Morgunblaðið - 11.03.2020, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2020 11SJÁVARÚTVEGUR
Útgerðarfélögin GPG Seafood og
Siglunes hafa nýverið undirritað
samninga við Víkingbáta ehf. um
smíði á tveimur 30 brúttótonna bát-
um sem eru um 13,8 metrar að
lengd. „Svo eru fleiri þreifingar í
gangi, en við stefnum á að smíða þrjá
til fjóra svona báta,“ segir Matthías
Sveinsson, eigandi Víkingbáta. Hann
bætir við að einn 21 tonns bátur hafi
verið afhentur síðastliðið sumar,
Margrét GK-33. „Ég get ekki betur
séð en að hún sé með aflamestu bát-
um í þessum 20 til 30 tonna flokki í
síðasti mánuði.“
Matthías segir endurnýjun flotans
í krókaaflamarkskerfinu fara nú af
stað í kjölfar þess að fyrir því urðu
hagstæð skilyrði. Slíkt hafi þegar átt
sér stað hvað varðar stærri fiskiskip
og hafa á undanförnum árum verið
smíðuð uppsjávarskip, ísfisktogarar
og smærri togarar og hefur öll þessi
smíði verið fjárfesting upp á millj-
arða króna.
Skilyrðin fyrir smíði nýrra báta
sköpuðust fyrst 2013 þegar stærðar-
mörk báta í krókaaflamarkskerfinu
voru aukin í 15 metra, að sögn Matt-
híasar. „Svo hefur reglum verið
breytt hvað varðar réttindin á þess-
um tólf til fimmtán metra bátum,
búið að uppfæra réttindi þeirra sem
hafa tólf metra réttindi í fimmtán
metra frá og með 1. september.
Þannig að það er búið að gefa miklu
meiri möguleika til þess að ráða
skipstjóra og stýrimenn á 30 brúttó-
tonna bát sem er allt að fimmtán
metrum.“
Hann segir breytingarnar hafa
aukið áhugann á bátum af stærri
gerð, þar sem þeim fylgja miklir
kostir hvað aflameðferð varðar, til
að mynda með tilliti til sérstaks
kælibúnaðar sem komið er fyrir í
bátunum. Ekki síst fylgir bátunum
betri aðbúnaður fyrir sjómenn.
„Bæði á dekki og í vistarveru.“
Spurður hvað stór plastbátur kosti
segir Matthías bát sem er fullhlað-
inn öllum tæknibúnaði geta kostað á
bilinu 320 til 370 milljónir króna.
Öll flóran
Spurður hvort það sé mikil fyrir-
höfn að smíða svona báta segir Matt-
hías svo vera. „Svona bátur er tugir
tonna. Hann kemur bara í rúllum og
dollum. Síðan er þetta sett í mótun.
[…] Stóra verkefnið hjá okkur verð-
ur að smíða þrjá til fjóra stóra báta á
næstu tveimur árum.“
Umfang þess að smíða nútímalega
báta í krókaaflamarkskerfinu felst
þó ekki bara í því að skella efniviðn-
um í mót; því fylgir umfangsmikil og
fjölbreytt vinna og þarfnast tals-
verðs mannafla, hver með sína sér-
hæfingu í verkið. Matthías segir
hvert verkefni hafa mikið að segja
um fjölda einstaklinga sem komi að
starfsemi fyrirtækisins og geti fjöld-
inn sveiflast úr tíu upp í þrjátíu.
Vegna þessa er stuðst mikið við
verktaka og undirverktaka. „Við er-
um með plastara, smiði, pípara, raf-
virkja, tæknimenn, vélfræðinga og
vélvirkja. Þetta er öll flóran.“
Einnig fyrir erlenda aðila
Þá sé í nýjum bátum talsvert af
nýstárlegum tækjum sem þurfi að
koma fyrir. Meðal annars kælingar-
tæki sem hann segir hámarka gæði
afurðarinnar og línubeitingarkerfi
sem stýrt er með hugbúnaði. „Það
telur bæði beituna og fiskana. Þetta
er orðið mjög háþróað. Svo eru
gríðarleg tæki í brúnni líka, þetta er
alveg eins og í stóru skipunum. Það
eru öll tæki í svona stórum plast-
bátum í dag,“ útskýrir Matthías.
Spurður hvort tæknibyltingin sé að
fullu komin í plastbátana svarar
hann: „Já, hún er alveg komin og
menn eru að kaupa siglingatæki fyr-
ir tugi milljóna í svona báta.“ Þá
segir hann jafnframt töluverða þró-
un í gangi varðandi aðalvélar knún-
ar rafmagni sem muni rata í báta
þegar fram líði stundir enda hafi
slíkar vélar sumstaðar þegar verið
teknar í notkun.
Matthías segir fyrirtækið ekki að-
eins smíða víkingbáta fyrir innlenda
kaupendur heldur hafi slíkir bátar
einnig verið seldir til Noregs og
Grænlands. Auk þess hefur fyrir-
tækið á sínum tíma smíðað tvær
ferjur fyrir Ísafjörð og eina ferju
fyrir kaupanda í Færeyjum. Jafn-
framt keypti fyrirtækið réttindin að
sómabátum á sínum tíma og hefur
það einnig smíðað slíka báta undan-
farin ár, en þeir eru af smærri teg-
und og hafa verið nýttir bæði fyrir
strandveiðar og ferðaþjónustu.
Endurnýjun smærri báta hafin
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Víkingbátar stefna á frekari
sókn og er stefnt að smíði
þriggja til fjögurra stærri
plastbáta á næstu tveimur
árum.
Morgunblaðið/Eggert
Matthías Sveinsson, eigandi Víkingbáta ehf., segir miklar tækninýjungar nú vera í plastbátunum.
Margrét GK-33 var í síðasta mánuði aflamesti bátur í sínum stærðarflokki.
Afurðaverð á markaði
9. mars 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 300,62
Þorskur, slægður 389,93
Ýsa, óslægð 382,33
Ýsa, slægð 303,16
Ufsi, óslægður 153,69
Ufsi, slægður 189,45
Gullkarfi 222,07
Blálanga, slægð 224,83
Langa, óslægð 187,49
Langa, slægð 183,33
Keila, slægð 140,15
Steinbítur, óslægður 18,00
Steinbítur, slægður 219,50
Skötuselur, slægður 695,54
Skarkoli, slægður 394,26
Þykkvalúra, slægð 487,80
Bleikja, flök 1.431,00
Gellur 680,39
Grásleppa, óslægð 36,40
Hlýri, óslægður 178,31
Hlýri, slægður 363,84
Hrogn/langa 100,00
Hrogn/ýsa 152,00
Hrogn/þorskur 325,26
Hvítaskata, slægð 10,00
Lúða, slægð 496,05
Lýsa, slægð 85,00
Rauðmagi, óslægður 248,00
Skata, slægð 42,58
Tindaskata, óslægð 7,00
Undirmálsýsa, slægð 191,94
Undirmálsþorskur, óslægður 161,74
Undirmálsþorskur, slægður 233,61
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum