Þjóðólfur


Þjóðólfur - 24.05.1943, Side 2

Þjóðólfur - 24.05.1943, Side 2
2 ÞJÖÐÓLFUR VITIÐ ÞÉR. . . AÐ i Japan er þeS taliS hámark kurt- eisi aS blístra? AÐ dúfur, sem eru á heimleiS, fljúga meS 60 mílna (enskra) hraSa á klukkustund? AÐ níutíu og niu af hverjum hundraS platínu-ljóshcerSum stúlkum í Holly- wood, sem koma fram í kvikmynd- um, haja litaS hár? AÐ í heiminum eru mun fleiri líkneski af Buddha en Kristi? t Kína og Jap- an eru milljónir Buddhalíkneskja, sem eru mjög frábrugSin hvert öSru aS stœrS og ytra útliti AÐ hvert orð, sem fram gengur af munni vorum, er til orSiS fyrir sameiginlegt starf 72 vöSva? AÐ sjö aj hverjum tíu borgum í heim- inum, sem hafa yfir 100 þús. íbúa, standu viS sjó eða skipgeng fljót? AÐ Amsterdam er byggS á níutiii evj- um? GÖMUL VtSA. Hvar þú finnur játœkan á jörnum vegi gjörðu’ honum gott en grœttu hann eigi. Guð mun launa þér á efsta degi. HEILRÆÐl. Blað nokkurt í Ameríku efndi einu sinni til samkeppni um BESTU HEIL- BRIGÐISREGLURNAR. Eftirfarandi reglur voru verðlaunaSar: 1. Vertu ávallt glaður í lund. 2. Gerðu þér að fastri reglu að reiðast ekki né ergja þig yfir smámunum. 3. Dragðu andann djúpt og œtíð nieð nefinu. 4. Sofðu ekki lengur en átta klukku- tíma, þegar þú ert heilbrigður, og helzt í köldu herbergi, þar sem bteði herbergið og andrúmslojtið er hreint. 5. Borðaðu ekki mikið, en tyggðu mat- inn vel. 6. Vinndu daglega og eyddu ekki meira en þú aflar. 7. Leitastu við að vinna með heilsu- hraustum mönnum, og helzt þeim, sem hugsa og tala skynsamlega. BRÚÐKAUPSRÆÐAN. Jón Kristjánsson á Hóli, afi Sigurð- ar Sigurðssonar skólastjóra á Hólum, var fátcekur, en þótti gott brennivín. Hann var greindur vel, og gat verið meinlegur í orSum, þegar hann vildi. — Eitt sinn átti hann leið framhjá III- ugastöðum i Fnjóskadal. Stóð þá þar yfir brúðkaupsveizla og var nýstaðið upp frá borðum. Þegar veizlufólkið sá Jón, fagnaði það honum vel og kvað hafa borið vel í veiði, að hann skyldi koma þungað, því að það vantaði ein- mitt mann til að mœla fyrir skál brúð- hjónanna. Jón tók þessari málaleitun fjarri, kvaðst vera banhungraður og ekki hajtt bragðað brennivin þann dag. — Úr því var auðvelt að bceta. Var nú Jóni borinn veizlumatur og gefið cerlega i staupinu. Síðan var hann beðinn að halda rœðuna. En Jón sagði að andinn kœmi ekki yfir sig nema hann fengi tvö staup í viðbót. Voru honum borin þau. — Að því búnu byrjaði Jón rœðuna: „Þegar ég á nú hér að talu fyrir minni brúðhjónanna, þá vil ég sœkja efnið í vora beztu bók, biblíuna. Hverjir eru það nú þar, sem getið er um að hafi verið guði þóknanlegastir? Davíð og Salómon. Annar þeirra átti tíu konur en hinn tvö hundruð konur. Er margt um þetta ritað. En af þessu sést, að það er ekki samkvœmt guðs vilja, að menn séu að binda sig við eina konu — — Þegar hér var komið rœðunni þótti brúð- urinni nóg komið og lét hún reka Jón út. Var hann fús til að hœtta og þólti sín för góð. Hann hafði gœtt sér á veizluföngunum, þegið ríflegar vínveit- ingar og komið veizlugestunum í golt skap, þvi að flestir voru hlœjandi þeg- ar hann reið úr hlaði. Vesturríkin eru irjálslynd P INRÆÐISSINNAR *—J allra tegunda reyna alltaf að saka Vesturveld- in um yfirdrottnunar- og landvinningaáform, og benda á framferSi þeirra gagnvart ýmsum hinna frumstæðari þjóða í Asíu, Afríku, Suður-Ameríku og víðar. Það má þó sjá, að í flestum þessara tilfella er vart hugsan- legt að beita öðrum aðferðum, því að ekki þekkja þessar þjóð- ir f. d. neina rétta fjárhagslega stjórnháttu. Þær trúa sér ekki sjálfar og ekki geta aðrir trúað þeim tii að halda nokkra gerða samninga. Þær eiga allt- af í innbyrðis illdeilum. Þær geta ekki varið sjálfar sig og hljóta því að falla undir nv yfirráð jafnskjótt og sleppt er á þeim taki. Það sem þessum þjóðum er þungbærast er það, að þær eru alltaf látnar bera alla áhættu og allan kostnað af sínu eigin framtaksleysi og stjórnleysi. En þegar þær sýna einhverja lofsverða tilraun til sjálfstæðr- ar starfsemi, þá hafa Vestur- ríkin verið fljót til viðurkenn- ingar, a. m. k. á þessari öld — og stundum jafnvel offljót. Nægir að benda á sjálfstæðis- viðurkenningar Breta til handa ýmsum nýlendum sínum, enda þótt sumar þeirra Iiafi tæplega reynzt traustsins maklegar vegna vankunnáttu á réttum stjórnarháttum. — Bandarík- in gengu jafnvel svo langt að viðurkenna fullt sjálfstæði Filippseyja frá árinu 1946. En með þá ráðstöfun munu nú t r V báðir partaf orðnir álíka ó- ánægðir. — Loks megum vér Islendingar muna það, að tregða Dana til að viðurkenna sjálfstæði vort, studdist að lok- um eingöngu við það, hvað vér vorum sjálfir óákveðnir. Það mun því mega slá því föstu, að stjórnleg (pólitísk) yfirráðastefna vfir siðuðum þjóðum sé undir lok liðin hér á vesturhveli jarðar, að með- töldum vestasta hluta Evrópu. Annað mál ér það með hag- ræn og fjárhagsleg (ökónóm- isk) yfirráð. Þau munu ráð- leysingjar aldrei geta losnað við. En ráðdeiídarmenn og stjórnhæf ríki hér vestanhvels hafa nú, sem betur fer, unnið stóraukin og sívaxandi skilyrði til að geta talizt sjálfstæð. meira en rétt að nafninu til. Hringið í síma 2923 og gerizt áskrifendur að ÞJÓÐÖLFI Skógrœkt. Skógrækt ríkisins mun hafa um 50 þúsund trjáplöntur til sölu á þessu ári. En það nægir engan veg- inn til að fullhægja eftirspurn- inni. Er einkum skortur á hirki. Plönturnar, sem seldar verða hér sunnanlands, eru aðallega frá Vöglum og Hallormsstað. Kári Sigurjónsson, verkstjóri hjá garð- yrkjuráðunaut bæjarins armast sölu plantnanna. — Eftirspurn eftir trjáplöntum hefur farið vax- andi liin síðari ár. Er vissulega gott til þess að vita, að smátt og smátt skuli vera að skapast áhugi fólks fyrir því að gróðursetja tré við híbýli sín. En einkennilega eru þau mörg, heimilin, þar sem engin tilraun hefur verið gerð til að skapa vísi að skógargróðri. Er það þá svo, þegar öllu er á botn- inn hvolft, að liin fagra liugsjón „að klæða landið“ eigi harla lítil ítök í þjóðinni? Eða liefur al- menningur ekki komið auga á það, hversu skógrækt heimilanna er stór liður í framkvæmd þeirr- ar liugsjónar? Vilja inenn ekki reyna að gera sér í hugarlund þá miklu svipbreytingu á landinu, ef fagrir og vel hirtir trjálundir væru við hvert einasta hyggt býli í sveit. og við sjó? Ef inenn öðluðust al- mennt skilning á því, mundu þeir sennilega verða fáir, er skoruðust undan því að prýða umhverfi heimila sinna með trjágróðri. Reikningsskil. Hinir svokölluðu vinstri flokk- ar keppast nú við að bera hver annan sökum í tilefni af viðræð- um þeirra í milli um sameigin- lega stjórnarmyndun. Alþýðublað- ið og Þjóðviljinn verja veruleg- um hluta af rúmi sínu til þessara reikningsskila en Eysteinn Jóns- son hefur ritað pésa til að bera skjökl fyrir Framsóknarflokkinn og ófrægja hina flokkana tvo. — Um þessa ófrægilegu viðureign er það fyr8t og fremst að segja, að almenningur mun yfirleitt láta sér fátt um hana finnast. Þó fer ekki hjá því, svo fremi að þessir til- burðir séu virtir viðlits, að mönn- um vaxi í augum það hyldýpi ó- heilinda, fláttskapar og undir- hyggju, sem einkennt hefur samn- ingaviðræður flokka þessara. Og vissujega er það óskemtileg til- liugsun, ef svo slysalega hefði til tekizt, að samningar hefðu náðst milli þeirra. Samstarf um stjórn og löggjöf, er hefði verið svo ger- sneytt heilindum, drengskap og góðvilja, hefði sennilega orðið þjóðinni til lítillar blessunar. En stjómmálaþroski og ábyrgðartil- finning leiðtoga þessara flokka verður gerla markað af „sjónar- spili“ því, er þeir hafa setí, é svið og sýnt almenningi nú urdanfar- ið. Mánuðum saman hafa þeir set- ið á samningafundum — vefalaust af því, að þeir telja sig eiga sam- leið í þjóðmálunum. En jafnskjótt og upp er staðið brestur á þvílíkt fárviðri brigzla, óhróðurs cg ill- mælgi, að lengi mun í minnum haft. — Eftir að hafa hlýtt á Lin- ar gagnkvæmu kveðjur, er fario hafa á milli flokkanna, sém allt til þessa voru „tilvonandi sam- starfsflokkar“, undrast. inenn það eitt, að þessir flokkar, hver í sínu lagi, skyldu láta sér detta í hug að taka upp sainningaviðræður sín á milli. Eftir þeim lýsingum, senv þeir hafa gefið á eðli og innræti hver annars, var vart við öðru að búast frá þeirra hendi en svik- semi við þann málstað, er þeir ját- uðu með vörunum. Fyrirheitna landið. íbúum Reykjavlkur er skapi næst að óska eftir samfelldum rigningum. Sé þurrviðri er nálega ólíft í bænum í hvert sinn sem Mannrannir f nýútkominni BarSstrend- i n g a b ó k er þáttur um hrakninga og slýsfarir, sem Berg- sveinn Skúlason hefur skráS. Er þar skýrt frá, svaSilförum ýmsum og mannraunum. Koma við sög- una ýmsir nafntogaðir formenn og sœgarpar hreiSfirzkir, s. s. HafliSi í Svefneyjum, Gísli Gunnarsson úr Bjarnareyjum, Bárar-Ólafur . og ýmsir fleiri. — Hér fara á eftir kaflar úr þessum þætti bókarinn- ar. Hrakningur Hafliða. Síðari hluta vetrar 1844 sendi Eyjólfur hreppstjóri Einarsson í Svefneyjum Hafliða son sinn í fiskaferð út undir Jökul. Hafliði var þá aðeins 21 árs gamall, en röskur maður og listasjómaður. Þessir menn voru hásetar hans: Jón Guðmundsson úr Svefneyjum, Eyjólfur Eyjólfsson úr Svefneyj- um, Sigurður Jónsson í Skarðshlíð í Bjarnareyjum, Ásgeir Jónsson úr Múlasveit og Gísli Gíslason úr Reykhólasveit. Gísli einn var full- tíða maður, liinir allir unglingar innan við tvítugsaldur. Þeim byrjaði vel undir Jökul- inn. Auk þeirra háseta, sem þegar eru taldir, réðst til heimferðar með Hafliða maður, er Guðbrand- ur hét Sturlaugsson og griðkona ein, er Guðrún hét Jónsdóttir, ætt- uð undan Jökli. Guðbrandur þessi var fulltíða maður og góður liá- seti. Þeir lögðu á stað frá Hjalla- sandi föstudaginn næstan fyrir Pálma8imnudag í góðu veðri, Tóku róðrarleiði inn á móts við Harðakamb. Fór þá að leggja sunnan gola ofan af Jöklinum og höfðu þeir horf laust við Búlands- höfða, er þeir sigldu. En smám saman lierti vindinn og gekk hann þá meir til austurs, og er inn kom á Hróaslóð*) horfði ekki betur en á Gilsfjörð eða Reykjanes. En þá mimdu þeir nær þrem vikum djúpt af Búlandshöfða, er þeir sáu, að enginn kostur var að ná eyjum. Syrti þá og að með kaf- aldi og byrgði landsýn á skammri stundu, svo að aðeins grillti vest- ur til Barðastrandar, í Rauðsdals- fjall, og upp í höfðann. Þeir hag- ræddu þá til í hátnum eftir föng- um; tóku inastur úr þóftu og settu í stellingu, rifuðu seglið og sáu þann kost vænstan að hleypa norður yfir Breiðafjörð undir Barðaströnd. — Litlu síðar byrgði kafald alla landsýn. Þannig var skipað til verka: Hafliði stýrði, Guðbrandur hélt dragreipi, Jón og Eyjólfur stóðu í autri, en Gísli og hinir hásetam- ir héldu seglinu. Aldrei þoldi meira en í miðju tré. Er þeir lileyptu yfir Álinn, reið að þeim rið mikið og skall yfir austurrúm- ið, því að ekkert sást út af borð- *) Fiskimið. inu fyrir kafaldi. Fyllti þá í miðj- ar snældur. Hafliði bað þá háseta að ausa rösklega, og þurkuðu þeir bátinn á skömmum tíma. — En það kváðust hásetar ætla, að Haf- liði sigldi til hafs; en hann bað þá vera rólega og kvaðst sigla á Barðaströnd. Þannig sigldu þeir lengi dags, án þess að út af borð- stokknum sæi fyrir kafaldi. — Loks létti kafaldinu, sá þá til sól- ar og grillti í hátt fjall fyrir stafni. Bar mönnum þá ekki saman um, hvert fjall það væri, sögðu sumir það vera Rauðsdalsfjall en aðrir Skorarhlíðar, og reyndist það rétt- ara. Létti nú kafaldinu að fullu, svo að þeir gátu áttað sig og sáu þá, að þeir voru viku sjávar djúpt undan Stálinu. Guðrún griðkona hafði legið niðri í skutnum, og höfðu bátverj- ar hlúð að henni eftir föngum. Settist hún nú upp og spurði, hve langt væri komið. Guðbrandur varð fyrir svörum og mælti: „Þú ert lifandi, Gunna mín; leggstu útaf aftur, það er langt eftir!“ Hægði nú veðrið um stund. Vindur snerist til vesturs og sigldu þeir þá inn á fjörðinn. En þetta var aðeins byljaslot. Brátt herti veðrið svo, að það hafði aldrei jafnmikið verið. Varð þá að halda um rána og var það mikil þraut, en menn þreyttir orðnir. Var nú rætt um, hvað gera skyldi. Guðbrandur hvatti þess heldur, að þeir reyndu að ná landi á Siglunesi. Hafliði kvað dag mundu endast í Sauðeyjar og héll áfram. — Seint um kvöldið náðu þeir svo landi í Háey í Sauð- eyjum. En af því, að þeir voru allir ókúimUgir, fundu þeir ekki góða lendingu, en Urðu að hleypa undir kletta og misstu við það út eitthvað af fiski og verskrínur, En það hlífði skipinu, að Jóhann bóndi í Sauðeyjum sá til ferði þeirra og fór þegar til móts við þá með menn sína, og gátu þeir þá bjargað skipinu undan sjó. — I Sauðeyjuin fengu hraknings- menn hinar beztu viðtökur, og daginn eftir höfðu þeir þægilegt leiði heim í Svefneyjar. Þegar Eyjólfur lireppsstjó.i spurði, að þeir hefði verið á sjó daginn áður, er mælt, að hann hafi sagt: Því er öllu hlíft, sern guð vill lilífa. Þessi sigling Hafliða, þvert yf- ir Breiðafjörð og frá Skor í Sauð- eyjar, þótti að vonum hin fræki- legasta, en hún var ekkert eins- dæmi á þeim dögum. og skal nú betur að kveðið. Hrakningar Gísla Gunnarssonar. Gísli er maður nefndur Gunn- arsson úr Bjarnareyjum. Honum er svo lýst, að hann væri nokkru hærri en meðalmaður og ' mjög þrekinn, beinvaxinn og vel l'm- aður, svartur á hár og skegg, skeggið þykkt og mikið skeggetæo- ið, andlitið nokkuð stórt, ekki al- veg kringluleitur, rjóður í kinn- um og nefið beint og fremur stó’"t, augun grá og hvöss og ennið mik- ið og kúpt. Hann var af öllum tal- inn fríðleiksmaður. Prúðmeniii

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.