Þjóðólfur


Þjóðólfur - 24.05.1943, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 24.05.1943, Blaðsíða 3
ÞJÓÐÓLFUR 3 nokkur andvari er — og það er oft í Reykjavík. Rykmökkurinn ifokast eftir öllum götum eins og stórhríðarkóf, fyllir vit vegfar- e’ida, smýgur inn í vietarverur fólksins og leggur þykka voð yfir garða og gróna bletti í bænum. — Rvíívingar hafa lengi átt sínn óska- draum í sambandi við hitun bæj- arins með lieitu vatni frá iðrum jarðar. Dýpsti undirtónninn í þeim draumi hefur áreiðanlega verið tilbugsunin um hreinlegan bæ, lausan við reyk og sót. En hvað stoðar hitaveitan í þeseu efnií' Reykjavík verður eftir sem áður einlxver óþrifalegasti bær í heimi. Göturykið lætur sér ekki ssgjast við það, þótt heitt vatn streymi inn í íbúðir borgaranna dag og nótt. Það heldur áfram að knýja íbúa Reykjavíkur til að biðja guð að gefa sér regn, enda þótt þeim sé á engu meiri þörf en sól eftir hið langa og lamandi skammdegi. Reykjavík getur aldr- ei orðið það fyrirheitna land þrifnaðar, fegurðar og heilbrigði, sem efni standa til, ef ráðamenn bæjarins taka ekki upp alveg nýja háttu, hvað umhirðu gatnanna áhrærir. Langlundarge&iö þrotið. Það hefur margt orðið — og oft miður vinsamlegt í garð bæjaryf- irvaldanna verið látið falla um ásigkomulag gatnanna í bænum. Mætti kannske ætla, að orsakanna væri að einhverju leyti að leita í miðnr vinsamlegu hugarfari í garð valdhafanna. En það hefur oftar cn einu sitmi komið í ljós, að jafnvel þeir aðilar, sem gædd- ir munu ríku.tu langlundargeði, þegar stjórnendur bæjarins eiga i hlut, geta ekki orða bundizt í þessun efnum. Þannig hefur ann- aðs stuðningsblað borgarstjórans, dagblaðið Vísir, nú nýlega tekið af skarið í þessu efni. Blaðið seg- ir m. a.: „Þa8 er óskemmlileg at- vinna, a'S þurfa ár eftir ár a& vera aS nöldra um misfellurnar í bœn- um, en hjá því verður ekki kom- izt, þegar svo mjög brestur á sómalegt eftirlit og raun er á, og ef svo heldur fram, ver'Sur ber- sýnilega að taka öll þessi mál öðr- um tökum . . . Starfsmenn Reykja- víkurbæjar, sem eiga a8 hafa um- sjón me8 þessu, munu hafa yfir bifreiSurn aS ráða og verða þvi máske ekki svo mjög varir við göturykið, sem þyrlast frá þeirra bifreiðum og annarra. Vœri ekki heppileg lausn á málinu, að merin þessir temdu sér að fara fótgang• andi um verstu gölur bæjaröis einu sinni í viku eg önduóu að sér dálítlu af rykinu, sem borgarar ul- mennt hafa í veganesti. Þa‘8 er ekki óliugsandi, aS' einhver áhrif kynni slíkt að hafa“. — Það mun visulega ekki þykja ofmælt hjá Vísi, þótt blaðið telji „mjög bresta á sómasamlegt eftirlit“ með ásig- komulagi gatnanna. Og sjálfsagl er það góð hugmynd hjá blnðinu, að þeir af starfsmönnum bæjar- ins, sem ábyrgðma bera í þessum efnum, kynni sér málið sem hezt af eigin raun. Það er óhugsandi, að þeir séu sér þess meðvÞuhdi, hvaða hlutskipti þeir búa með- bræðrum sínum. Ef svo væri, mundu þeir áreiðanlega sýna ein- hvern lit á að bæta úr þessum mis- fellum. Gervisjúlfstœ&i&. Um leið og hið eiginlega sjálf- stæði landsins er að leysasl upp og fjara út, er aíið á ger isjálf- stæðinu (sambandsslitunnm i. -- A meðan einræðisöflin éru að siueygja klafanum á þjóðina, verð- ur að lialda „sjálfstæðis“-Ieiksýn- ingar fyrir lienni til skemmtunar og til þess að dreifa atliyglinni. — Þetta er ekki nýtt fyrirbrigði. Vestanliafsríkin, sem á síðari ár- um hafa lent meira og minna und- ir fjárhagseinræði, liafa komið sér upp vönduðum leiksviðum með skrautlegum „sjálfstæðis” — og „lýðræðis”- leiktjöhlum fyrir hin- ar pólitísku leiksýnigar. — Vit- anlega er öllu stjórnað ósýnilega | á bak við þessi tjöld. — Ef Islend- \ ingar gera sig ánægða með þetta — á þá ekki einmitt við gamla máltakið — „sá hefur nóg er sér nægja lætur” —? Stjórn Reykjavíkur. Gott dæmi um langvarandi „skipulegt undanliald”, sem mimist er á í feitu greininni á l. síðu þar sem óvinurinn er í sókn” er stjórn bæjarmála Reykjavíkur í höndum sjálfstæð- ismanna. Þar hafa sósíalislar raunverulega stjórnað að miklu leyti, og þó á allt annan veg og skaðlegri, heldur en hvor flokknr- inn fyrir sig hefði gert ef liann einn hefði mátt ráða. Islendingafélag í London jfJflNN 10. apríl 1943, var stofn- að „Félag Islendinga í Eond- on”. Tilgangur félagsins er að efla og auka viðkynningu meðal Is- lendinga sem húsettir eru í Stóra Bretlandi, dveljast þar eða eru á ferð, svo og að treysta og viðhalda tengslunum við ættjörðina. Til- gangi þessum hyggst félagið að ná með því að gangast fyrir samkom- um Islendinga þar og heita sér fyrir því að félagsmenn eigi kost á að fylgjast með því, sem helzt er á dagsskrá á Islandi, með því að afla ísl. dagblaða og tímarita, sem félagsmenn eigi aðgang að, efna til fvrirlestra um ísl. málefni o. s. frv. Fyrsta samkoma félagsins mun hafa verið hahlin á sumardaginn fyrsta. Stjórn félagsins skipa: Bjöm Björnsson, formaður, Karl Strand, ritari, Magnús V. Magnússon, gjaldkeri, Brynhildur Sörensen og Bjarni Gíslason, meðstjórnend- ur. (Samkv. tilkynningu frá utan- ríkisráðuneytinu). Tilkynning frá kjötverðlagsenfnd Samkvæmt tilmælum landbúnaðarráðuneytisins hefur kjötverðlagsnefnd ákveðið eftirfarandi um verðlag á kjöti og vörum unnum úr kjöti. Hangikjöt í heildsölu ..... kr. 7.70 hvert kíló. do. í smásölu ......... — 8.80 hvert kíló. Saltkjöt í heildsölu. kr. 530.00 hver 112 kg. tn, do. í smásölu .......... 5.20 hvert kíló. Ærkjöt í heildsölu: kroppar, 19 kg. og yfir . 4.40 hvert kíló. kroppar, undir 19 kg..... — 3.90 hvert kíló, Nautakjöt í heildsölu: Viog Vz kroppar... ..... — 5.60 hvert kíló. læri .................... 6.90 hvert kíló. frampartar .............. — 5.00 hvert kíló. Alikálfakjöt í heildsölu: V]Og Vz kroppar......... 6.40 hvert kíló. I ngkálfakjöt í heildsölu.. — 3.00 hvert kíló. Smásöluverð lækki í samræmi við ofangreint heildsölu- verð og heildsölu og smásöluverð á kjötfarsi. pylsum, söxuðu kjöti og kæfu lækki í hlutfalli við það. AUGLÝSING UM HÁM4RKSVERÐ Viðskiptaráðið hefur ákveðið eftirfarandi há» marksverð á nýjum laxi: / heildsölu kr. 5,00 pr, kg. í smásölu: a) í heilum löxum — 6,00 — — h) x snei&um — 7,50 — — Reykjavík, 19. maí 1943. VERÐLAGSSTJÓRINN. var hann hið mesta fyrir utan vín, síglaður æfinlega og skemmtinn. Gísli l ár talinn einn af allra beztu formönnum á Breiðafirði um sína daga og aflasæll að því skapi. Hann stundaði róðra og há- karlalegur undir Jökli og víðar, eins og aðrir eyjamenn á þessu tímabili. En oftast mun liann liafa verið formaður á skipum fyrir aðra á Sandi og í Dritvík, því að jafnan var hann fátækur sjálfur, enda drykkjumaður mikill. Einu sinni var Gísli vinnumað- ur á Skarði hjá Kristjáni kamm- erráði. Var hann formaður fyrir Kristján og reri í Dritvík um vor- ið. Hann var jafnan mestur afla- maður í hverri verstöð, sem hann var í. Um messurnar kom hann heim á róðrarskipinu og fór út cftir aftur á áttæringnum Blíðfara. Skipið var stórt og traust. Þegar hann kom aftur út á Hjallasand, var sunnudagsmorgunn; lagði hann skipinu á leguna, því að sunnan veður var. Komu vinir hans út í skipið á bátum úr landi og ætluðu að sækja hann, en hann sagðist ekki yfirgefa skipið, en leyfði öllum hásetum í land nerna einum dreng, 15 eða 16 ára göml- um. Um daginn hvessti svo mik- ið, að skipið fór að reka. Þreif þá Gísli ból og batt við strenginn, kastaði bólinu útbyrðis kom upp skauti af seglinu, setti fyrir stýr- ið og hleypti í rokinu vestur und- ir Látrebjarg. Þar var afdrep. Þeg- ar þeir voru þangað komnir, seg- ir hann við drenginn: „1 kvöld gengur hann í útsuður, og í morg- unkaffið skulum við koma að Skarði í fyrramálið“. Var það rétt, sem Gísli sagði, að um sólarupp- komu voru þeir komnir í Skarðs- slöð, og drakk hann morgunkaff- ið á Skarði, en hásetarnir vora all- ir úti á Hjallasandi undir Jöklí. Nokkrum vetrum síðar reri Gísli undir Jökli sem liann var vanur, en jafnan höfðu þeir áttæring til að fara á í liákarlalegur. Eina nótt fóru allir liákarlaformenn í legu. Var þá gott veður og dimmviðri. Síðari hluta dags gerði jökulveð- ur mikið. — Þegar áhlaupið byrj- aði, segir Gísli við háseta sína: „Við skulum hleypa vestur, djúpt af Látrabjargi. Ef við náum ekki Breiðavík, náum við Kollsvík eða þá Palreksfirði; mér er sama hvort er, allar eru lendingarnar kunnar. — Við höfum fjörðinn fyrir okkur, ef liann hlevpur í vestur útsuður, sem hann mun gera“. — Þetta varð líka um kvöldið. Skipar Gísli þá að bera um og segir: „Nú skulum við láta okkur líða vel, piltar, því að nú skeyti ég ekki um annað en að sigla inn í Rauðseyjar. Enginn lekur hetur á móti okkur en Stur- laugur frændi, og þar fáum við í staupinu“. Sigla þeir nú um nólt- ina í svarta myrkri, en á einum stað í flóanum fá þeir svo úiikið brot, að fyllir undir snældur (fyr- ir ofan þóftur). — Þá segir Gísli: „Annað hvort er þetta náboði eða fjandinn hefur búið hér til nýtt grunn; pumpið þið, piltar, öllu er óhætt“. — Ekki urðu þeir fyrir fleiri áföllum inn allan fjörðinn, og var þó sjór ógóður. Lentu þeir í dögun í Rauðseyj- um. Kom Sturlaugur gamli til skips á móti þeim og bauð frænda sinn velkominn og alla menn hans. Sátu þeir þar við öl og alls- kyns gæði til kvölds. Morguninn eftir var komið norðan veður. Kallar þá Gísli liáseta sína, kvaddi frænda sinn og fékk vel í nestið hjá honum til dagsins og lenti í Rifsós um kvöldið, og urðu allir honum feguir. Þau urðu æfilok Gísla, að hann drukknaði í hákarlalegu við 10. mann frá Brvggju í Eyrarsveit um 1870 Frá Báirar-Ólafi og Gísla Gunriarssyni. Ölafur hét maður Guðmunds- son frá Bár í Eyrarsveit á Snæ- fellsnesi. Hans fyrstu kynni af Vestureyjum voru þau, að liann lirakti úr hákarlalegu í suðvestan- roki og byl undan Eyrarsveit, norður um Breiðafjörð, til Her- gilseyjar. Upp úr þeim hrakningi réðst það, að hann flutti húferl- uin til Flateyjar og hjó í Innsta- bæ, en jafnan var hann kenndur við æskúheimili sitt og kallaður Bárar-Ólafur. Ólafur var hiiin mesti atgjörv- ismaður, stór sem tröll og höfð- inglegur ásýndum, orðheppinn og skemmtinn. Gleðimaður, radd- maður mikill og söngvinn, enda hagmæltur. Ókunnugur maður mætti hon- uin einhverju sinni á förnum vegi, og spurði, hvort hann væri ekki Ólafúr frá Bár. Ólafur svaraði: Allt er eami Ólafur, Ólafur-Bárar slyngur, Innstabæjar-Ólafur, Ólafur Flateyingur. Ólafur var ágætur formaður og aflasæll, og svo harðfengur, að sagt var, að aldrei setti hann upp véttlinga á sjó. — Hann reri marg- ar vertíðir undir Jökli eftir að hami fluttist til Flateyjar, og stundaði hákarlalegur úr Flatey. Skip hans hét Gustur. Um það kvað hann, þegar það var orðið gainalt og slitið: Rán )>ó bulli, og ricVugur reflu lillur dusti. Alltaf sullast Ólafur ( á hálffullum Gusti. Einu sinni hafði Ólafur legið viku til byrjar í Bjarnareyjum. Ætlaði hann þá á Gusti til út- róðra undir Jökul. Þetta var að liðnum Þrettánda. Loks kom sjó- veðrið, norðaustan stinningskaldi með hörkufrosti. Þá var Gísli Gunnarsson í Flatey og þurfti að komast út tindir Jökul, því að þar ætlaði hann að vera formaður fyrir skipi um veturinn. Biður hann Ólaf um far úteftir, og er það auðsótt. Var nú lialdið af stað snemma morguns; lætur ól- afur vinda upp bæði seglin og siglir djúpleið. Þegar komið er nokkuð frá eyjum, hvessir svo, að Ólafur skipar að hleypa niður fokkunni. Litlu síðar skipar ólaf- ur að einrifa seglið, því að skipið þoldi ekki meira. Gísli liggur í farangrinum aftur í skutnum og horfir upp í loftið milli þess, sem hann sýpur á breimivínskútnum. Ölafi þótti gott vín en bragðaði það aldrei á sjó. Þegar þannig hefur verið siglt um stund, segir Gísli við ólaf: „Viltu lofa mér að stýra, ólafur?“ — „Já, það vil ég feginn“, segir Ólafur, „og taktu við“. — Tekur nú Gísli við stjórn- inni og kallar: „Upp með fokk- una, drengir“. — „Gustur þolir það ekki“, segir Ólafur. „Það er komið ofsaveður“. „Ekki mun of snemma komið í Rifsós, Ólafur“, segir Gísli, „og takið úr báða rif- ina, piltar“. — Æddi þá skipið áfram í grænni tóft, því að svo var það hlaðið, að ekki gat það fleytt kerlingar. „En þegar við lentum j^Rifsós". | sagði Ólafur síðar, „vorum við ekki fyrr kornnir út úr skipinu, en á skall blindbylnr, en ennþá ; get ég ekki skilið í þeirri stjóru, ; sem Gísli bafði á skipinu. Var hún með meiri nákvæmni en ég gat veitt eftirtekt, og er ég þó gamall formaður“. Gamall maður í Flatey, sem sagt hefur frá þessari siglingu þeirra félaga, segir að stjóra Gísla Gunnarssonar á opnum skipuin hafi verið rómuð þar í eyjum á æskuárum sínum og margar sög- ur gengið um snilli lians og dirfsku í sjóferðum. Og talið hefði verið, að enginn kæmizt til jafns við liann þar uin slóðir, annar en Hafliði í Svefneyjum. Ólafur Guðmund880ii varð há- aldraður og dó í Flatey hjá dótt- ur sinni, Sigurborgu, og manni hennar, Eyjólfi bónda Jóhanns- syni, Eyjólfssonar í Svefneyjum.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.