Þjóðólfur


Þjóðólfur - 17.05.1943, Síða 2

Þjóðólfur - 17.05.1943, Síða 2
2 ÞJÓÐÓLFUR ÞÉR KONUR — Þegar konan er ekki framar annaö en vesalt fórnardýr undir óþjálum hönd- um kvalarans, nakin, viljalaus, magn- laus, dáin sjálfri sér, skjálfandi, grát- andi, svimandi, brennandi, þá elskar hún. íJófriöur í Vefarinn mikli). H, K. Laxnesó. Konan er eitis og skugginn. Ef maS- ur œtlar aS forSast hana, fylgir hún manni eftir, og er maSur œtlar aS nálg- ast hana, hörfar hún undan. Arlingcourt. DaSurdrós getur gjarna veriS dyggS- ug, en hún er aldrei saklaus. Madame Cottin. Fjarri skal fljóSa leita. fsl. málsháttur. Flestar konur álíta sig þess umkomn- ar aS standa andspœnis hættu. En ná- lega œfinlega reynist þaS aS vera í- myndun. Compoamor. Sifelldur þakleki i rigningatíS og þrasgjörn kona — er hvaS öSru líkt. Salómon. ★ . Ræðumaðurinn á bindindissamkom- unni er að lýsa bölvun áfengisins fyrir áheyrendum sínum. „Ég veit dæmi þess, að menn hafa orðið blindir af því að neyta áfengis", segir hann og lætur al- vöruþrungin augu sín hvarfla um áheyr- endabekkina. Þá lætur rödd aftarlega í salnum til sín heyra: „Því er alveg þveröfugt far- ið með mig. Ég sé allt tvöfalt, þegar , ég drekk“. i VORKULDAR. Þann 12. júní kom norSan meS frosti og fjúki, svo snjóaSi í byggS, en tók haga á byggSarfjöllum. ÞaS hélzt viS þrjá daga sunnanlands, viku fyrir norS- an, svo fé dó, en fyrir nautpening var snjór af mokaSur. Eyddust bœir fáein- ir um voriS í ÞistilfirSi nœst Lauganesi. / Strandasýslu var varla sauSgras á Jóns- messu. Dóu af vesöld nokkrar manneskj- ur fyrir norSan. Setbergsannáll 1696. þAUN HEIMSINS — Alþýðufyrirlesarinn er að ljúka máli sínu. „Já, vinir mínir“, segir hann. „Þannig hefur þetta alltaf gengið til. Mikilmennin eru sjaldan í hávegum höfð af samtíð sinni. Það er ekki verið að hafa fyrir því að strá blómum á grafir þeirra fyrr en þau eru dáin“. VITIÐ ÞÉR ... AÐ á mannsandliti vaxa til jafnaSar 160 hár á hverjum ferþumlungi? AÐ á sumum veitingastöSum í París voru sérstakir matseSlar fyrir hunda viSskiptavinanna? AÐ demantur, sem verSur fyrir radíum- geisla, breytir um lit og verSur grœnn upp frá þvi? AÐ karlmennirnir á eynni Samoan hafa sítt hár, en hár kvenfólksins er stutt- klippt? AÐ mesta hafdýpi, sem mælt hefur ver- iS, er á milli Philippseyja og Japan? ÞaS er 34000 fet. AÐ á sumum SuSurhafseyjum eru hnýsu- tennur notaSar sem mynt? AÐ bragsmekkur fiSrilda ér í fótum þeirra, sem eru 1600 sinnum nœmari á bragS en tunga mannsins? AÐ snjóflyksur hafa veriS IjósmyndaS- ar þúsundum saman, án þess aS unnt reyndist aS finna nokkrar tvær, sem vœru algerlega eins? MINNIN G ARORÐ Frú Guðný Margrét Finnbogadóttir Fædd 15. marz 1886. — Dáin 20. apríl 1943. UÚN er fædd að Víðirlæk í Skriðdal, dóttir heiðurshjón- anna Finnboga Ólafssonar og Ingi- bjargar Sigurðardóttur, er þar bjuggu þá,bæði að uppruna Skaptfellingar og þangað flutt frá Fornastekk í Nesjum 1882, Ólst hón upp með foreldrum sínum, fyrst á Víðirlæk, síðan á Borg og Arnhólsstöðum í Skrið- dal, til 24 ára aldurs. Vorið 1910 flutti fjölskyldan að Bíldsfelli, nema Guðný, er flutti á Eskifjörð. Vorið 1911 keypti Finnbogi jörð- ina Auðsholt Ölvusi og flutti þang- að búferlum samsumars, ásamt öðrum börnum þeirra hjóna. En Guðný fluttist sama vorið að Bíldsfelli og dvaldi þar til 5. nóv. 1912, að bún giftist Sigurði Þorvaldssyni, frá Geitdal í Skrið- dal, myndarmanni og góðum dreng. Lifði liún síðan með hon- um á Bíldsfelli og síðast í Tungu í Grafningi, til 1921, er hann drukknaði í Álftavatni. Við það sorglega tækifæri var hún ein í bænum, með 7 ára dóttur þeirra hjóna og ófrísk að annari. Beið hún þannig manns síns fram á nótt. En er hann kom eigi brauzt hún ein um nóttina, í vondu veðri, til næsta bæjar, leiðandi barnið, til þess að fá menn í dauðaleit. Lík hans fannst. En aldrei náði Guðný sál. sér til fulls eftir þetta áfall. Heimilið var sjálf-uppleyst, og leitaði hún þá í forna skjólið, griðastaðinn, er aldrei brást, föð- urhúsin fornu og góðu. Að vísu var þá faðirinn horfinn undir græna torfu, dáinn 1918, og móð- irin veik og dauðvona, dáin 1922. En gamla heimilið stóð, nú undir stjórn Ólafs, bróður Guðnýjar, og Rósu yngstu systur hennar, sama gamla kærleiks heimilið, sem fyrr, undir stjórn foreldranna. Heim- ilið, þar sem hver um sig lagði fram alla krafta, án metings, til hvers heiðarlegs starfs. Heimilið, þar sem allir lifðu saman í inni- Frn GuSrtý Finnbogadóttir frá AuSsholti legustu kærleiks sambúð, án þess að nokkur vissi af því, eða athug- aði það, hvort einn kynni að vera veitandi eða annar þiggjandi. — Þarna voru allir, enn sem fyrr, eitt, í ást og eindrægni. Á þesu heimili systkina sinna, Ólafs og Rósu, sem frá byrjun varð liennar og þeirra sameigin- lega félags-lieimili, dvaldi Guðný sál., með báðum dætrum sínum í 16 ár, eða til 1937. Þá deyr Ólaf- ur Finnbogason, og þær standa tvær eftir systurnar, Rósa og Guð- ný, ásamt dætrum liennar. En auk þess voru í heimilinu 2 synir Ágústu Finnbogadóttur, systur þeirra, er teknir liöfðu verið til fósturs, er hún andaðist 1927, þá annar á 1., hinn á 3. ári. Þessu 6 manna heimili, sem nú var orðið forstöðulaust á karlhöndina, var enginn vegur að halda lengur uppi í Auðsholti, Tók Rósa þá eina ráðið, sem fyrir hendi var, að flytja heimilið til Reykjavíkur, og reyna að fá sér þar atvinnu. Þetta heppnaðist. Hún fékk bráðlega starf við Málleysingja-skólann og er nú fastur kennari við hann. Með þessu tókst þeim systrum að framfleyta hér þessu 6 manna heimili sínu, þar af 4 böm og unglingar, þannig, að Guðný sál. annaðist inni-störfin, eftir ýtrustu getu, en Rósa vann úti. Og á þessu heimili þeirra systra, á Grettis- götu 55, lokaði Guðný þreyttum augum sínurn í dauðanum. Guðný sál. var lengst af æfinu- ar heilsuveil, og einkum eftir hið vofeiflega fráfall manns síns, sem hún náði sér aldrei til fulls eftir. Rósa systir hennar lýsir henni svo: Að hún hafi verið mjög ást- rík móðir, hugljúf og gæf í lund og skyldurækin í bezta lagi. Og lýsingin er rétt. Með því að hér á við hið forn- kveðna: að „eplið fellur sjaldan langt frá rótinni44, verður að minnast með fám orðum rótarinn- ar að því sjaldgæfa, nær einstæða f jölskyldu-samlífi sem hér átti sér stað: Fjölskyldufaðirinn, Finn- bogi Ólafsson, var sann-nefndur heiðursmaður, án nokkurs frá- dráttar. Prúðmenni að skapgerð og framgöngu, enda alstaðar vel metinn, hvar hann var eða kom. Laus við allan hégómaskap og tildur, enda kom sér hjá öllum vegtyllum og félagslegu metnaðar braski, sem hann gat, og lét það öðrum eftir. Hann var bóndimi, og vildi ekki annað vera. Hann stóð ábyggilega í fremstu röð hinnar heiðarlegu bændastéttar síns tíma, er sannaði orðtækið, að „bóndi er bústúlpi, bú er lands- stólpi“, enda skaraði liann fram úr, að starfsemi og dugnaði. Og kona hans, Ingibjörg Sigurðardótt- ir, var lireinræktuð bóndakona og svo samhent lionum ok lík í skoð- un og háttum, sem verið getur um karl og konu, aðeins nokkuð ör- ari og meiri skörungur að lund- arfari, þar sem hann var öðling- urinn. Og þó sýnir ekkert betur mannkosti þessara hjóna, en bamauppeldi þeirra og heimilið, sem þau sköpuðu sjálfum sér og þeim, bæði meðan þau stóðu uppi og eftir sinn dag. Og um Guðnýju sál. og ömiur böm þeirra verður ekkert réttara sagt en það, að þau öll hafa verið ófölsuð eftirmynd foreldranna, bæði að mannkost- um og dugnaði, hvort sem heim- Kristnilíf og stjórnmál 117. tölublaði Þjóðólfs leggur blaðið fram ótvíræða yfirlýs- ingu um afstöðu sína til kirkju og kristindóms. Engan þarf að undra, þótt ég fagni slíku; maður, sem hef gefið mig að prédikunar- starfi í nærfellt 30 ár. Væri ósk- andi, að blaðið gæti framvegis lif- að samkvæmt þessari játningu sinni og mótað sitt framtíðarstarf samkvæmt henni. Oft hafa „smiðirnir“ hafnað hinum „dýrmæta hymingar- steini“, ráðizt í mikið, hmndið af stað voldugum hyltingum og hreyfingum, stofnsett heimsveldi með hörku járnsins og snilli- mennsku kunnáttumannsins, reist sér háar liallir, glæsilegar borgir, safnað auðæfum og aukizt að völd- um, en svo hafa „stormarnir blás- ið“, steypiregnið dunið og „belj- andi lækir“ á þessum liáreistu ; verkum þeirra, og hrunið orðið geigvænlegt og mikið. Árið 1923 sagði hinn víðkunni hershöfðingi Smuts þetta: „Sandarnir em að skolast burt. Ef ekki einhver sterk hönd hrífur Norðurálfuna og bjargar henni frá að sökkva eins og hún nú ger- ir, þá getur hinn svo kallaði frið- ur endað með meiri skelfingu en jafnvel sjálf heimsstyrjöldin var“. Sannarlega mælti Smuts spá- mannlega. Friður, sem ekki var nema nafnið, endaði með meiri skelfingu, en fyrri heimsstyrjöld- in var. Þjóðabandalag og allt það, er þjóðimar hrófluðu lauslega upp og reistu á sandi, eftir síð- ustu heimsstyrjöld, hrundi. Og sannarlega varð fall þess mikið. Smiðirnir liöfðu ekki byggt á liyrningarsteininum sjálfum. Þeir vora ekki nægilega „hyggnir“ menn til þess að byggja á bjargi guðselsku, mannelsku, bróðernis, réttlætis og sanngimi. Samningar þjóðanna vora svikulir, viðskipta- líf þeirra meingallað. Undirferli, fals, sviksemi, óheilindi, sér- drægni, léttúð og ábyrgðarleysi var sandurinn, sem þær byggðu á. Hann sveik. En læra nú þjóðim- ar af skaðanum? Getum við lært af þessu? Það lýtur út fyrir, að ÞjóSólf- ur ætli að reyna að varast þetta, að láta stjórnmálastarfsemi sína mótast af andúð í garð kirkju og kristni. Allir þjóðliollir menn munu vilja efla andlegt líf og trú- arstyrk þjóðarinnar. Eigi henni að famast vel á komandi áram, verða börn hennar að leggja meiri rækt við kirkju og kristnilíf en undanfarið hefur átt sér stað. Hvað gagna framfarir og þeninga- flóð, kunnátta, lærdómur og tækni, ef engum manni verður hægt að treysta; ef menn svíkja loforð sín, svíkjast um við vinnu og dagleg störf, hafa svik í frammi í viðskiptum og rækta ránskap og veiðiniennsku í stað réttlætis og bróðurhugar. En hvemig á að rækta dyggð- imar án hinna háleitu hugéjóna trúarlífsins? Annaðhvort verður að stjórna mönnum með svipu og járnhnefa, eða rækta þann hugs- unarhátt, góðvilja og bróðurhug, sem byggir athafnalíf sitt á sann- girni, réttlæti og heiðarleik, en slíkt gerist ekki nema í sambandi við hinar háleitu hugsjónir trúar- lífsins. Fyrr og síðar hafa menn haft allmikinn hug á að bæta og laga heiminn, en þeir hafa ekki alltaf verið að sama skapi „hyggnir“, ekki byggt á bjargi. Sumir eru „vandlátir guðs vegna, en ekki með skynsemd“. Mikil flónska er oft samfara trúaráhuga manna og kirkjulegu • starfi. Mönnum era öfgarnar tamar. Sumir lirópa trú, og ætla, að minnstu skipti um skipulagið, aðrir ætla að bjarga heiminum með skipulaginu, en hirða lítið um „neistann, sem liggur innst“, hirða lítið um trú og hugsjónalíf manna. Hvort tveggja er þetta vitlaust. Það er ekki annað, lieldu'r hvort tveggja. Hver maður, sem ræktar tún eða garða, veit, að girðingar era nauðsynlegar, því að enn er nóg BJÖRN O. BJÖRNSSON: Kommúnistar eru, eins og fleira, ekki endi- lega góðir og ekki endilega illir. I Rússlandi hafa þeir leyst af hendi lieimssögulegt lilutverk með glæsilegum áraugri —að segja má, þó að auðvitað séu þar ekki öll kurl komin til grafar enn. En á- stæðurnar þar voru líka einstæð- ar. 1 öðrum löndum, þar sem kommúnistar hafa náð nokkru veralegu fylgi, hefur þjóðarógæfa orðið árangurinn. Þessari stað- hæfingu til sönnunar þarf ekki annað en nefna Þýzkaland, Ung- verjaland, Italíu, Spán og Frakk- land. Þó að þar komi fleiri atriði til greina, nokkuð sitt í. hverju landinu, þá þarf ekki að ætla, að það sé nein tilviljun, að löndin, er höfðu stærsta kommúnista- flokka, eru löndin, sem fengu svartasta einræðið, nema hvað Frakkland hefur þá sérstöðu, sem alkunn er og á annan hátt óþol- andi. Island hefur nú fengið stóran kommúnistaflokk. Þó að hann nefni sig öðru nafni og sé að meiri hlutanum samsettur af verka- Frh. á 3. síðu. ili þeirra urðu stærri eða smærri, og hvar sem þau vora. Af 11 börnum þeirra Finnboga og Ingibjargar lifa enn þessi: Guðríður, kona Guðmundar bónda Þorvaldssonar, á Bíldsfelli í Grafningi — Sigríður, ekkja Ólafs bónda Gíslasonar, frá Árbæ í Ölv- usi, nú flutt til Reykjavíkur — Al- hert í Ameríku, húsamálari -— og Rósa, sem enn varðveitir leifar foma heimilisins frá Auðsholti, með fósturbörnum sínum, 2 son- um Ágústu og yngri dóttúr Guð- nýjar, Sigríði Ingibjörgu, nú 21 ára. — Eldri dóttirin, Svanhvít, 26 ára, nú í Kaupmannahöfn. Skal svo lokið minningu eins meðal allra fegurstu hændaheim- ila, sem ég hef þekkt, með því að biðja hinum burt förnu náðar og friðar, hinum eftir lifandi bless- unar drottins. M. Bl. J. um átvarg í heimi manna. Þannig er og skipulag, viturlegt skipulag, — mannbætandi og réttlátt stjórn- skipulag, lífsnauðsyn til þess að þrifizt geti í þjóðfélaginu beil- brigt menningarstarf og að öll mannrækt og siðgæðisrækt geti borið tilætlaðan árangur. 1 mann- spillandi og ranglátu stjórnskipu- lagi ber vinna presta, kennara og siðgæðisfrömuða lítið meiri árang- ur en starf þeirra manna, sem moka sandi í botnlausa tunnu. Um þetta hef ég sannfærzt eftir bráðum 30 ára prédikunarstarf í ýmsum myndum. En eins og rétt- látt og mannbætandi stjórnskipu- lag, — starfhæft stjómskipulag, er nauðsynlegt, svo er og sjálf rækt- unin. Aldrei mega menn gleyma henni og aldrei vanrækja að „sá við öll vötn“, aldrei láta „lémagna hendur“ síga, aldrei missa trú á sigur hins góða, aldrei þreytast á að rækta góðvilja og bróðurhug og bera guðslífið inn í hugi og sálir manna, jafnvel þótt mikið af sæðinu kunni að falla í grýtta jörð eða við veginn. Þetta tvennt verður að fara sam- an í þjóðlífinu: Viturlegt og rétt- látt stjórnskipulag, og þróttmikiS andlegt líf og trúarstyrkur. Upp af því einu getur sprottið altækt og blómlegt menningarlíf — „gró- andi þjóðlíf“. Pétur SigurSsson.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.