Íþróttablaðið - 01.03.1941, Blaðsíða 18

Íþróttablaðið - 01.03.1941, Blaðsíða 18
16 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Aðalfundur íþróttasambands íslands uerður haldinn i Reykjavík í lok júnimánaðar nœsíkomandi. Dagskrá samkuœmt 6., l.og 10. grein laga Í.S.I. Fulltrúar eiga að mœta með kjörbréf. Nánar auglýst siðar. Reykjauík 19. marz 1941, Stjórn í. S. í. Skjaldarglíma Ármanns. Frh. af bls. 11. glímu til þess að laga þau á sér. — Verður að gefa stjórnendum glímunnar nokkra sölc á þessu, því að þeir eiga að sjá um, að þetta sé í góðu lagi, áður en glím - an liefst. Það hefir jafnan verið talinn viðburður i íþróttalífi bæjarins, þegar Skjaldarglíman hefir ver- ið báð, sem venjuleg'a hefir verið í febrúar ár hvert. Oft hafa menn skemnit sér vel við að horfa á glímuna, enda hafa þar tekizt á beztu glímumenn landsins fyr og síðar, þótt oft hafi þeir staðið á mjög mismunandi þroskastigi sem glímumenn. Einkum hafa á- horfendur látið í ljós þá skoðun, að glímunni hafi hnignað á sið- ari tímum, en þess ber að gæta, að þegar ein glíma hefir farið fram, þá heyrir hún fortíðinni til, og menn geta deilt um hana og hver haft sína skoðun án í- hlutunar staðreyndanna. Því að þá er ekkert annað að styðjast við en vinningafjölda keppend- anna, sem skráður hefir verið meðan glíman fór fram. Hvort sem þetta álit áhorfendanna um hnignun glímunnar er að meira eða minna leyti rétt, þá liygg ég, að allir séu sammála um, að glíman eigi ekki að detta úr sög- unni, heldur að halda áfram að verða viðburður í íþróttalífi hæj- arbúa, og ná aftur sínum fyrri vinsældum. Það spáir góðu um framtíð glímunnar, að hinn nýskipaði í- þróttafulltrúi ríkisins — Þor- steinn Einarsson — er mjög góð- ur glímumaður, og hefir heil- steyptan áhuga fyrir vexti og við- gangi hennar, ank þess sem hann er alhliða íþróttamaður og hefir þess vegna víðtæka þekkingu á í þróttamá 1 u m þj óðarinnar. Þorsteinn Kristjánsson. Skólasundið fór fram 3. marz s.I. Undanfarin 3 ár hefir Háskólinn orðið sigur- vegari í þessu sundi, en nú varð Iðnskólinn hlutskarpastur. Timi hvers skóla varð sem hér segir: 1. Iðnskólinn 17 mín. 51.7 sek. 2. Menntaskólinn 18 — 7.7 — 3. Verzlunarsk. 18 36.9 4. Gagnfr.sk. íRv. 19 — 13.6 Vegna formgalla var Háskól- inn dæmdur úr leik. íþróttamenn! Útbreiðið íþróttablaðið.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.