fá-
anlegur miðdegisverður handa svo mörg-
um mönnum, eru miklar kröfur gerðar
til þessa greiðasölustaðar í skólahósinu á
Blönduósi og veitingamanninum um leið
sköpuð alger einokunaraðstaða.
Eg ætla^nú að segja yður, ritstjóri góð-
ur, eina mjög dapurlega matarsögu frá
þessum stað. Eg var á norðurleið ásamt
mörgum öðrum ferðamönnum 19. f. m.
Matseðillinn á Blönduósi þennan dag
hefði átt að hljóða á þessa leið:
Súpa (án næringargildis og án matar-
bragðs).
Kjöt (orðið kalt).
Kartöflur (engar).
Kaffi (sem láist að bera fram).
Verð: 5 krónur.
Rétt er að taka það fram, að gestirnir
munu hafa gleymt að signa sig að mál-
tíð lokinni og gerðist kurr mikill í liðinu.
Bölvuðu meim gestgjafanum og báðu
hann aldrci þrífast. Verða slík ofurmæli
laus á tungunni þegar illa er búið að
munni og maga í þessum ferðum. Og
þótt þau verði máske ekki að áhrínsorð-
um, þá er það víst, að þrif þessa veit-
ingamanns og orðspor það, er hann get-
ur sér, vcrður í réttu hlutfalli við skilning
hans sjálfs á þeim skyldum, sem einok-
unaraðstaða hans á þessari leið hefur
skapað honum. — Og því skal hér lofað,
að ef góð umskipti hafa orðið á mat og
framreiðlsu næst þegar ég verð þar á
ferð, skal eg aftur senda yður línu, því
svo skal lofa mennina, sem það er vert.
Fer&amaður.
Leiðrétting.
I greininni ,,Vaxtarkröfur æsk-
unnar” í síðasta blaði misprent-
aðist í upphafi greinarinnar: ,,Við
hlið þróttugra skóga”, en átti að
vera: Við hlið þróttugra trjáa.
Skrlfstofa
Framhald af 1. síðu.
i ngjaklíku F ramsóknarf lokksins
öll raunveruleg völd í Jýjóðfélag-
ínu fyrir ráðherrasæti sitt. Sam-
bandinu var seld verzlunin ,,á
leigu“ gegn því, að Kveldúlfi
yrði tryggt fjárhagslegt sjálfstæði.
* *
*
Sjálfstaeðisflokkurinn stendur
mjög höllum fæti að reisa rönd
við þessari óvæntu og vel hugs-
uðu sókn. Flokkurinn virðist ekki
hafa á að skipa hæfum mönnum
til forustu. — A framboðslista
flokksins hér í Reykjavík er Magn
ús Jónsson í efsta sæti, maður,
sem flokksmenn eru orðnir mjög
ófúsir að veita brautargengi. I
öðru sæti er hinn heilsubil-
aði þrekleysingi, sem Olafur
Thors tók með sér í þjóðstjórn-
ina. í þriðja sæti er Bjarni borg-
arstjóri, sem er aðeins þægt verk-
færi í hendi ,,fjölskyldunnar“.
Auk þess þykir ekki stjórn hans
á málefnum bæjarins með þeim
hætti, að líklegt megi þykja til
kjörfylgis. í fjórða sæti — von-
lausu sæti — er Sigurður Kristj-
ánsson. Hann er tvímælalaust
hæfastur þessara manna til að
sinna almennum málum. Flokks-
íorustan ætlaði að sparka honum
af listanum að fullu, og flæma
hann síðan úr flokknum. Orsökin
er sú, að hann þykir tiltölulega
sjálfstæður í skoðunum, og hef-
tyr ekki sýnt Kveldúlfi blinda
fylgispekt. Þannig er unnið að
því markvíst og á áhriíaríkan
hátt, að Sjálfstæðisflokknum
megi ekki auðnast að snúa aftur
heim úr herleiðingunni lil höfuð-
stöðva óvinanna.
Blaðakostur Sjálfstæðisflokks-
ins er í eigu einstakra manna, og
hefur flokkurinn engin ráð yfir
honum. •— Auk þess virðast þau
kynlegu álög vera á þessum blöð-
um, að þau geti aldrei fengið
sendibréfsfæran mann í þjónustu
ooooooooooooooooo
Kfósíd
E~lisfann!
Þfóðveldlsmanna
Þjóðveldismenn hafa opnað skrifstofu á Skóla-
vörðustíg 3, miðhæð.
Stuðningsmenn E-listans!
Hafið samband við skrifstofuna. Veitið henni
aðstoð yðar.
Verum samtaka til sigurs réttum málstað!
Váfryggíngarskrífsfofa
Sígfúsar Síghvafssonar
er fluft
úr Lækjargötu 2 í Lækjargötu 10B, uppi.
<"H^'!“>^<">w^''>'K“K»>'K'<,*>^K“K">'K»KK":“K“K":“K"K“K'<H
sína. Það mun mega telja til tíð-
inda, ef starfslið Morgunblaðsins
getur ritað smáfrétt, án þess að
misþyrma fleslum höfuðreglum
þjóðtungunnar. Stjórnmála leið-
arar“ blaðsins minna fremur á
vanmáttugar tilraunir skóla-
drengja til rökræðna, en rithátt
og málsmeðferð vitiborinna
manna.
Blaðið hefur með þessu skapað
sér slíka lítilsvirðingu, að ekki er
svo innlendur skopleikur settur á
svið í höfuðstaðnum, að þar sé
ekki mjög eftirminnilega skopazt
að þessari augljósu niðurlægingu
blaðsins.
# *
*
1 þessari kosningabaráttu láta
ýmsir vinnumenn Sambandsins
& Kveldúljs innan Sjálfstæðis-
flokksins í það skína, að nú sé
barizt til úrslita við kúgunar-
stefnu Framsóknarvaldsins í
landinu. Þetta má til sanns vegar
færa, þótt nokkuð sé því á ann-
an veg háttað en Morgunblaðið
vill vera láta. Það er látið halda
því fram dag eftir dag, að úrslit-
in í þeirri baráttu, séu undir því
komin, að menn fylki sér fast um
lista þann, er miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins ber fram hér í höfuð-
staðnum. En því er alveg gagn-
stætl íarið. Ef menn fylkja sér
um þann lisla eins og endranær,
er það tjáning þess, að þeir láti
sér vel líka, þó að foringi and-
stöðunnar gegn kúgunarstefnu
Framsóknarforingjanna sé her-
fangi andstæðinganna. Átökin í
þessum kosningum eru ekki milli
Olafs Thors og Jónasar Jónsson-
ar. Það verður bezt markað af
því, að J. J. tekur nálega engan
þátt í þessari kosningabaráttu. Og
sérstaklega varast hann að mæla
styggðaryrði í garð Kveldúlfs. —
Það er ekkert launungarmál, að
hann beitti sér gegn því eftir
mætti, að Framsóknarflokkurinn
byði fram á móti Ólafi, enda réði
Ólafur því, að ekki skeleggari
andstæðingur en sýslumaðurinn á
Húsavík var sendur til framboðs
móti Jónasi. Morgunblaðið er lát-
ið snúa allri sinni kosningasókn
gegn' Þjóðveldismönnum. Það á
vissulega að ryðja úr vegi öllum
hugsanlegum hindrunum á sam-
starfi Jónasar og Ólafs að kosn-
ingunum loknum.
Fylgi Þjóðveldismanna í þess-
um kosningum sker úr um það,
hvort óöld Hriflumennskunnar á
að hefjast á ný. Þó að þeir bjóði
ekki fram annars staðar en í
Reykjavík, verður fylgi þeirra
skoðað sem mælikvarði á það,
hvort kjósendur Sjálfstaeðisflokks-
ins, er gefið hafa honum atkvæði
sín í von um að hann héldi uppi
andstöðu gegn kúguninni, rang-
sleitninni og ofbeldinu, láta sér
vel líka, að foringi flokksins sé
herfangi andstæðinganna. Ef kjós
endurnir treystu foringja, sem svo
er ástatt um, fyrir málstað sín-
um, munu þeir gefa lista Magnús-
ar Jónssonar og Bjarna Ben. at-
kvæði sín á kjördegi. Telji þeir
hins vegar, að efla verði ný og
heilbrigð samtök til að halda uppi
merki mannréttinda, frelsis, rétt-
lætis og drengskapar á Vettvangi
þjóðmálanna, munu þeir skipa
sér í sveit Þjóðfveldismanna.
Kjósið E-listann-lista Þjóðveldismanna