Íþróttablaðið - 29.09.1952, Qupperneq 4
4
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Ályhtonir bindindismdlalundarins i Keflavíh
Þann 14. september s.l. var
haldinn í Keflavík merkur
fundur bindindismanna og
annarra áhugamanna um
baráttu gegn áfengisbölinu.
Fundurinn sendi frá sér á-
varp til þjóðarinnar, þar sem
ítrekuð eru varnaðarorð gegn
því böli, sem áfengisneyzlan
býr þjóðinni, bæði andlega
og efnalega. Og þjóðin hvött
„til samtaka um það að
skapa það heilbrigða almenn-
ingsálit, að það sé hverjum
manni hneisa að skerða sjálfs-
stjórn sína, dómgreind og
siðaskyn með neyzlu áfengis.“
Á fundinum voru eftirfar-
andi ályktanir gerðar:
1. Almennur fundur um
bindindismál, haldinn í Kefla-
vík sunnudaginn 14. sept.
1952, skorar á Alþingi að láta
lögin um héraðabönn koma
til framkvæmda nú þegar,
það er, að kaupstaðir og
sveitafélög hafi ákvörðunar-
rétt um áfengissölu og áfeng-
isveitingar innan sinna tak-
marka.
2. Almennur fundur um
bindindismál, haldinn í Kefla-
vík sunnudaginn 14. sept.
1952, mótmælir bruggun
sterkari öltegunda, en þegar
eru framleiddar í landinu.
Fundurinn lítur svo á, að sala
á áfengu öli muni auka
drykkjuskap í landinu, sér-
staklega meðal æskunnar.
3. Almennur fundur um
bindindismál, haldinn í Kefla-
vík sunnudaginn 14. sept.
1952, skorar á ríkisstjórnina
að hlutast til um, að barna-
verndarnefndum í öllum bæj-
arfélögum og sveitafélögum
sé falið að vinna ötullega að
því að forða börnum og ungl-
ingum frá neyzlu áfengis.
Ennfremur bendir fundurinn
á nauðsyn þess, að eingöngu
bindindismenn skipi barna-
verndarnefndir og barna-
verndarráð, svo og að ráðu-
nautar nefndanna séu al-
gjörir bindindismenn.
4. Almennur fundur um
bindindismál, haldinn í Kefla-
vík sunnudaginn 14. sept.
1952, skorar á ríkisstjórnina
að láta framfylgja þeim lög-
um og reglugerðum, er banna
opinberum starfsmönnum eða
mönnum í ábyrgðarmiklu
starfi að neyta áfengis við
störf sín.
5. Almennur fundur um
bindindismál, haldinn í Kefl-
vík sunnudaginn 14. septem-
ber 1952, skorar á fræðslu-
málastjórnina, að reglugerð
um bindindisfræðslu frá 1936
verði framfylgt, og fræðsla
í skólum um skaðsemi áfeng-
is verði aukin.
6. Almennur fundur um
bindindismál, haldinn í Kefla-
vík sunnudaginn 14. septem-
ber 1952, bendir á nauðsyn
aukins lögreglueftirlits á al-
mennum skemmtisamkom-
um og skorar á alla, sem fyrir
slíkum skemmtunum standa,
að setja metnað sinn í, að þær
fari fram með reglusemi og
háttvísi.
7. Almennur fundur um
bindindismál, haldinn í Kefla-
vík 14. september 1952, bein-
ir þeim tilmælum til ung-
mennafélaganna, íþróttafélag-
anna, skátafélaganna og ann-
arra æskulýðsfélaga, að þau
taki þegar upp ákveðna bar-
áttu gegn áfengisnautn æsk-
unnar.
8. Almennur fundur um
bindindismál, haldinn í Kefla-
vík 14. sept. 1952, skorar á
Alþingi, að hækka stórlega
frá því, sem nú er, þá fjár-
hæð, sem veitt er á fjárlög-
um til bindindisstarfsemi í
landinu. Ennfremur, að ríkis-
sjóður launi 4—6 menn til
bindindisfræðslu og út-
breiðslu bindindis, enda starfi
þeir undir stjórn Stórstúk-
unnar.
9. Almennur fundur um
bindindismál, haldinn í Kefla-
vík 14. sept. 1952, skorar á
útvarpsráð að gefa bindindis-
samtökunum kost á erinda-
flutningi mánaðarlega í út-
varpinu um áfengis- og bind-
indismál.
TuÉoutormeistn
Hothios iieiMur
Ameríski tugþrautameist-
arinn, Bob Mathias, sem á
Ólympíuleikunum í Helsing-
fors vann gullverðlaun í ann-
að sinn, og fór sigursæla
keppnisför um Evrópu að
þeim leikum loknum, hefur
varpað frægðarljóma á fæð-
ingarborg sína Tulare í Kali-
forníu. Að minnsta kosti álíta
samborgarar hans það, og
þeir eru stoltir af þessum syni
borgar sinnar. Svo mikið er
víst að nú hafa þeir í hyggju
að breyta nafninu á borginni
og skýra hana Mathiasville
honum til heiðurs. Upp frá
því ætti það ekki að verða
nein ráðgáta, hvar vagga
íþróttakappans stóð.
GETRAUNASPÁIN.
Framhald af bls. 3.
á gegn Tottenham, sem hefur
verið veikt og misjafnt í haust.
Bezt er að taka jafnteflismögu
leikann með til vara.
Stoke - Sheff. Wednesday x
Síðast þegar liðin voru í
sömu deild, skildu þau jöfn í
báðum leikjunum og senni-
lega má ekki í milli sjá er þau
hittast í fyrsta sinn á ný.
Sunderl. - Portsmouth 1 (lx )
Án efa einn af skemmtileg-
ustu leikjum dagsins og verð-
ur án efa gaman að viðureign
tríós heimaliðsins með mið-
frh. Trever Ford og v. inn-
herjann Len Shackleton sem
leiðandi menn, og hinnar
sterku framvarðalínu Ports-
mouth, Scoulars, Froggatts
og Dickinsons. Sunderland
hefur fengið 6 af 8 möguleik-
um.
Wolves - Manch. Utd. x
Tvö jöfnustu liðin eftir að
stríinu lauk og hafa bæði á-
vallt verið á toppnum eða þar
um bil. Eins og nú standa
sákir hjá báðum má gera ráð
fyrir jöfnum leik.
1 upphafsröð ágizkunarinnar
er því spáð 5 heimasigrum, 6
jafnteflum og 2 útisigrum. I
aftasta dálki töflunnar er út-
fylling 48 raða kerfis. •
Meðalaldur Ólympíusigurveg-
ara 24 ár
Til gamans og í sambandi
við hina athyglisverðu grein
dr. Charl Diem, sem birtist
á 3. síðu blaðsins i dag, fer hér
á eftir listi yfir nöfn og aldur
Ölympíusigurvegaranna í
frjálsum íþróttum frá því í
sumar:
Karlar: 100 m. hlanp: Rem-
igno, USA 21 árs.
200 m. hlaup: Stanfield,
USA, 22 ára.
1^00 m. lilaup: Roden, Jama-
ica, 25 ára.
800 m. hlaup: Whitfield,
USA, 27 ára.
1500 m. hlaup: Barthel,
Luxemburg, 26 ára.
5 og 10 km. hlaup og mara-
þonhlaup: Zatopek, Tékkó-
slóvakíu, 30 ára.
110 m. grind: Dillard, USA,
29 ára.
IjOO m. grind: Moore, USA,
22 ára.
3000 m. hindrunarhlaup:
Ashenfelter, USA, 25 ára.
Hástökk: Davis, USA, 22
ára.
Stangarstökk: Richards,
USA, 26 ára.
Langstökk: Biffle, USA,
24 ára.
Þrístökk: Da Silva, Brasi-
líu, 26 ára.
Kúluvarp: O’Brien, USA,
21 árs.
Kringlukast: Inezz, USA,
22 ára.
Spjótkast: Young, USA,
22 ára.
Sleggjukast: Csermak, Ung-
verjaland, 20 ára.
Tugþraut: Mathias, USA,
21 árs.
Konur: 100 og 200 m.
hlaup: Jackson, Ástralía, 20
ára.
80 m. grind: Strickland,
Ástralía, 24 ára.
Hástökk: Brand, Suður-
Afríka, 34 ára.
Langstökk: Williams, Nýja-
Sjálandi, 22 ára.
Kúluvarp: Sibina, Rúss-
landi, 21 árs.
Kringlukast: Romaschk-
owa, Rússlandi, 26 ára.
Spjótkast: Zatopkowa,
Tékkóslóvakíu, 30 ára.
Staða i brezku
keppninni
Blackpool
W B A
Liverpool
Wolves
Burnley
Charlton
Sunderland
Arsenal
Tottenham
Preston
9 7 1 1 29-13 15
9 7 0 2 16-9 14
10 6 2 2 18-13 14
10 6 2 2 18-15 14
10 5 3 2 14-10 13
9 4 3 2 22-19 11
9 5 13 11-13 11
10 4 3 3 17-15 11
10 4 2 4 17-18 10
9 2 5 2 13-11 9
Newcastle 9 3 3 3 14-12 9
Portsmouth 10 2 5 3 15-14 9
Manch. #td. 9 3 2 4 11-12 8
Middlesbro 9 3 2 4 13-15 8
Ghelsea 10 3 2 5 17-14 8
Cardiff 10 3 2 5 12-12 8
Sheff Wedn 9 2 3 4 8-14 7
Bolton 9 3 1 5 8-17 7
Stoke 10 3 1 6 11-18 7
A. Villa 9 2 2 5 11-18 6
Derby 9 2 1 6 12-17 5
Manch. City 9 1 2 7 11-19 4
Opið alla daga frá kl. 14 til 23.