Morgunblaðið - 15.01.2020, Page 12

Morgunblaðið - 15.01.2020, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020SJÓNARHÓLL HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í EGGERT Um áramótin féll bann við innflutningi á ferskukjöti og eggjum frá öðrum ríkjum Evrópskaefnahagssvæðisins úr gildi. Þar með efndi Ís- land samningsskuldbindingar sínar samkvæmt EES- samningnum – meira en áratug eftir að samið var við Evrópusambandið um að þessar vörur yrðu í frjálsu flæði á öllu EES. Það er full ástæða fyrir stuðnings- menn frjálsra milliríkjaviðskipta að fagna þessum tímamótum og að stofnanakerfi EES-samningsins virki eins og það á að gera; ríki komist ekki upp með að brjóta samninginn vísvitandi til að þjóna sérhags- munum heima fyrir. Frá og með áramótum er ekki lengur áskilið að kjöt sem flutt er til landsins þurfi að hafa verið frosið í 30 daga. Kerfi leyfisveitinga vegna innflutnings fellur jafnframt niður. Um leið tóku hins veg- ar gildi margvíslegar reglu- gerðir um svokallaðar viðbótartryggingar. Innflytj- endur þurfa að sýna fram á að ferskt kjöt af alifuglum sé laust við kamfýlóbakter og innflutningi á eggjum, svínakjöti, nautakjöti og alifuglakjöti þurfa að fylgja vottorð um að varan sé laus við salmonellu. Hinar nýju reglur eru mjög umfangsmiklar og þurfa innflytjendur að uppfylla ýtrustu heilbrigðiskröfur. Evrópska eftirlitskerfið virkar vel Það er algjörlega fráleitt þegar talsmenn landbún- aðarins, sem börðust harkalega gegn því að Ísland uppfyllti samningsskuldbindingar sínar, tala eins og nú steðji ný hætta að heilsu bæði fólks og búfjár af því að við þurfum að reiða okkur á evrópskt eftirlitskerfi, sem hafi ekki virkað. Eftirlitskerfi Evrópusambands- ins – sem byggist á sömu matvælalöggjöf og er í gildi hér á landi – hefur einmitt virkað vel. Það er aldrei hægt að koma í veg fyrir að matarsýkingar komi upp, en kerfið hefur virkað vel til að koma í veg fyrir að þær breiðist út. Rétt eins og okkar innlenda eftirlits- kerfi hefur virkað vel þegar upp hafa komið salmon- ellasýkingar á fuglabúum (sem gerist reglulega) eða þegar stærsti e.coli-faraldur á Íslandi kom upp hjá ferðaþjónustubændum síðastliðið sumar. Þegar frumvarp landbúnaðarráðherra um afnám bannsins var til umræðu, var mikið gert úr hættunni á því að ófrosnu kjöti gætu fylgt sýklalyfjaónæmar bakteríur, sem ekki væru til á Íslandi. Nýjar rann- sóknir samkvæmt evrópskum reglum, sem Ísland var heldur seint til að taka upp, sýna þó að sýklalyfja- ónæmar bakteríur finnast í innlendu búfé og kjöti, þrátt fyrir bannið. Raunar má halda því fram að stað- an í baráttu við sýklalyfjaónæmi sé betri nú en áður en dómar EFTA-dómstólins og Hæstaréttar féllu, því að þá töluðu menn eins og frysti- skylda á innfluttu kjöti væri full- nægjandi vörn gegn sýklalyfja- ónæmum bakteríum í mat. Sú umræða sem síðan hefur farið fram hefur orðið til þess að farið er að beina sjónum að öðrum upp- sprettum slíkra baktería, til dæmis margföldun á fjölda ferðamanna sem sækja heim ís- lenzk býli og óviðunandi ástandi frárennslismála víða um land. Enn hefur ekkert ferskt kjöt eða egg verið flutt til landsins. Innflytjendur þurfa að kanna vel markaðinn, stöðuna hjá birgjum og fara yfir hið nýja regluverk. Afar ósennilegt er að nokkuð verði flutt inn af fersku alifuglakjöti eða svínakjöti vegna takmarkaðrar end- ingar þeirrar vöru. Sú vara, sem væntanlega verður fyrst og fremst flutt inn fersk, er nautgripakjöt í hærri gæðaflokkum, fyrir verslanir með eigin kjötborð og veitingastaði. Þá eru einhverjir innflytjendur að skoða möguleika á innflutningi á ferskum eggjum. Breytingin þýðir því meira úrval fyrir neytendur. Afnám 30 daga frystiskyldu þýðir líka að innflutn- ingsfyrirtæki geta brugðist hraðar við skorti á til- teknum vörum, jafnvel þótt viðkomandi vara sé flutt inn frosin. Það verður þá liðin tíð að innflytjendur þurfi að bíða með að flytja inn vöru þar til 30 daga markinu er náð. Þetta þýðir jafnara framboð á kjöt- markaði og þá væntanlega hagstæðara verð, auk þess sem tollkvótar fyrir innflutning á kjöti nýtast betur. SAMKEPPNI Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Meira úrval og stöðugra framboð með auknu frelsi ” Það er full ástæða fyrir stuðningsmenn frjálsra milliríkjaviðskipta að fagna þessum tímamótum. FORRITIÐ Muna lesendur þegar nemendur hripuðu glósur í stílabækur og út- bjuggu jafnvel litlar spjaldskrár með minnispunktum til að hjálpa þeim að læra námsefnið utan að? Í dag hafa tölvurnar breytt því hvernig við lær- um en grunnatriðin eru samt enn þau sömu og góðar glósur geta verið þyngdar sinnar virði í gulli. Forritið Supernotes (www.super- notes.app) verðskuldar því nánari skoðun, hvort sem það kann að gagnast námsmanninum á heimilinu eða fyrirvinnunni sem ætlar að setj- ast á skólabekk til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Supernotes auðveldar notandanum að gera falleg og auðskiljanleg glósu- spjöld og setja þau upp með þeim hætti að hjálpi sem mest við utan- bókarlærdóminn. Þá má flokka glós- urnar og halda þeim í röð og reglu, og deila með öðrum ef því er að skipta. Forritið hefur líka að geyma verk- efnalista, til að hjálpa til við aðhaldið og skipulagið, sem og samskiptagátt til að halda sambandi við aðra nem- endur. Forritið virkar hvort heldur í tölvu eða snjallsíma og er upplagt að renna í gegnum glósurnar í símanum á leið í tíma eða í próf, nú eða einfaldlega til að koma heilasellunum í gang í upp- hafi vinnudags og tryggja að öll þekk- ingin sem tókst að troða í kollinn í mennta- eða háskóla hverfi ekki smám saman í móðu minnisins. ai@mbl.is Glósugerðin aldrei verið auðveldari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.