Morgunblaðið - 15.01.2020, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020SJÓNARHÓLL
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
EGGERT
Um áramótin féll bann við innflutningi á ferskukjöti og eggjum frá öðrum ríkjum Evrópskaefnahagssvæðisins úr gildi. Þar með efndi Ís-
land samningsskuldbindingar sínar samkvæmt EES-
samningnum – meira en áratug eftir að samið var við
Evrópusambandið um að þessar vörur yrðu í frjálsu
flæði á öllu EES. Það er full ástæða fyrir stuðnings-
menn frjálsra milliríkjaviðskipta að fagna þessum
tímamótum og að stofnanakerfi EES-samningsins
virki eins og það á að gera; ríki komist ekki upp með
að brjóta samninginn vísvitandi til að þjóna sérhags-
munum heima fyrir.
Frá og með áramótum er
ekki lengur áskilið að kjöt
sem flutt er til landsins þurfi
að hafa verið frosið í 30 daga.
Kerfi leyfisveitinga vegna
innflutnings fellur jafnframt
niður. Um leið tóku hins veg-
ar gildi margvíslegar reglu-
gerðir um svokallaðar viðbótartryggingar. Innflytj-
endur þurfa að sýna fram á að ferskt kjöt af alifuglum
sé laust við kamfýlóbakter og innflutningi á eggjum,
svínakjöti, nautakjöti og alifuglakjöti þurfa að fylgja
vottorð um að varan sé laus við salmonellu. Hinar nýju
reglur eru mjög umfangsmiklar og þurfa innflytjendur
að uppfylla ýtrustu heilbrigðiskröfur.
Evrópska eftirlitskerfið virkar vel
Það er algjörlega fráleitt þegar talsmenn landbún-
aðarins, sem börðust harkalega gegn því að Ísland
uppfyllti samningsskuldbindingar sínar, tala eins og
nú steðji ný hætta að heilsu bæði fólks og búfjár af því
að við þurfum að reiða okkur á evrópskt eftirlitskerfi,
sem hafi ekki virkað. Eftirlitskerfi Evrópusambands-
ins – sem byggist á sömu matvælalöggjöf og er í gildi
hér á landi – hefur einmitt virkað vel. Það er aldrei
hægt að koma í veg fyrir að matarsýkingar komi upp,
en kerfið hefur virkað vel til að koma í veg fyrir að
þær breiðist út. Rétt eins og okkar innlenda eftirlits-
kerfi hefur virkað vel þegar upp hafa komið salmon-
ellasýkingar á fuglabúum (sem gerist reglulega) eða
þegar stærsti e.coli-faraldur á Íslandi kom upp hjá
ferðaþjónustubændum síðastliðið sumar.
Þegar frumvarp landbúnaðarráðherra um afnám
bannsins var til umræðu, var mikið gert úr hættunni á
því að ófrosnu kjöti gætu fylgt sýklalyfjaónæmar
bakteríur, sem ekki væru til á Íslandi. Nýjar rann-
sóknir samkvæmt evrópskum reglum, sem Ísland var
heldur seint til að taka upp, sýna þó að sýklalyfja-
ónæmar bakteríur finnast í innlendu búfé og kjöti,
þrátt fyrir bannið. Raunar má halda því fram að stað-
an í baráttu við sýklalyfjaónæmi sé betri nú en áður en
dómar EFTA-dómstólins og Hæstaréttar féllu, því að
þá töluðu menn eins og frysti-
skylda á innfluttu kjöti væri full-
nægjandi vörn gegn sýklalyfja-
ónæmum bakteríum í mat. Sú
umræða sem síðan hefur farið fram
hefur orðið til þess að farið er að
beina sjónum að öðrum upp-
sprettum slíkra baktería, til dæmis
margföldun á fjölda ferðamanna sem sækja heim ís-
lenzk býli og óviðunandi ástandi frárennslismála víða
um land.
Enn hefur ekkert ferskt kjöt eða egg verið flutt til
landsins. Innflytjendur þurfa að kanna vel markaðinn,
stöðuna hjá birgjum og fara yfir hið nýja regluverk.
Afar ósennilegt er að nokkuð verði flutt inn af fersku
alifuglakjöti eða svínakjöti vegna takmarkaðrar end-
ingar þeirrar vöru. Sú vara, sem væntanlega verður
fyrst og fremst flutt inn fersk, er nautgripakjöt í
hærri gæðaflokkum, fyrir verslanir með eigin kjötborð
og veitingastaði. Þá eru einhverjir innflytjendur að
skoða möguleika á innflutningi á ferskum eggjum.
Breytingin þýðir því meira úrval fyrir neytendur.
Afnám 30 daga frystiskyldu þýðir líka að innflutn-
ingsfyrirtæki geta brugðist hraðar við skorti á til-
teknum vörum, jafnvel þótt viðkomandi vara sé flutt
inn frosin. Það verður þá liðin tíð að innflytjendur
þurfi að bíða með að flytja inn vöru þar til 30 daga
markinu er náð. Þetta þýðir jafnara framboð á kjöt-
markaði og þá væntanlega hagstæðara verð, auk þess
sem tollkvótar fyrir innflutning á kjöti nýtast betur.
SAMKEPPNI
Ólafur Stephensen
framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda
Meira úrval og stöðugra
framboð með auknu frelsi
”
Það er full ástæða fyrir
stuðningsmenn frjálsra
milliríkjaviðskipta að fagna
þessum tímamótum.
FORRITIÐ
Muna lesendur þegar nemendur
hripuðu glósur í stílabækur og út-
bjuggu jafnvel litlar spjaldskrár með
minnispunktum til að hjálpa þeim að
læra námsefnið utan að? Í dag hafa
tölvurnar breytt því hvernig við lær-
um en grunnatriðin eru samt enn þau
sömu og góðar glósur geta verið
þyngdar sinnar virði í gulli.
Forritið Supernotes (www.super-
notes.app) verðskuldar því nánari
skoðun, hvort sem það kann að
gagnast námsmanninum á heimilinu
eða fyrirvinnunni sem ætlar að setj-
ast á skólabekk til að styrkja stöðu
sína á vinnumarkaði.
Supernotes auðveldar notandanum
að gera falleg og auðskiljanleg glósu-
spjöld og setja þau upp með þeim
hætti að hjálpi sem mest við utan-
bókarlærdóminn. Þá má flokka glós-
urnar og halda þeim í röð og reglu, og
deila með öðrum ef því er að skipta.
Forritið hefur líka að geyma verk-
efnalista, til að hjálpa til við aðhaldið
og skipulagið, sem og samskiptagátt
til að halda sambandi við aðra nem-
endur.
Forritið virkar hvort heldur í tölvu
eða snjallsíma og er upplagt að renna
í gegnum glósurnar í símanum á leið í
tíma eða í próf, nú eða einfaldlega til
að koma heilasellunum í gang í upp-
hafi vinnudags og tryggja að öll þekk-
ingin sem tókst að troða í kollinn í
mennta- eða háskóla hverfi ekki
smám saman í móðu minnisins.
ai@mbl.is
Glósugerðin aldrei
verið auðveldari