Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.02.2020, Blaðsíða 1
Vaki óskar eftir að bæta við starfsmanni í hönnunarteymi sitt þar sem áhersla er á tækni til notkunar í fiskeldi. Um er að ræða hátæknibúnað þar sem unnið er með samspil vél-, rafeinda- og hugbúnaðar. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga, þekkingu og reynslu af vélhlutahönnun. Innan fyrirtækisins starfar öflugur hópur tæknimenntaðs fólks og krefst starfið samskipta við fjölbreyttan hóp undirverktaka og samstarfsaðila bæði innanlands og erlendis. Verkefnin eru krefjandi og miklir möguleikar á faglegri uppbyggingu í starfinu. VÉLAHÖNNUÐUR Hæfniskröfur • Menntun sem nýtist í starfi • Góð þekking í vélhlutahönnun, s.s. efnisfræði, vélhlutafræði og tækniteiknun • Notkun á þrívíddarhönnunartólum, s.s. Autodesk Inventor eða Solidworks • Reynsla af störfum við stálsmíði eða af vélaverkstæði • Grunnþekking á hugbúnaðartólum s.s. töflureiknum, ritvinnslu o.s.frv. • Staðgóð enskukunnátta Kostur ef einnig er til staðar þekking og áhugi á: • Iðnstýringum • Rafmagni, lágspennu • Loft- eða glussakerfum Vaki er framsækið og leiðandi fyrirtæki með áherslu á vöruþróun og sölu á tæknibúnaði fyrir fiskeldi. Vörur Vaka eru þróaðar og framleiddar á Íslandi og seldar í yfir 60 löndum. Starfsmenn eru 30 talsins á Íslandi og 25 starfsmenn starfa í dótturfyrirtækjum Vaka í Chile, Skotlandi og Noregi. Vaki er 100% í eigu Biomark sem er hluti af MSD Animal Health, dótturfélagi lyfjaframleiðandans Merck. Sjá nánar á www.vaki.is og www.msd-animal-health.com Umsóknarfrestur til og með 10. febrúar nk.Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is        atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391 SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI RÍKISINS Tæknimaður – innri þjónusta og vélbúnaður Við embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins er laus til umsóknar staða tæknimanns í innri þjónustu og velbúnaði. Helstu verkefni og ábyrgð Í boði eru fjölbreytt verkefni er lúta einkum að innri þjónustu og vélbúnaði. Verkefni snúa m.a. að notendaaðstoð, umsjón og viðhaldi á vél- og hugbúnaði embættisins og starfsmanna þess auk verkefna er lúta að meðhöndlun rafrænna gagna í vörslu embættisins. Í starfinu felast einnig samskipti við aðrar stofnanir og viðskiptavini embættisins varðandi tæknimál og rafræna þjónustu. Þá felst í starfinu þróun rafrænna lausna á verkefnasviðum embættisins í samvinnu við aðra starfsmenn embættisins. Hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. tölvunarfræði, kerfisfræði eða sambærilegt. • Reynsla af kerfisstjórn, netrekstri og notendaaðstoð er nauðsynleg. • Þekking á Microsoftlausnum er nauðsynleg. • Reynsla af samskiptakerfum (s.s. símkerfi og fjarfundabúnaði) er æskileg. • Þekking á miðlægum búnaði er æskileg. • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund er nauðsynleg. • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi er nauðsynleg. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í margbreytilegu umhverfi. Um verkefni skattrannsóknarstjóra ríkisins vísast nánar til vefsíðu embættisins srs.is Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og við- komandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur fer að öðru leyti eftir lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Starfshlutfall er 100%. Umsóknum skal skila til skattrannsóknarstjóra ríkisins á netfangið srs@srs.is merktar „Umsókn um starf“. Umsókninni skal fylgja greinargerð þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af viðeigandi prófskírteinum og upplýsingar um tvo núverandi eða fyrrverandi samstarfsmenn sem veitt geta upplýsingar um störf eða aðra hæfni umsækjanda. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal hafa borist eigi síðar en 14. febrúar 2020. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sandra Sveinbjörnsdóttir, forstöðumaður fjármálasviðs í síma 550 8800.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.