Þjóðólfur - 06.09.1942, Page 3
3
.I..I | m —irnmma
þó eru góðir eins langt og þeir
ná.
* * *
En það er ekki aðeins unga
konan, sem þarf að fá sér-
menntun og verulega hagnýta
menntun. Hiö sama gildir um
hina ungu sveina þjóðarinn-
ar. Þeit þurfa að læra, ekki
aðeins hinar almennu fræði-
greinar, sem kenndar eru í
öllum skólum, heldur fyrst og
fremst allt það, sem gerir þá
að duglegum og ráðsettum
mönnum, kennir þeim að fara
vel með tíma sinn og eigur,
kennir þeim að spara, lifa
reglubundnu og hirðusömu
lífi. Þeir þurfa að læra prúð-
mennsku, kurteisi, snyrti-
mennsku, ráðdeild og allt
það, sem gerir þá fyrst og
fremst að eftirsóknarverðum
mannsefnum, slíkum sem
ungu stúlkurnar geta ekki án
verið, ekki aðeins kvöldstund,
heldur ævilangt. Slíka sér-
menntun þarf að gefa bæði
ungum körlum og konum, ef
draumur þeirra á að geta
rætzt á hinum heppilegasta
tíma ævi þeirra, og með þess-
ari sérmenntun er þá um leiö
stefnt að því, að leysa at-
Vinnuvandamálið. Piltarnir
geta unnið búðarstörfin,
bankastörfin og skrifstofu-
störfin. Látum ungu stúlkurn
ar vera elskulegar konur
þeirra. Þær vilja það gjarnan,
þótt þær fari stundum dult
með þetta, og um piltana þarf
ekki að spyrja. Þeir eru aldrei
nema hálfir menn, konulaus-
ir. Æskulýöurinn þarf að geta
gift sig og stofnað heimili, þeg
ar á unga aldri. Þetta er alla
vega mikilvægt fyrir þjóðfé-
lagið, ekki síður en einstakl-
ingana. Ungum mönnum þarf
aö greiða svo gott kaup, að
þeir geti gift sig og tekiö aö
sér heimili. Það er óhæfa, að
jafnvel hinar sterkustu stofn-
anir þjóöfélagsins skuli bjóöa
ungum og útlæröum mönn-
um svo lélegt kaup, að ger-
samlega sé útilokað að þeir
geti gift sig og stofnaö heiln-
ili. Slíkt er óþarfi, en engin
sparnaöur. Þetta er aðeins af
skammsýni sprottiö.
VANRÆKSLA þjóð
félagsins í þess
um efnum er
ein þess stærsta synd. Hefnd-
in kemur í ljós, eins og áóur
er sagt, í gífurlegri sóun dýr-
mætrar lífsorku æskunnar,
skemmtanabrjálæðinu og alls
konar félagslegum meinsemd-
um, jafnvel „ástandi“ þegar
svo ber undir. — Hafið þið
ekki tekið eftir því, tilheyrend
ur mínir, hversu ungir menn
verða jafnan ráðsettari, spar-
samari og gagnlegri þegnar
þjóöfélagsins, þegar þeir eru
orönir eiginmenn og vfeöur?
Þá er ekki eins ákaft hlaupiö
eftir fánýtum og siðspillandi
skemmtunum. Nei, áhuginn
snýzt þá um allt annað. Unga
manninn langar til að hlúa
sem bezt að heimili sínu, geta
gefið konunni sinni eitt og
annað, og þetta gerir hann
að duglegri og betri manni.
Eða unga stúlkan? Þegar hún
er orðin kona og móðir, þá
strjálast hlaupin á böllin.
Þá er starfsgleð'i komin 1 stað-
in fyrir saltvatn hins lélega
og taumlausa skemmtanalífs,
og með þessu móti læknast
meinin bezt. Hér meö er eltki
sagt, að gift ungt fólk hætti
að taka þátt í skemmtunum,
en þá er komih hófsemi í
skcmmtunum í staðinn fyrir
skemmtanabrjálæðið. Og þetta
skiptir miklu í þjóðaruppeldi.
* * *
Með slíkum vitm’legum* aö-
gerðum frá þjóðfélagsins
hálfu, er lætur bar með
draum æskunnar rætast, er
unnið margt í einu: Þar með
er dregið mjög úr skemmtana
brjálæðinu, komið 1 veg fyrir
alls konar lausung, greitt tölu
vert úr atvinnuleysisvanda-
málinu, dregið nokkuð úr
drykkjuskap og allri slíkri ó-
reglu, komið verulega í veg
fyrir gálauslega eyðslu, iðju-
leysi og slæpingshátt, aukið
mjög á festu og heilbrigöi
þjóðfélagsins, og síðast en
ekki sízt kemur sönn vinnu-
gleði í staöinn fyrir gervigleði
skemmtanahringiðunnar. Og
starfsgleöin — vinnugleðin —
er í raun og veru sú eina
gleði, sem varanleg er í einum
manni, sem verða að vinna
og hafast aö. Jafnvel hinn böl
sýni prédikari segir: „Þannig
sá ég, að ekkert betra er til
ÞJÓÐÓLFUJ^
verk sín“. Störf manna eru
þeirra daglega líf, og lífsham-
ingjan er í því fólkin, að maö-
urinn geti verið daglega glað-
ur við verk sín. En slíku tak-
marki verður bezt náð með
því að efla sjálfstæði og sjálf-
foráð manna, heilbrigt fjöl-
skyldulíf og velja körlum og
konum þegar á unga aldri
þau störf, sem hverjum einum
hentar bezt. Þarna á sálar-
fræðin og uppeldislistin að
koma til greina og vinna hiö
þýðingarmikla verk í þjóð-
félaginu. Það er afarmikil-
vægt, að hver og einn hljóti
það starf, er honum hentar
’bezt og skapar vinnugleöinni
bezt skilyrði. Viðvíkjandi ungu
kvenþjóðinni ætti valið ekki
að verða erfitt, því að festum
heilbrigðum konum mun láta
bezt það lífsstarf, að sýsla um
snoturt heimili og uppfylla
köllun húsfreyjunnar og móð-
urinnar. Þó ber að gera ráð
fyrir, að til kunni að vera
konur sneyddar þessu kven-
eðli, og að sjálfsögöu eiga þær
heimtingu á að fá menntun
og starf, sem er 1 samræmi
við þeirra eðlisfar og getu.
Viðvíkjandi piltunum er
vandinn meiri, en þann vanda
á nútíma vísindalegt uppeldi
og sérskólamenntun að geta
leyst að mestu leyti. En þetta
Framhald á 4. síðu.
en að maðurinn gleðji sig við
Happdrætfí Háskóla íslands
Dregið verður í 7.flokki 10. sept.
502 vinningar
110600 krónur
Endurnýíö sfrax í dag
Notið LUMA perur til að
gera heimilið bjartara og
vistlegra.
Endingargóðar — sparneytnar — ódýrar.
(Qkaupíélacjió
> ^
llflPOIKIl FIIRSTI
Sjálfsævísaga bylfíngamanns
ÆVISAGA KRAPOTKÍNS fursta hefur verið talin ein hin
gagnmerkasta og bezt gerða sjálfsævisaga heimsbókmenntanna.
Fáum hefur gefizt kostur á að skýra frá viðburðaríkari ævi-
ferli, enda tekur hann fram flestu því, er gerist í ævintýraleg-
ustu skáldsögum: Aðalborinn af tignustu ættum Rússlands.
Barn í grímubúningi við hásætisskör Nikplásar keisara fyrsta,
sofandi í keltu keisaradrottningar, er síðar varð. Hirðsveinn
við hlið Alexanders annars — þess albúinn að leggja lífið í
sölurnar fyrir hann. Landkönnuður og vísindamaður á heims-
mælikvarða á hinni miklu vísindaöld og jafnframt uppreisn-
armaður gegn öllum viðurkenndum stjórnmálakenningum um
samfélag manna. Einn tíma dagsins í tildurslegustu hirðveizl-
um í Vetrarhöll keisarans og annan í dularbúningi í úthyerf-
um borgarinnar, boðandi fátækum verkamönnum byltingar-
kenningar. í fangelsi í Rússlandi kominn að dauða úr harðrétti
og skyrbjúg. Hinn bíræfnasti flótti úr fangelsinu og úr landi.
Um langan aldur bláfátækur landflótta rithöfundur í Vestur-
Evrópu, umsetinn af njósnurum zarsins, árum saman í fang-
elsi, jafnvel gerðir út menn til að myrða hann. Stórgáfaður
og hálærður maður með yfirsýn yfir öll viðfangsefni mann-
legs anda og heimsfrægur fyrir rannsóknir sínar og ritmennsku.
En á allf annað skyggir fágætur persónleiki hans og göfug
mennska, sem naumast hefur átt sinn líka. Af hverri línu bók-
arinnar andar blæ mannúðar, réttlætiskenndar, drengskapar
og frelsisástar, og á boðskapur höfundar sérstakt erindi til yf-
irstandandi skálmaldar ofstjórnar, mannfyrirlitningar, ofbeld-
is og kúgunar.
BÓKAVERZLUN ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJU
Auglýsið í Þjóðólfi
Keramík og Krísfall
í miklu úrvali fyrirliggjandi.
Heíldverzlun
Ásbjörn Ólafsson.
Grettisgötu 2. — Símar 5867 og 4577.