Þjóðólfur


Þjóðólfur - 24.05.1943, Qupperneq 4

Þjóðólfur - 24.05.1943, Qupperneq 4
III. árg. 20. tbl. PIOBMPIE 24. maí 1943. II FÁUM ORÐUMI Jf SAMGÖNGUR. Snjóalög á fjallveg- um eru með meira móti að þessu sinni. Munu því samgöngur á landi milli lands- fjórðunga hefjast með seinna móti í vor. Á akveginum milli Reykjavíkur og Ak- ureyrar er víða mikill snjór enn. Á Holtavörðuheiði er allmikill snjór. Á Vatnsskarði er hins vegar lítill snjór, en mikill í Öxnadal. Eru því ekki lík- ur til, að samgöngur á landi miUi Reykjavíkur og Akureyrar hefjist að svo stöddu. — Á vesturleiðinni er Bratta- brekka enn ófær af snjó. Og sama máli gegnir um Fróðárheiði. ★ MÁNAÐARBLAÐIÐ „EINING“. Þetta blað er einskonar heimilisblað um uppeldismál, bindindismál, íþróttir o. fl. Standa að því 4 félög: Stórstúka íslands, Iþróttasarnband íslands, Ungmennafélög- in og Samb. bindindisfélaga í skólum. Ritstjóri er Pétur Sigurðsson erindreki. Blaðið hóf göngu sína í nóvember, og eru nú komin út 6. tölublöð og hið 7. á leiðinni. — Þetta blað hefur þegar tekið ýiiis þjóðþrifamál til meðferðar, og sést hvarvetna handbragð ritstjórans, sem nú er löngu þjóðkunnur sem einn af vorum duglegustu áhugamönnum um hverskyns siðbætur og smekkvísa líf- ernisháttu með þjóðinni. — Lang al- mennast er það meðal slíkra kenni- manna, að þar gæti um of þröngra sjón- armiða og æsings fyrir einstökum mál- um. — En Pétur hefur lært af lífinu, og honum eykst víðsýni með hverju ári sem líður. — Hann hefur verið flestum fljótari að skapa sér skilning á því (sjá m. a. 17. tbl. Þjóðólfs), að siðbótastarf- semi meðal fólksins geti engan varan- legan árangur borið, ef ekki verði fyrst og fremst hugsað um að leiðrétta og siðbæta sjálft þjóðskipulagið. ir HELGAFELL, janúar—marz hefti þessa árgangs, er nýlega komið út, fjöl- breytt að efni og hið læsilegasta. — Gylfi Þ. Gislason dósent ritar um til- lögur Beveridge um almannatryggingar, Torfi Ásgeirsson og Alva Myrdal um skoðanakönnun, Sigurður Einarsson dós- ent um henginguna í háskólakapellunni, Björn Guðfinnsson um stafsetningu og framhurð, dr. Einar Ól. Sveinsson grein, er hann nefnir Tvœr kvenlýsingar, Jó- hann Gunnar Ólafsson um Sigurð Breið- fjörð og tvíkvœni hans og Sig. Guð- mundsson um Hallgrímskirkju. — Auk þess er í ritinu ljóð eftir Hjalmar Gull- berg og Guðfinnu frá Hömrum, síðari hluti af grein Ólafs Lárussonar, Undir Jökli, greinaflokkarnir Um- horf og viðhorf, Mergurinn máls- ins, Léttara hjal og Bókmenntir. Vér ertim vestræu þjó» Frh. af 1. síðu. upp starfhæft og rökrétt demókratiskt stjórnarform. — MeS þessu móti gætum vér haldið oss í fararbroddi vest- rænnar stjórnarfarsmenningar, eins og bæði saga vor og allar aðstæður eiga að geta leyft oss. En ef oss henti slíkt slys að fara að elta austræna stjórn- farsþróun, sem ekki hefir enn náð hinu vestræna stigi góðvilja og tiltrúar, þá væri það sama og að lenda aftur fyrir þá öft- ustu og setjast í fyrsta bekk í skóla stjórnvísinnar. -----o---- Fjölnir Eftir 15. júní verða ekki afgreiddar fleiri pantanir af fyrsta árgangi Fjölnis, hvorki til búða né einstakl- inga. Nokkrum eintökum verður þó haldið eftir handa áskrifendum að öllu verk- inu. Framhald Fjölnis verður ekki selt í bókabúðum, held- ur eingöngu til áskrifenda. Tekið verður á móti áskrift- um í Lithoprent, sími 5210 eða af starfsmönnum firm- ans. Hversu hátt upplag verður prentað af þeim átta árgöngum, sem eftir eru, svo og hvort tiltækilegt þykir að prenta viðbót við fyrsta ár- ganginn, verður algerlega undir væntanlegum áskrif- endafjölda komið. Verð til áskrifenda miðast við 10 aura á síðu, eða kr. 1,60 á örk, en verkið verður allt um 1130 bls. Verð til þeirra áskrifenda, sem greiða öll heftin fyrirfram, verður 113 kr., en 93 kr. til þeirra, sem þegar hafa keypt fyrsta ár- ganginn. Áskrifendum, sem greiða fyrirfram, verða send heftin hvert á land sem er jafnóðum og þau eru full- prentuð, þeim að kostnaðar- lausu. Hins vegar verður öll- um öðrum áskrifendum ut- an Reykjavíkur send heftin gegn póstkröfu. Þeir 8 ár- gangar, sem óprentaðir eru, verða heftir tveir og tveir saman. Þeir áskrifendur, sem bú- settir eru í Reykjavík og í nágrenni bæjarins, vitji bóka sinna í Lithoprent sam- kvæmt nánari auglýsingum síðar. Við viljum eindregið taka það fram, að þegar full ákvörðun hefur verið tekin um upplag alls verksins, verður ógerningur að bæta við nýjum áskrifendum. Með þakklæti fyrir hinar óvenju góðu undirtektir, sem Fjölnir hefur hvarvetna mætt. Virðingarfyllst LITHOPRENT. Tilkynning til innflytjenda. Vegna hækkunar flutningsgjalda á vörum, sem fluttar eru frá Ameríku, hefur viðskiptaráðið ákveð- ið til bráðabirgða, að innflytjendur skuli haga verð- lagningu vara, sem ákvæði um hámarksálagningu gilda um, þannig, að í kostnaðarverði þeirra vara, sem fluttar eru frá Ameríku og komið hafa til lands- ins eftir 8. maí 1943, annara en kornvöru, kaffis, sykurs, fóðurbætis og smjörlíkisolíu, megi ekki reikna nema % greidds flutningsgjalds, en síðan sé heimilt að bæta ^3 flutningsgjaldsins við verð vör- unnar, eftir að heimilaðri álagningu hefur verið bætt við kostnaðarverðið. Ofangreind bráðabirgðaákvæði falla úr gildi, að því er snertir einstaka vöruflokka, jafnóðum og út verða gefin ný ákvæði um hámarksálagningu á þá, en þó ekki síðar en 20. júní n. k. Með tilkynningu Viðskiptaráðsins frá 11. marz s. 1. var vakin athygli á því, að bannað væri að selja nokkra vöru, sem ákvæði um hámarksálagningu gilda ekki um, hærra verði en hún var seld við gild- istöku laga um verðlag nr. 3, 13. febrúar 1943. Nú hefur Viðskiptaráðið ákveðið, að hækka megi verð á vörum, sem svo er ástatt um og komið hafa til landsins frá Ameríku eftir 8. maí 1943, fyrir þeim kostnaði, sem leiðir af hækkuðum flutnings- gjöldum. Álagningin má þó ekki vera hærri en hún var áður á sömu eða hliðstæðum vörum og skal hún vera miðuð við kostnaðarverð að frádregnum V3 greidds flutningsgjalds. Ráðstafanir þessar eru gerðar til þess að koma í veg fyrir að álagning á hækkun farmgjaldsins valdi ónauðsynlegri verðlækkun á þeim vörum, sem um er að ræða, og er ekki ætlað að gilda nema þar til tími hefur unnizt til þess að gera þá breytingu á álagn- ingu, sem nauðsynleg er vegna hækkunar farm- gjaldanna. Reykjavík, 21. maí 1943. VERÐLAGSSTJÓRim.. . Úr annálum »hinna ábyrgu« Frh, af 1. síðu. an við komniúnista og styddu bak við tjöldin framboð Ein- ars Olgeirssonar í Reykjavík. I ritstjórnargrein í aðalmálgagni Framsóknarflokksins, Nýja dagblaðinu, var þessi áburður lýstur tilefnislaus rógur. Ennfremur ritaði þáverandi og núverandi formaður flokks- ins grein í blaðið 9. maí og lýsti þessi ummæli tilhæfulaus- an uppspuna. Sór formaðurinn fyrir öll tengsl Framsóknar- flokksins við kommúnista og kvað liann hafa í eitt skipti fyr- ir öll tekið af öll tvímæli um afstöðu sína til kommúnista. — Segir í yfirlýsingu formannsins m. a. á þessa leið: Framsólmarmenn líta á kommúnista sem þýóingarlitla, en þó hættulega andstœZinga. Þeir eru þýóingarlitlir vegna síns litla fylgis og vonlausa málstaSar. En þeir eru hœttuleg- ir af því, áð þeir hafa sameiginlegt meó nazistum og sum- um Mbl.-mönnum ofbeldissýkina og fyrirlitningu fyrir lög- um og rétti. Framsóknarrnenn hafa skiliÓ betur þessa hœttu en nokk- ur annar flokkur. Flokksþing Framsóknarmanna í vetur mark- áSi skýrt afstöSuna um algera mótstöSu gegn öllum bylting- aráðgerSum í félagslífinu“.------- ★ Röskum mánuði síðar var enn mn þetta efni fjallað í ritstjórnargrein í Nýja daghlaðinu. Er þar látið svo um mælt: „Þó Nýja dagbláðifi telji, oð fylgi Framsóknarflokksins stafi ekki nein hœtta af þessari röksemd . . . vill þáö samt, af því Framsóknarflokknum er œtluS sú svívirSa á8 hann muni hafa stjórnarsamvinnu viS kommúnista mótmœla þessu tafarlaust, svo oð enginn blettur falli á Framsóknarflokkinn í því sambandi . . .“. Síðar í þessari sömu grein er svo prentuð upp yfirlýsing flokksþingsins um afstöðuna til kommúnista og bætt við svo- hljóðandi ummælum: „Þessi yfirlýsing sýnir þáó því nœgilega skýrt, svo eng- inn óvitlaus máSur œtti að geta um villzt, oð Framsóknar- flokkurinn mun ALDREI hafa neina samvinnu viS komm- únista“. ★ Degi síðar flytur Nýja dagblaðið enn ritstjórnargrein um kommúnista og afstöðu Framsóknarflokksins. í þeirri grein er m. a. dvalið allítarlega við hin tíðu skoðanaskipti kommún- ista vegna hlýðnisafstöðu þeirra til valdhafanna í Rússlandi. Við þau ummæli er bætt svohljóðandi ályktunarorðum: „Þó ekki vœri annar annmarki á kommúnistaflokknum en þessi eini, er hann nœgur til þess, að engum ábyrgum stjórnmálaflokki getur komiS til hugar að eiga neitt undir honum eða hafa viS hann nokkuS samstarf, því að foringjar flokksins geta enga tryggingu fyrir því sett, hvort sú stefna, sem þeir þykjast hafa í dag, verSi varanleg, og hvenœr þeim verSur skipáö að breyta til og taka upp nýja „taktik“ nœst“. ★ Þingflokkur Framsóknarmanna hefur víst verið algerlega óminnugur þessara ummæla nú síðustu mánuði. Hann legið hundflatur fyrir kommúnistum og betlað um stuðning þeirra til að koma á laggirnar ríkisstjórn, er kommúnistar ættu full- trúa í. Leiðtogar Framsóknarflokksins hafa ekki hert róðurinn gegn vaxandi íhlutun „landráðamannanna,,, lieldur hafa þeir grátbeðið um að mega segjast í sveit þeirra. Það hefur verið strikað yfir öll stóru orðin um „útsendara erlenda valdsins”, en þess beiðst að mega leiða þá upp í ráðherrastólana. Eru ómerk orðin frá 1937 eða hefur Framsóknarflokkurinn kosið sér sjálfum það hlutskipti, er hann hefur jafnan reiknað kommúnistum til liöfuðsyndar? Tilkynning frá Landbúnaðarráðuneytinu. Samkvæmt heimild í lögum um dýrtíðarráðstaf- anir frá 4. apríl 1943, hefur landbúnaðarráðuneyt- ið, með samþykki Búnaðarfélags íslands, gert ráð- stafanir til að lækka verulega útsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, kjöti og kjötvörum. Tilgangurinn með þessari verðlækkun var meðal annars sá, að gera almenningi kleift, að auka neyzlu á þessum hollu og næringarmiklu fæðutegundum. Ráðuneytið vill því hérmeð beina því til almennings að athuga vel hve hagkvæmt það er að kaupa þessar vörur nú og auka neyzlu sína á þeim. Jafnframt tilkynnist að söluverð á framangreind- um vörutegundum verður ekki lækkað, frekar en orðið er, til 15. september 1943. Landbúnaðarrá&uneytið 15. maí 1943.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.