Krónuveltan - 28.10.1933, Side 1

Krónuveltan - 28.10.1933, Side 1
1. ár. Akureyri, 28. okt. 1933. 1. tbl. ÁSKORUN til Akureyringa jrá Skíðastadamönnum. í sumat hefir verið unnið kapp samlega að því, að veita heitu vatni úr laugunum í Glerárgili niður i sundpollinn hér uppi í gilinu. Fjðldi manns hefir þar gefið vinnu eða lagt fé af mörkum og bæjar- sjóður hefir einnig lagt sinn skerf til fyrirtækisins. Nú er heita vatnið komið i þróna. Akureyringar hafa verið samtaka um að koma þessu verki í fram- kvæmd. En mikið er eftir ógert enn. Við hugsum ekki svo hátt, að byggja yfir laugina fyrst ura sinn. En þar þurfa að koma vistlegir klefar, sem upphitaðir eru með laugavatni, svo menn geti klæðst þar og afklæðst. Par farf einnig að koma heitt og kalt steypibað i klefa. Pá fyrst má hafa full not af lauginni allan ársins hring. Börn og unglingar í skólunum hérna eiga að læra sund í lauginni. Viljið þið vita til þess, að þau eigi að klæðast í köldum klefunum, þegar þau koma upp úr lauginni? Akureyri á ekkert baðhús og fjöldi bæjarbúa á erfiðan aðgang að baði. Liugin er einnig fyrir þá. Laugin er fyrir alla Akur- eyringa, unga sem gamla, kon- ur sem karla. Við verðum öll að vera samtaka um að hætta ekki við þetta verk hálfgert. Skíðastaðafélagið á Akureyri hefir ákveðið að gangast fyrir samskotum til frekari framkvæmda á verki þessu og þannig er Krönuvelta Skíðastaða- félagsins á Akureyri til orðin. Hver méðlimur Skíða- staðafélagsins skorar á þrjá menn að leggja eina krónu af mörkum til ofangreinbra framkvæmda. Hr. kaup- maður Björn Björnsson frá Múla hefir lofað að veita samskotunum raóttöku f Verzl. Norðurland.*-Allir sem borga skora samtímis á þrja kunninga sína hér i bœnum, sem ekki hafa fengið áskorun áður, að leggja einnig eina krónu af mörkum. Við væntum þess, að allir þeir, jafnt konur sem karlar, sem ráð hafa á og eru máli þessu hlynntir, verði við áskorun þessari. Fé þessu verður vel varið. Petta er menningarmdl fyrir Akureyrarkaupstað. ■ NÝJA-BÍÓ HH Föstud, laugard. kl. 9 og sunnudag kl. 5 og 9. Grand Hótel tal og hljómmynd í 12 þáttum. Aðalhlutverkin leika: Greta Garbo, Joan Grawford, John Barrymore, Wallace Beery, Lionel Barrymore, Lewis Stone, Jean Hershalt. Frægasta bók þeirrar skáldkonu sem mest orð hefir farið af á síðustu árum, þýsku konunnar Vicki Baum, er Grand Hótel Vicki Baum fór sjálf til Hollywood og fylgdist með töku myndarinnar og gerði þær breyt- ingar á sögunni er þurfa þóttu til kvikmyndunar. Sjö af frægustu leikurum heimsins fengu aðalhlutverkin og miklu fé var varið til þess afr gera myndina að því listaverki sem hún er. — Grand Hótel hefir vakið feikna athygli um allan heim og fengið ársverðlaun coo »Akademisins« í Hollywood. cöo Rúmgóða stofu hefi eg til leigu nú þegar. Jónas Kristjánsson. Skíðastaðamenn Skoruðu á: Svanbjörn Frímannsson: Bjarni Jónsson, útbússtj. Kristján Árnason, kaupm. Sr. Friðrík Rafnar. Steinþór S'gurðsson: Sigurður Guðmundsson, skólam. Brynleifur Tobiasson, kennari. Hermann Stefánsson, fimleikakennari. Kjartan Sæmundsson: Baldur Guðlaugsson. Kristinn Þorsteinsson. Kári Jóhannsson. Friðrik Magnússon: Jón Benediktsson, prentari. Jón Norðfjörð, bókhaldari. Björn Halldórsson, lögfræðingur. Agnar Guðlaugsson: Erlingur Friðjónsson, kaupfél.stj, Lárus Rist, spítalaráðsm. Ólafur Magnússon, sundkennari. Pormóður Sveinsson: Guðbjörn Björnsson, kaupm. Tómas Steingrímsson, verzlunarm, Þórhildur Steingrímsdóttir, frú Porlákur Jónsson: Steingrímur Jónsson, baejarfógeti. Kristbjörg Dúadóttir, skrifari. Alfreð Jónasson, tollvörður. Stefán Árnasonl Pétur Jónsson, læknir. ÓIi P. Kristjánsson, póstmeistari. Helgi Skúlason, augnlæknir. Snorri Sigfússon: Kristján Sigurðsson, kennari. Kristbjörg Jónatansdóttir, kennslukona. Arnfinna Björnsdóttir, kennslukona. Karl Ingjaldsson: Halldór Ásgeirsson, verzlunarstj, Althur Guðmundsson, verzlunarm, Ingimundur Árnason, verzlunarm. Halldór Aspar: Jón E. Sigurðsson. Þórsteinn Sigvaldason. Borghildur Jónsdóttir, frú. Björn júlíusson: Jóhanna Jóhannesdóttir, Oddagötu 5, Jón Matthíasson, Brekkugötu 2. Ragnhildur Jónsdóttir. Axel Kristjánsson: Viggó Sigurðsson Sverrir Ragnars. Guðmundur Jónasson. Vernh. Þorsteins?;: Jónas Þór. Brynjólfur Sveinsson. Jakob Kvaran. Jóhannes Kdstjánsson: Þorsteinn Thorlacius. Þorbjörg Thorlacius. Gunnar Sigurgeirsson. Þorsteinn Stefánsson: Júníus Jónsson, bæjaiverkstjóri. Halldór Halldórsson, byggingafulltrúi. Jón Ouðmundsson, bókhaldari. Stefán Thorarensen: Páll Sigurgeirsson, kaupm. Theodor Lilliendahl, símritari. Karl. O. Runólfsson, fiðluleikari. ! Bjðrn Björnsson frá Múla: Eiríkur Brynjólfsson, ráðsmaður. Þórarinn Björnsson, kennari. Árni Guðmundsson, læknir. Jakob Frimannsson: Vilhjálmur Þór. Ólafur Thorarensen. Jón C. F. Arnesen. Tómas Björnssón : Jón Sveinsson, bæjarstjóri. Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri. Baldvin Ryel, kaupmaður. Steindór Steindórsson: * Árni Guðmundsson læknir. Sigfús Halldórs frá Höfnum skólastjóri. Sigurður L. Pálsson kennari. Famhald á 2. siðu. birtist í dag í fyrsta sinn. Ráðgert er að hún komi út að minnsta kosti annan hvern dag, meðan krónuveltan er f fullum gangi. Skiðastaðamenn kosta útgáfu blaðs- ins og öll önnur útgjöld við velt- una, svo hver króna, sem inn kemur, gengur óskert til endur- bóta og nýbygginga á búnings- klefum við sundlaugina. í trausti þess, að Akureyringar bregðist vel við áskorununum, er þegar byrjað á þessum endurbótum. Kaupið Tónhendur Björgvins Guðmundss. Aðalfundur TTfTTTTTTTTT Draupni kl. 5 á morgun. •• •• •• •• •• •• •• Athygli allra þeirra sem auglýsa þurfa, skal vakin á því, að KRÓNUVELTAN er borin inn á hvert heimili í bænum og er því Iangbezta auglýsingablaðið. Auglýsingunum sé skilað á Prentsmiðju Odds Björnssonar. Um krónuveltuna. Sem kunnugt er, er hugmyndin um krónuveltuna ekki frumleg, heldur tekin upp, eftir Reykjavík. Nokkrar raddir hafa heyrst um það, að óviðkunnanlegt væri að apa þetta eftir Reykvíkingum. En hér er það ekki mergur málsins, hvort hug- myndin er frumleg eða ekki, held- ur er það málefnið, sem unnið er fyrir. Happdrættí og hlutaveltur eru ekki uppfundnar á Akureyri og eng- inn segir neitt við því, að ýms fé- Iðg nota þetta til fjársöfnunar í EIGIN ÞARFIR. Krónuveltan er fjársöfnun til mál- efnis, sem snertir alla bæjarbúa, beiniínis eða óbeinlinis. Að vfsu má halda þvi fram, að ýms ðnnur málefni hefðu verið eins nauðsynleg; en gétið þið bent á það málefni, sem er þarfara? Krónuvelta hlaut að koma hingað til Akureyrar, og bæjarbúar mega vera glaðir yfir þvf, að hún er notuð til stuðnings eins þeirra málefna, sem varðar þá alla, en ekki aðeins fá- eina menn. Grasfræ -,,Trifolium.a Munið eftir að panta grasfræið í tíma, Umboð fyrir hið alþekkta grasfræ-firma »Trifolium«. Gunnar Jónsson, lögregluþjónn.

x

Krónuveltan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Krónuveltan
https://timarit.is/publication/1471

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.