Morgunblaðið - 11.03.2020, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2020SJÁVARÚTVEGUR
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
AF 200 MÍLUM Á MBL.IS
„Það er bara bræla. Bræla, bræla, bræla. Það er ekkert þarna á milli.
Þetta eru ekki einu sinni sex til átta metrar, það eru bara fimmtán eða
tuttugu. Við vorum á sjó í gær og komumst inn á Hestfjörðinn og
fengum þar 3,5 tonn, sem er bara allt í lagi. Þetta er eini staðurinn
sem við komumst vegna veðurs,“ segir Haraldur Konráðsson, skip-
stjóri á Val ÍS-20, í samtali við 200 mílur er hann er spurður hvernig
rækjuveiðarnar hafi gengið undanfarið.
Spurður hvort hann sé vongóður um að fari að lægja svarar hann
að það eigi að verða ágætis veður á fimmtudag og föstudag, en vand-
inn er ekki bara veðurfarið á sjó. „Svo þurfum við að fara fjallaleið frá
Ísafirði til Súðavíkur og það er ekki alltaf fært þar,“ segir Haraldur
og hlær. „Róðrarlagið er farið að snúast um það hvort það koma við-
varanir frá Vegagerðinni.“
Ljósmynd/Arnaldur Sævarsson
Ágæt veiði hefur verið hjá Val þegar veður leyfir.
Róðrarlagið háð viðvör-
unum Vegagerðarinnar
Strandríkin við Norðaustur-Atlantshaf deila
um hvernig hátta skuli veiðum úr stofnum sem
færast á milli lögsaga eða halda sig á alþjóð-
legum hafsvæðum. Mest hefur verið tekist á
um veiðar á makríl, síld og kolmunna og kenna
deiluaðilar hver öðrum um að samningar skuli
ekki hafa náðst. Kristinn Hjálmarsson, verk-
efnastjóri hjá Icelandic Sustainable Fisheries,
segir átökin um þessa stofna m.a. hafa orðið til
þess að ár eftir ár hafi veiðimagn verið mun
meira en sérfræðingar hafi ráðlagt. „Má t.d.
nefna að lagt var til að veiða um 588 þúsund
tonn af norsk-íslenskri síld árið 2019 en veiðar
það árið námu 773 þúsund tonnum. Finna má
enn verri dæmi, eins og frá árinu 2011 þegar
Alþjóða hafrannsóknaráðið (ICES) lagði til
veiðar á 529-670 þúsund tonnum af makríl, en
þær þjóðir sem nýta stofninn veiddu samtals
960 þúsund tonn.“
Kristinn segir að framan af hafi veiðar langt
umfram ráðleggingar vísindamanna ekki haft
merkjanleg áhrif á umrædda stofna, en fyrir
um hálfum áratug hafi mátt byrja að greina
neikvæða þróun. „Þrátt fyrir þessar miklu
veiðar héldu stofnar eins og makríllinn áfram
að vaxa fram á miðjan síðasta áratug. Nú
sjáum við að hrygningarstofn makríls er á
niðurleið, og nýliðun í kolmunnastofninum hef-
ur hrapað undanfarin fjögur ár. Því miður
skortir rannsóknir til að geta fullyrt um hvað
veldur þessari þróun, og hvort þar vegur
þyngst ofveiði ellegar veiking eða tilfærsla
stofna vegna breyttra skilyrða í sjónum.“
Veiðarnar fá ekki vottun
Deilurnar eiga sér langa sögu og segir
Kristinn að 2005 og 2006 hafi lausn verið í
sjónmáli sem hefði þá tekið gildi nokkrum ár-
um síðar. „Hlutaðeigandi þjóðir voru hárs-
breidd frá því að koma á úrlausnarferli þar
sem útkljá mætti deilur um veiðar. Voru
ákvæði um úrlausn ágreiningsmála felld inn í
sáttmála Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
ráðsins (NEAFC) og áttu að taka gildi árið
2013 þegar aukinn meirihluti væri búinn að
samþykkja breytingarnar. En þegar kom að
því að innleiða samkomulag þess efnis mót-
mæltu Rússar breytingunum og umbæturnar
hafa enn ekki tekið gildi .“
Kristinn segir ekki að undra að erfiðlega
hafi gengið að ná sátt um veiðarnar enda mikl-
ar fjárhæðir í húfi í þeim löndum sem njóti
góðs af veiðunum og geti hundrað þúsund tonn
til eða frá af uppsjávarafla fært byggðum bæði
miklar tekjur og fjölda starfa. Nú blasi hins
vegar við að ef ekki takist að finna lausn munu
allir tapa, og vegur þar þungt að alþjóðlegar
sjálfbærnivottanir eru háðar því að veiðar séu
stundaðar með skynsamlegum hætti og að
veiðiþjóðir eigi einhvern vettvang til að leysa
úr deilum um sameiginlega stofna. Margir
dýrmætustu kaupendur sjávarafurða hafa
ekki áhuga á fiski án vottunar og getur það
leitt til þess að lægra verð fáist fyrir afurðir.
Bendir Kristinn á að mikilvægi sjálfbærni-
vottunar hafi komið greinilega í ljós þegar ís-
lenskar útgerðir misstu vottun á sjálfbærni
grásleppuveiða vegna þess að landselur, útsel-
ur og teista fengust í of miklum mæli sem með-
afli. „Grænlendingar og Norðmenn héldu sinni
vottun og mátti fljótlega sjá töluverðan verð-
mun á grásleppuafurðum á milli landa og eru
íslensk grásleppuhrogn núna að seljast á 10-
15% lægra verði en norsk og grænlensk. Ekki
er nóg með það heldur hreinlega lokuðust
ákveðnir markaðir og hefur ekki ein krukka af
íslenskum grásleppuhrognum selst til Þýska-
lands eða Skandinavíu eftir að sjálfbærnivott-
unin glataðist. Frakkar tóku áfram við vörunni
en smám saman er sá markaður að lokast líka,
og á öllum verðmætustu markaðssvæðunum
er það raunin að neytendur gera einfaldlega þá
kröfu til verslana að sú vara sem boðin er til
sölu sé framleidd með ábyrgum og sjálfbærum
hætti,“ útskýrir Kristinn og bætir við að
stjórnvöld hafi gripið til aðgerða sem nú séu að
leiða til þess að stofnar landsels, útsels og
teistu séu teknir að styrkjast og stækka og
þess sé vonandi ekki langt að bíða að grá-
sleppuveiðarnar hljóti sjálfbærnivottun á ný.
Þrýstingur frá markaðnum
En hvað er til ráða í deilunum um makríl,
síld og kolmunna? Kristinn segir hugsanlegt
að þrýstingur frá kaupendum og umhverfis-
verndarsamtökum knýi þær þjóðir sem málið
varðar til að finna lausn. „Viðbrögð markaðar-
ins eru það sem svíður mest undan og ef dýr-
mætustu markaðir sama sem loka á þessar
tegundir er þar kominn mjög sterkur hvati til
að komast að samkomulagi. Það eru þó alls
ekki allir markaðir sem gera vottun um sjálf-
bæra nýtingu auðlinda skilyrði fyrir við-
skiptum.“
Kristinn vill alls ekki gera lítið úr hve flókið
það kunni að vera að finna lausn sem allir geti
fellt sig við, og engum formúlum sé til að
dreifa sem geti leyst í einni svipan hvernig
þjóðir skipti á milli sín veiðum og kostnaði við
rannsóknir eftir því hvar hrygningar- og veiði-
svæði stofna er að finna. „Hvernig á að meta
hvað hrygningarsvæði, uppvaxtarsvæði ung-
viðis, fæðuslóð fullorðna fisksins og veturseta
hafa að segja í heildarsamhenginu? Aðgangs-
samningar og veiðisaga hafa áhrif á allt þetta,“
segir hann og bætir við að þrýst sé á deiluaðila
að finna lausn:
„Íslensk stjórnvöld hafa leitt ábyrga fisk-
veiðistjórnun innan okkar landhelgi í marga
áratugi, í góðri samvinnu við atvinnugreinina.
Fá ríki búa að jafn öflugum sjávarútvegi og
nýsköpun í tækni, vörum og gæðum eins og við
á Íslandi, þar sem fyrirtæki í sjávarútvegi og
stjórnvöld eiga augljóslega sömu hagsmuni
um heilbrigt haf.“
Rifjar Kristinn upp að ef lausn finnist ekki í
bráð hafi það einhvers staðar verið lagt til, í
gamni eða alvöru, að höggva á hnútinn með því
að færa stjórnun deilistofnanna til Sameinuðu
þjóðanna. „En í raun og veru er ekki annað í
boði en að strandríkin komi saman sem fyrst
og komi sér saman um ábyrga stjórnun þess-
ara veiða. Til þess verða strandríkin að hittast
eða eiga samtal, en næsta samtal er fyrirhugað
í október á þessu ári.“
Allir tapa ef ekki næst sátt
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í mörg ár hafa fiskveiðiþjóðir í
Norðaustur-Atlantshafi reynt ár-
angurslaust að ná samkomulagi
um stjórnun sameiginlegra stofna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kristinn Hjálmarsson segir ekki hægt að votta sjálfbærni veiða þeirra stofna sem deilt er um ef
þeim sé ekki skynsamlega stýrt, sem svo þýði að verð lækki og dýrmætir markaðir lokist.