Íþróttablaðið - 29.09.1952, Side 2
2
ÍÞRÓTTÁBLÁÐIÐ
|
Dr. Carl Diem:
Aldur íþróttamanna og drangur
Aldur íþróttamanna og árangur.................
Einn af þeim mörgu leiðtogum frjálsíþróttahreyfingarinnar í heim-
inum, sem fluttu fyrirlestra á íþróttaráðstefnunni, sem haldin var
að Vieromaki í Finnlandi í sumar, og getið hefur verið hér í blað-
inu, var prófessor dr. Carl Diem. Hann er mörgum hér að góðu
kunnur og kom m. a. hingað til lands sl. ár. Nokkrum íslenzkum
íþróttamönnum hefur að tilhlutan hans verið boðið til námsdvalar
í Þýzkalandi undanfarin ár. Erindi dr. Carls Diem fer hér á eftir
lauslega þýtt og nokkuð stytt.
Á Ólympíuleikunum í Lon-
don 1948 vann brezki grinda-
hlauparinn Finlay Ólympíu-
eiðinn. Hann var þá réttra
40 ára, svo að maður hefði
getað ímyndað sér, að verið
væri einungis að heiðra gaml-
an íþróttakappa. En hvað
skeður? Finlay var einn af
keppendunum í 110 m. grinda-
hlaupi og hafði náð ágætum
árangri, þegar hann varð fyr-
ir því óhappi að hrasa á síð-
ustu grindinni. Og það skyldi
haft í huga að þessi íþrótta-
grein krefst hvað mest hraða,
snerpu og mýkt allra keppnis-
greina.
Það var þetta atvik, sem
kom mér til þess að hefja at-
hugun á aldri Ólympíukepp-
enda 1936 og 1948.
Ólympíuleikarnir 1936.
Þá voru 16,2% keppenda yf-
ir 30 ára og 15% verðlauna-
manna. 13,5% voru undir 20
ára og 13,75% verðlauna-
mannanna. Þá voru ungar
stúlkur sérstaklega sigursæl-
ar í frjálsum íþróttum.
Kringlukastið sigraði 16
ára stúlka (Ko Nakamura)
og í hlaupum og stökkum
voru fjórir sigurvegararnir
17 ára. 1 frjálsum íþróttum
var 8% yfir 30 ára og 7%
undir 20 ára. 6% verðlauna-
mnna var yfir 30 ára og 9%
undir 20 ára. 1 lyftingum voru
15% yfir 30 ára og 2,5% und-
ir 20 ára. 10% glímumanna
voru eldri en 30 ára, en 6%
yngri ein 20 ára. 10,5% fim-
leikamanna var yfir 30 ára
en 4,5% yngri en 20 ára. —
Yngsti þátttakandi í þeirri
grein var 18 ára, en sá elzti
38. Yngsta stúlkan var 15 ára,
en yngsti sigurvegarinn var
18 ára.
1 skylmingum kvenna voru
50% „eldri“ en 2,5% „yngri“.
Yfirburðir „eldri“ keppend-
anna voru afar miklir (43:2).
I skotfimi voru 69,6% eldri
en 30 ára, en aðeins 1,4%
yngri en 20 ára. Og helmingur
verðlaunamanna var yfir 30
ára.
1 reiðlist kemur þó reynslan
að enn frekari notum, 69,5%
eru eldri en 30 ára, en hvorki
meira né minna en 72 þeirra
hlutu verðlaun.
1 kappróðri voru 9,8% eldri
en 30 ára en 10,2% yngri en
20 ára. Hlutfallið milli verð-
launamannanna var 8,2:12,3.
Æskan hafði undirtökin í
sundi og hnefaleik. Enginn
hnefaleikaranna var eldri en
30 ára, en 31% var yngri en
20 ára. 1/4 hluti verðlaun-
anna fór til hinna ungu. Að-
eins 1/2% sundmanna var
eldri en 30 ára, en 42 % %
var yngri en 20 ára. Engin
sundkona var „gömul“, en 70
% þeirra voru „ungar“. 50%
verðlaunamanna og 77 % verð
launakvenna voru yngri en 20
ára. Yngsti sundmaðurinn var
Ungverjinn Erdelyi, 13 ára
(100 m. baks. á 1:14,7 mín.).
Þrír voru 15 ára, þrír 16 ára
og níu 17 ára. Þrír verðlauna-
menn voru 18 ára, þrír 19 og
sjö 20 ára.
Danska sundkonan Inga
Sörensen var aðeins 12 ára og
vann brons (200 m. bringu-
sund 3:07,8 mín). Ein sund-
kona var 13 ára, þrjár 14 ára,
fjórar 15 ára og fjórtán 16
ara.
Ólympíuleikarnir 1948.
Mér þykir leitt, að ég hefi
ekki upplýsingar um aldur
allra keppenda á þessum
Ólympíuleikum. Eg hef þegar
getið um Finlay. 1 sama hlaupi
bætti Lidman tíma sinn frá
Ólympíuleikunum 1936 um
1/10 úr sek., hljóp nú á 14,3
sek. Nú var hann 33 ára. —
Svarti hlauparinn, Cochran,
sem sigraði 400 m. grinda-
hlaupið á 51,1 sek. var einnig
33 ára. Englendingurinn Ro-
berts (36 ára) og Suður-
Afríkumaðurinn Shore (33
ára) voru einnig þátttakend-
ur í Berlín 1936 og stóðu sig
nú báðir með prýði. Ameríski
pretthlauparinn Ewell, 32 ára
varð annar í báðum sprett-
hlaupunum. Þær greinar, sem
krefjast snerpu og líkamlegra
krafta, útiloka á engan hátt
þá, sem komnir eru af ung-
lingsárunum. Gríski kringlu-
kastarinn Syllas, sem var
meðal þeirra fremstu 1936,
bar ennþá af ásamt þeim Con-
solini og Tosi frá ítalíu, sem
báðir voru um fertugt, en þó
aldrei betri en þá. Sigurvegar-
inn í spjótkasti, Finninn Rauta
vaara, var 34 ára.
Áhaldafimleikar krefjast
krafta og mikillar samþjálf-
unar alls líkamans. Finninn,
dr. Savolainen sýndi alveg
einstaka leikni, og var þó 41
árs. Norðmaðurinn Brunn 33
ára, náði ágætum árangri í
10 km. göngu. Englendingur-
inn JoDnson, 48 ára, varð 3.
í 50 km. göngu. Jafnaldri hans
var 2. í maraþonhlaupi, þeirri
þolraun æskumanna. Sigur-
vegarinn varð Cabrera frá
Argentínu, 32 ára gamall.
M*ðal kvenfólksins má hér
nefna frú Blankers-Coen, fjór-
faldan Ólympíumeistara, 2ja
barna móðir, 32 ára, og hún
er sennilega í enn betri þjálfun
nú (36 ára) þó að hún yrði
fyrir óhöppum á Ólympíu-
leikunum í ár. Tyler-Odam
varð önnur í hástökki (28
ára) eins og á Ólympíuleik-
unum 1936, en náði þó betri
árangri nú. Spjótkastið sigr-
aði Bauma, 33 ára, hún varð
4. 1936. I skylmingum sigr-
aði Schacherer bæði 1936 og
1948, þá 41 árs. Og enn fleiri
mætti telja.
Aðrar aldursathuganir.
Von Cramm er nú 42 ára,
en þó einn af fremstu tennis-
leikurum Þýzkalands. —
Frönsku meistararnir Barotra
54 ára og Cochet 51 árs, eru
einnig óþægir ljáir í þúfu
helmingi yngri keppinauta
sinna. Brezki kappræðarinn
Jack Beresford tók árlega þátt
í keppni frá 1919 til 1939.
Hann vann Ólympíuverðlaun
á öllum leikjunum frá 1920—
1936, og hélt upp á 50. afmælis
daginn sinn í róðrarbátnum.
Eg hef áður getið þess, að
sundið sé einkum kappgrein
æskunnar, en þá langar mig
að geta tveggja kappa, sem
unnu merkileg afrek, þó að
þeir væru þá ekki beinlínis á
unglingsárunum! Arne Borg,
sænski sundmaðurinn heims-
f rægi, synti 100 metrana á 48
afmælisdeginum sínum á 1:05,
6 mín. Og Johnny Weissmull-
er var orðinn 47 ára, þegar
honum entist ekki lengur
mínútan á þeirri vegalengd.
I 25 ár hafði hann þá synt
100 m. undir 60 sek.
1 þeim greinum, sem mest
reynir á þolið, standa hinir
eldri sig oft mjög vel. Á ár-
inu 1937 setti Finninn Salmín-
en, fimm barna faðir, 35 ára,
3 heimsmet í langhlaupum.
Landi hans, Stenroos, var 42
ára, þegar hann sigraði í
Maraþonhlaupinu árið 1924.
Fritz Blankenberg var 61 árs,
þegar hann keppti í Maraþon-
hlaupinu í Weilburg 1950 og
varð 29. Og að lokum má geta
„sænska æfa“, 66 ára, sem
sigraði í sumar í hjólreiða-
keppninni miklu suður alla
Svíþjóð, meira en 1750 km.
Honum var bannað að taka
þátt í keppninni vegna elli!
Keppni á unga aldri.
Aritsoteles ræðir um það,
á einum stað í ritum sínum,
hver áhrif það geti haft, að
unglingar taki þátt í harð-
vítugri keppni. Hann segir, að
menn sem á unga aldri taka
þátt í keppni drengja og ung-
linga verði sjaldan síðar sig-
urvega/ar á Ólympíuleikjum.
Þessi fullyrðing hans var
byggð á langri reynslu
Grikkja. Hann segir, að ung-
lingurinn oftaki sig á kapp-
mótum unglinganna, svo að
hæfileikar hans fái ekki notið
sín, þegar hann hefur öðlast
fullan þroska. Hann ráðleggur
mönnum að byrja ekki erf-
iða þjálfun fyrr eri þrem ár-
um eftir kynþroskaaldurinn,
þ. e. a. s. um það bil 17 ára,
en hins vegar sé ekkert á móti
því að byrja fyrr á léttari
ævingum. Þjálfun í hans aug-
um var hámarksáreynsla. —
Sem undantekningu er þó get-
ið eins 12 ára sigurvegara ár-
ið 368 f. Kr.
En hvert er núna viðhorf-
ið til „undrabarna" á sviði
íþróttanna? Meðal .Ólympíu-
keppendanna má sjá nokkra
unglinga — verða þeir jafn
sigursælir þegar þeir eldast?
Eg skal nefna nokkur
dæmi: Maureen Conolly varð
tennismeistari 1934, þá ekki
16 ára, og í ár sigraði hún í
einmennings keppni kvenna á
Wimbledon. Þýzku fimleika-
kapparnir Dickhut, Bantz
og Wied bræðurnir voru 17
og 18 ára, þegar þeir voru
í úrslitakeppninni. I skauta-
íþróttinni er Sonja Heine, sem
hóf íþr.feril sinn 11* ára með
þátttöku í Ólympíuleikunum
1924. 12 og 13 ára stúlkur
vöktu og mikla athygli á síð-
ustu vetrar-Ólympíuleikum.
Ólympíusigurvegarinn Ric-
hard Button var 18 ára. Að
lokum skal svo getið Bob
Mathias sem var 17 ára, þeg-
ar hann varð sigurvegari í
tugþraut á Ólympíuleikunum
1948 og hlaut 7139 stig. 1
Helsingfors sigraði hann svo
aftur, hlaut nú 8400 stig
(gamla taflan). Árangur
hans er aldeilis frábær: 100
m. 10,8 sek., 1500 m. 4:55,3
mín., 110 grind. 14,6 sek.,
langstökk 7,43, hástökk 1,898
m„ kúluvarp 15,21 m„ stang-
arstökk 3,742 m„ kringlu-
kast 48,15 m. og spjótkast
59,165 m.
Slíkur frábær árangur
unglinga stendur að nokkru
í sambandi við það, að kyn-
þroskaaldurinn hefur færst
fram, sé miðað við það sem
var um aldamótin. Ýmsir eru
á því, að slíkt verði til þess
að auka á heilbrigði manna
síðar í lífinu og jafnvel að
lengja líf þeirra. Eg verð
þó að draga almenna kenn-
ingu slíks eðlis í efa, og byggi
ég það á þeirri reynslu, sem
ég hefi aflað mér. Eg er á
þeirri skoðun, að það geti
verið mjög skaðlegt fyrir
unglinga á kynþroskaaldri að
leggja hart að sér við íþrótta-
þjálfun, af því að ég hygg að
þá séu þeir bæði líkamlega
og andlega veikgerðir, jafn-
vel þó kraftar þeirra virðist
nægir. ^
En með því að rannsaka
frekar aldur keppenda og ár-
angur, og fylgjast með
„undrabörnunum“, þá má
varpa ljósi á þessa. þýðingar-
miklu spurningu, hvenær
heppilegast sé að hefja hina
raunhæfu þjálfun, og hvort
ekki beri að hafa nánara eft-
irlit með keppni og erfiðum
æfingum unglinga, eða á
hvern hátt verði happadrýgst
að haga þjálfun þeirra. Er
það Aristoteles, sem hefur
haft rétt fyrir sér? Eða ná
þeir íþróttamenn lengst, sem
byrjuðu yngstir að keppa?
Það er mitt álit, að séu
án þess að unglingum sé ofgert
íþróttir þjálfaðar réttilega,
þá verði það til þess að lengja
líf okkar :— að við verðum
20 ár 20 ára — að við varð-
veitum æskugleðina og fjör-
ið, ákefðina og atorkusem-
ina, ráðsnilldina og baráttu-
gleðina við hættur og erfið-
leika fram á gamals aldur.
Ef þetta á eftir að sannast
með ýtarlegum rannsóknum
þeirra atriða, sesm ég hefi
hér drepið á, þá er það vissu-
lega þess virði að vera þjónn
íþróttanna og þá myndu þær
með réttilegri beitingu verða
sú heilsulynd, sem allt mann-
kynið gæti notið góðs af, og
veitt gætu fullnægingu
starfslöngun manna og nauð-
syn á hreyfingu. — Þetta er
einmitt hið gullna markmið
íþróttanna.
Drengjamót UMSS á Sanðárkróki
Drengjamót Ungmennasam-
bands SJcagafjarðar var háð
á SauðárJcróki 3. ágúst s.l.
Úrslit mótsins urðu þessi:
100 m.. hlaup: seJc.
1. Þorvaldur Óskarss. H. 11,9
2. Hörður Pálsson T. 12,0
1500 m. hlaup. m.
1. Stefán Guðmunds. T. 4:49,6
2. Sævar Guðmunds. H. 4:54,6
3. Guðjón Ólafsson H. 5:15,7
LangstöJcJc: m.
1. Gísli L. Blöndal T. 6,39
2. Hörður Pálsson T. 5,85
3. Þorvaldur"Óskarss. H. 5,25
ÞrístöJcJc: m.
1. Hörður Pálsson T. 12,50
2. Sigmundur Pálsson T. 12,10
3. Sævar Guðmunds. H. 11,97
HástöJcJc: m.
1. Sigmundur Pálsson T. 1,54
2. Sævar Guðmundss. H. 1,54
25 km. sund!
Frá því er skýrt í Austur-
Þýzkum blöðum að Anotolij
Sokurof hafi unnið þol-
sundskeppnina í sovét-rúss-
neska sundmeistaramótinu á
8 klst. 3 mín. og 45 sek. en
vegalengdin er hvorki meira
né minna en 25 km!
Kúluvarp: m.
1. Hörður Pálsson T. 13,37
2. Sigmundur Pálsson T. 12,84
3. Þorvaldur Óskarss. H. 12,72
KringluJcast: m.
1. Gísli L. Blöndal T. 39,57
2. Sigmundur Pálsson T. 33,65
3. Lúðvík Halldórsson T. 31,95
SpjótJcast: m.
Jón Vídalín frá Siglufirði
keppti sem gestur 59,30
1. Ólafur Gíslason G. 49,40
2. Sigmundur Pálsson T. 46,92
3. Lúðvík Halldórsson T. 9,87
Veður var sæmilega goít,
sólskin og norðan gola.
Sérstaka athygli vakti spjót
kast Jóns Vídalín, en hann átti
fjögur köst yfir 55 m.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
VIKUBLAÐ
Útgefandi: íþróttablaðið h.f.
Ritstjóri: Gunnar M. Magnúss
Pósthólf 1063, Reykjavík.
Blaðstjórn: Ben. G. Wáge, Guðjón
Einarsson, Gunnlaugur J. Briem,
Jens Guðbjörnsson og Þorsteinn
Einarsson.
Verð kr. 65,00 árg.
1 lausasölu kr. 1,50 blaðið.
Afgreiðsla á Amtmannsstíg 1.
Sími 4955,
HERBERTSprent Bankastræti 3
*