Morgunblaðið - 15.01.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 15.01.2020, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020FRÉTTIR Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur www.ag.is ag@ag.is 510 7300   á skrifborðsstólum VETRAR TILBOÐ -30% Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) EIM -1,04% 190 EIK +7,05% 9,11 S&P 500 NASDAQ +0,65% 9.263,7 +0,32% 3.285,02 +0,36% 7.625,14 FTSE 100 NIKKEI 225 15.7.‘19 15.7.‘1914.1.‘20 1.600 80 1.798,51 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 64,64+3,54% 24.025,17 66,48 40 2.000 14.1.‘20 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 1.842,15 Einn af þremur flughermum fyrir- tækisins TRU Flight Training Ice- land hefur staðið óhreyfður í sex mánuði eða frá þeim tíma þegar þjálfun á Boeing 737 MAX-vélar stöðvaðist um allan heim. Þetta staðfestir Guðmundur Örn Gunn- arsson, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, sem er dótturfélag Ice- landair Group. Hermirinn var keyptur til landsins í tengslum við kaup Icelandair Group á 16 þotum af fyrrnefndri gerð. TRU Flight Training Iceland varði um milljarði króna við upp- setningu flughermisins. Nýtist einnig vegna leiguflugvélanna í vor Nú stefnir hins vegar í að hann verði tekinn í notkun að nýju í að- draganda þess að Icelandair tekur í notkun leiguvélar af gerðinni Bo- eing 737-800. Þeim er ætlað að fylla í skarðið sem MAX-vélarnar skildu eftir en þær hafa verið kyrrsettar frá því í mars í fyrra. Ekki liggur enn fyrir hvenær þeim verður heim- ilt að fljúga að nýju en Icelandair gaf það út í desember að það búist við því að kyrrsetningunni verði af- létt í síðasta lagi í maí næstkomandi. Guðmundur segir í samtali við Morgunblaðið að gera megi ráð fyr- ir því að þjálfun í herminum hefjist einhvern tíma í febrúarmánuði. „Það er gert ráð fyrir að vélarnar verði afhentar í mars og þá er lík- legt að þjálfunin verði farin af stað. Við getum bæði þjálfað á MAX og eldri týpur 737-vélanna á þessum hermi.“ Hann segist einnig búast við því að mikil eftirspurn verði eftir þjálfun í herminum þegar kyrrsetn- ingunni verður aflétt. „Við erum búin að gera marga samninga við fyrirtæki sem vilja þjálfa sína flugmenn á MAX- vélarnar hjá okkur. Svo er mikil þörf fyrir þjálfun flugmanna hjá Icelandair enda félagið með margar vélar af þessu tagi tilbúnar til notk- unar.“ Umtalsverð áhrif Spurður út í hvaða áhrif stöðvun MAX-hermisins hafi haft á fyrir- tækið segir Guðmundur að þau séu vissulega umtalsverð en að rekst- urinn hafi gengið vel þrátt fyrir það. Því ráði mikil eftirsókn í hina herm- ana tvo sem fyrirtækið rekur en þeir eru notaðir til þjálfunar á 757- og 767-þotum frá sama framleið- anda. „Nýtingin á hinum hermunum hefur verið með miklum ágætum og hlutdeild erlendra aðila hefur aukist mikið. Samtals hafa hermarnir verið með 31% erlenda nýtingu en Ice- landair hefur nýtt 69% tímans, þar af hefur 757-hermirinn verið nýttur 60% af erlendum flugfélögum. Það hlutfall var 25% árið 2018.“ Bendir Guðmundur Örn á að þessi þróun hafi ýmsar jákvæðar af- leiðingar í för með sér fyrir íslenska ferðaþjónustu, enda þurfi áhafnir sem hingað komi til þjálfunar að nýta sér hótelþjónustu og þá njóti veitingahús einnig góðs af umsvif- unum. „Mér reiknast svo til að þessi um- svif hafi tryggt 3.000 til 3.500 hótel- nætur á síðasta ári.“ Uppfærsla skipti sköpum Forsvarsmenn TRU Flight Ice- land líta björtum augum fram á ný- árið og vonir standa til að MAX- hermirinn verði kominn í fulla notk- un innan fárra mánaða. Þá hefur fyrirtækið einnig styrkt stöðu sína í samkeppni við fyrirtæki sem bjóða upp á þjálfun á 757- og 767-vélar. Það kemur til af því að hermarnir eru með nýjum uppfærslum sem brátt verður gerð ófrjávíkjanleg krafa um. „Þessar kröfur eru nú þegar gerðar í Bandaríkjunum og þær munu taka gildi innan átta mánaða í Evrópu einnig. Þær áttu raunar að taka gildi í Evrópu í desember en það var veittur frestur fram á þetta ár. Þessi uppfærsla gerir mögulegt að þjálfa viðbrögð við aðstæðum sem nauðsynlegt er að flugmenn kunni skil á. Þetta eru kröfur sem settar hafa verið eftir slys þar sem Airbus A330 þota Air France fórst á leiðinni milli Rio de Janeiro og Par- ísar í júní 2009,“ segir Guðmundur Örn og bendir á að flestir keppi- nautar TRU Flight Iceland séu að keyra á gömlum hermum og að þeir eigi eftir að uppfæra búnaðinn. Hermirinn í notkun að nýju Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Flughermir TRU Flight Training Iceland verður notaður fyrir Boeing 737- 800-leiguvélar Icelandair. Morgunblaðið/Golli Guðmundur býst við mikilli eftirspurn eftir þjálfun í flugherminum þegar kyrrsetningu MAX-véla verður aflétt. UPPLÝSINGATÆKNI „Staðan á verkefninu er góð. Við erum að ljúka framkvæmdafasanum og ef allt fer sem horfir opnum við 1. mars,“ segir Gísli Valur Guðjónsson, stjórnarformaður Reykjavík DC og Opinna Kerfa, um gagnaverið sem reist hefur verið á Korputorgi í Reykjavík. Í fyrsta fasa er um að ræða um fimmtán hundruð fermetra húsnæði með pláss fyrir rúmlega 200 hýsingarskápa, sem hægt er að stækka upp í allt að átta þúsund fer- metra. Gagnaverið hefur verið sam- starfsverkefni Opinna kerfa, Voda- fone, Korputorgs og Reiknistofu bankanna, sem jafnframt er kjölfestu- kúnni að sögn Gísla Vals. Hann segir um það bil helming skápanna þegar hafa verið seldan. „Þetta hefur verið áhugaverð vegferð og núna er allt að koma saman og allt á fullu svo við getum náð þessu mark- miði um að opna í mars. Þá erum við komin í rekstur með þjónustubygg- inguna og fyrsta salinn af átta. Gagna- verið verður fyrsta gagnaverið á Ís- landi sem hefur verið byggt sérstaklega og er rekið samkvæmt svokölluðum TIER3-staðli,“ segir Gísli Valur og útskýrir að farið verði eftir ströngum kröfum er varða ör- yggi og gæði. Svæði til stækkunar Erfitt er að segja til um nákvæm- lega hver orkuþörfin verður þar sem það veltur á virkni viðskiptavina, en fyrsti salur gagnaversins gæti verið að nota allt að 1,5 megavött. Þá liggja fyrir áætlanir um alls átta sali í gagna- verinu og vilyrði fyrir 12 megavöttum. „Við erum jákvæðir á gagnavers- iðnaðinn á Íslands, sérstaklega ef gagnatengingar landsins eflast,“ segir Gísli Valur og bætir við að „svæðið við Korputorg gefur möguleika til frekari uppbyggingar, en við erum ekki með það á teikniborðinu eins og sakir standa“. gso@mbl.is Opna gagnaverið á Korputorgi 1. mars Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Styttist í opnun gagnaversins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.