Morgunblaðið - 15.01.2020, Side 16

Morgunblaðið - 15.01.2020, Side 16
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Slá af verði nýrra íbúða í … Lykilfólk hverfur frá … Farið fram á nauðungarsölu … Tilkynntu grun um brot í rekstri Átta störf lögð niður Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Skipulagsvinna vegna uppbyggingar um þúsund íbúða á Kringlusvæðinu hefur reynst tímafrekari en áætlað var. Uppbyggingin mun því að óbreyttu hefjast 12-18 mánuðum síðar en áður var áætlað. Fasteignafélagið Reitir fer með hönnun Kringlusvæðisins. Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, segir nú raunhæft að fram- kvæmdir geti hafist á árinu 2022. Þegar Morgunblaðið fjallaði um áformin haustið 2018 áætlaði Guðjón að 1. áfangi yrði langt kominn í árs- lok 2021. Sú áætlun hefur verið endurmetin og virðist nú raunhæf- ara að fyrsta áfanga ljúki árið 2023. Guðjón segir aðspurður hinn form- lega feril við skipulagsmálin hjá borginni hafa tafist um a.m.k. 12 mánuði miðað við fyrri áætlanir. Vonir séu nú bundnar við að nýtt aðalskipulag taki gildi í vor eða snemmsumars. Þá taki við vinna við deiliskipulag og hönnun svæðisins. Það ferli geti tekið á annað ár. Guðjón segir Reiti hafa haft vænt- ingar um að skipulagsvinnan yrði sett í forgang í ljósi umræðu borgar- yfirvalda um að setja Miklubraut í stokk og þétta byggð. Ljóst sé að uppbygging á norðurenda svæðisins, norður af Húsi verslunarinnar, hald- ist í hendur við að Miklabraut fari í stokk. Uppbyggingin á svæðinu öllu verði áfangaskipt og taki 10-15 ár. Þegar vinningstillaga í hug- myndasamkeppni um svæðið var kynnt í nóvember 2017 var gert ráð fyrir 500-600 íbúðum. Nú er hins vegar stefnt að allt að 1.000 íbúðum. Þá verður byggt atvinnuhúsnæði. Að sögn Guðjóns eru Reitir „ekki í neinu kapphlaupi“ með að hefja upp- byggingu íbúða á svæðinu. Félagið eigi ónýttar byggingarheimildir á öðrum svæðum, m.a. Orkuhússreit, en þar verða byggðar 400-500 íbúðir sem eru í deiliskipulagsferli. Teikning/Kanon arkitektar/THG arkitektar Kringlusvæðið mun taka stakkaskiptum ef áformin ganga eftir. Uppbygging hefst árið 2022 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Uppbygging um þúsund íbúða við Kringluna mun hefjast a.m.k. ári síðar en upphaflega var áætlað. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sá sem þetta ritar sat á síðastaáratug fund með Ara Trausta Guðmundssyni og fleiri góðum mönnum vegna áforma um bóka- útgáfu. Ari Trausti var marg- reyndur í bókaútgáfu og mælti því af reynslu er hann sagði höfundana mundu uppskera ferð með frúnni til Kanaríeyja en ekki mikið meira. Það gekk eftir. Ari Trausti hefur annars sýnt í gegnum tíðina að hann hefur nef fyrir bókaútgáfu. Nægir þar að nefna vinsælar bækur um eldgosið í Eyjafjallajökli sem hafa væntanlega skilað meiru en sólarlandaferð. Þetta er rifjað upp í tilefni af þvíað Ari Trausti er nú einn þing- manna VG. Flokkurinn fékk 11 menn kjörna í þingkosningunum haustið 2017 en með brotthvarfi Andrésar Inga Jónssonar er þing- flokkurinn með tíu þingmenn. Undiraldan hjá VG braust upp á yfirborðið og má greina kröfu um aukna róttækni. Tíminn flýgur. Nú nálgast næstuþingkosningar en þær þurfa að fara fram fyrir lok næsta árs. Af því leiðir að næsta haust fer að skýrast hvaða mál verða sett á dagskrá þjóð- málaumræðunnar á vorþingi 2021 til að ná til kjósenda. Kosningabar- áttan hefst svo að því loknu en upp- hafið mun markast af tímasetningu kosninganna. Félagar Ara Trausta í VG munuverða undir þrýstingi að lofa kjósendum gulli og grænum skóg- um. Vonandi munu kjósendur horfa raunsætt á stöðuna eins og Ari Trausti gerði forðum daga. Vonir og væntingarSeðlabanki og Fjármálaeftirlitvoru sameinuð um áramót. Það var heillaskref. Hvernig til tekst mun þó sem fyrr ráðast af því hvern- ig þeir sem standa í brúnni standa sig. Oft hefur það skipt sköpum og slíkar aðstæður mun, í mismiklum mæli, reka á fjörur Seðlabankans eins og löngum áður í bráðum sex áratuga sögu hans. Talsvert hefur gustað um bankanná undanförnum misserum, eink- um vegna harkalegrar og á tímum óviðurkvæmilegrar framgöngu þeirra sem farið hafa með gjaldeyris- eftirlit á vettvangi hans. En það fel- ast einnig í því tíðindi þegar nýr bankastjóri tekur við lyklum að Svörtuloftum og nú hefur hann sér til fulltingis þrjá aðstoðarseðlabanka- stjóra. Einn þeirra tók við stöðu sinni fyrir hartnær tveimur árum, annar gegndi til áramóta forstjóra- starfinu hjá FME og sá þriðji kemur nú nýr inn, með reynslu úr alþjóð- legu bankaumhverfi. Þótt þessir fjórir tróni á toppi þesstrés sem mótað hefur verið um starfsemi bankans hafa nú einnig tekið til starfa 11 framkvæmdastjór- ar við hina sameinuðu stofnun! Verð- ur það að teljast vel í lagt og um leið hlýtur sú krafa að vera gerð að bankanum verði einstaklega vel stjórnað – nóg virðist hið minnsta af vinnufúsum höndum. Í tengslum við hrókeringarnar allarvar tilkynnt að átta stöðugildi hefðu verið lögð niður. Þau voru 290 fyrir þær breytingar og hagræðingin því tæp 3% í störfum talið – kannski hafa stjórnendur talið sig bundna af viðmiði því sem peningastefnu- nefndin dulúðuga hefur ákvarðað í stýrivöxtum! Ekki verður því haldið fram að ýtrustu leiða hafi verið leitað til að draga úr kostnaði með samein- ingunni, enda var það raunar til- greint í lögum um sameininguna að það væri alls ekki markmiðið! En af þeim sömu sökum ber að fagna því að einhver skref hafi verið stigin í þá átt. Þegar reynsla kemst á hið nýjafyrirkomulag með sameinaðri stofnun er vonin sú, skattgreiðenda og allra vegna, að nýr seðla- bankastjóri horfi áfram á leiðir til þess að hagræða í rekstri. Seðla- bankinn má vera fyrirmynd í þeim efnum fyrir aðrar stofnanir ríkisins. Þannig gæti hið smáa skref sem nú hefur verið stigið verið fyrirheit um að haldið verði áfram á sömu braut. Þá mun sannast að oft reynist mjór mikils vísir. Er mjór mikils vísir? Nýr forstjóri banda- ríska flugvélaframleið- andans Boeing vill leggja áherslu á heið- arleika og gagnsæi. Vill auka gagnsæi 1 2 3 4 5

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.