Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.1985, Side 7
Nr. 522
1022
15. ágúst 1984
Þvcrmál liigna fyrir CO,.
Magn (kg). Þvermál (mm).
45 13
100 19
135 25
275 32
450 38
1100 50
2000 76
Efnisþykkt lagna fyrir C02.
Ytra þvcrmál D Lagnir frá CO, hylkjum að Lagnir frá stjórn-
(mm) stjórnloka. loka að stútum.
21,3—26.9 3,2 2,6
30.0—48,3 4,0 3,2
51,0—60,3 4,5 3,6
63,5—76,1 5,0 3,6
2.2.3.8. Lagnir skal leggja þannig, að þær verði ekki fyrir hnjaski. Skulu
þær vera úr heildregnu viðurkenndu efni og ryðvarðar. Legar
uppsetningu búnaðarins er lokið, skulu lagnirnar þrýstiprófað-
ar. Skal sá hluti lagnarinnar, sem stöðugur þrýstingur er á, próf-
ast við 13 N/mm2 þrýsting og hinn hluti lagnanna við 2,5 N/mnv.
2.2.3.9. Hæfilegur fjöldi stúta skal vera undir gólfi vélarúms.
2.2.3.10. Geymsluhylki fyrir C02 — slökkvimiðil skal geyma í sérstöku
rými utan vélarúms á öruggum og aðgengilegum stað. Rýmið
skal véra vel einangrað og loftræst. Öll op að slíku rými skulu
vera frá opnu þilfari. Öll þil og þilför rýmisins, sem liggja að
vistarverum, vinnurýmum, lestarrýmum og vélarúmum, skulu
vera fullkomlega loftþétt.
2.2.3.11. Einstefnuloki skal vera við hvert hylki, þannig að unnt sé að
aftengja þau, án þess að búnaðurinn verði við það óstarfhæfur
eða C02 leki út.
2.2.3.12. Unnt skal vera að prófa búnaðinn með lofti, án þess að C02 leki
út úr lögnum eða hylkjum.
3. Reykköfunartæki.
3.1. Öll fiskiskip 300 brl. og stærri, skulu búin tvennum reykköfunartækjum af
viðurkenndri gerð.
3.2. Öll fiskiskip 100 brl. og stærri, en minni en 300 brl., sem búin eru lokuðu
hlífðarþilfari, skulu búin reykköfunartæki af viðurkenndri gerð.
3.3. Hverju reykköfunartæki skal fylgja líflína úr hitaþolnu efni, ekki styttri en 20
metrar. Hverju tæki skulu einnig fylgja nægar- loftbirgðir í samræmi við ákvæði
greinar 3.4.
3.4. í skipum undir 500 brl. skulu loftbirgðir hvers reykköfunartækis duga til a. m. k.
einnar klukkustundar notkunar miðað við 30 lítra loftnotkun á mínútu. í skipum