Austri - 16.02.1995, Blaðsíða 4
4
AUSTRI
Egilsstöðum,16. febrúar 1995
Héraðsbúar - Austfirðingar!
Önnumst öll innlend og erlend bankaviðskipti,
ásamt VISA og EURO kreditkortaþjónustu.
BANKAHÓLF, NÆTURINNKAST
fyrir fyrirtæki og verslanir.
ATH!
Innlánsviðskipti er leið til lánsviðskipta.
vbtkoMIíJ
BIJNAÐARBANKINN
EGILSSTÖÐUM
Fagradalsbraut 11, sími 11203
- Traustur banki
c>
KONUDAGSTILBOÐ
0 G ÞIÐ
HERRAMENN... NU DROGUM VIÐ FRAM GRILLIÐ
BJÓÐIÐ ELSKUNNI YKKAR ÚT AÐ BORÐA.
Á MATSEÐLI VERÐUR:
HVÍTLAUKSRISTAÐUR HUMAR í KONÍAKSSÓSU
NAUTA T-BONE STEIK MEÐ BEARNAISESÓSU
0 G OSTATERTA
ÞETTA EINSTAKA TILBOÐ GILDIR
HÓTEL FYRIR LAUGARDAG OG SUNNUDAG.
VALASKJALF aðeins kr. 2.600.
EGILSSTOÐUM © 97-11500
I
0Ð GI
ilÍNNU
c>
<3
C>
C3
VANTAR ÞIG FATASKÁP?
15% AFSLÁTTUR
Það eru tilboðsdagar hjá
okkur á öllum
fataskápum með
rennihurðum.
Nú gefst einstakt
tækifæri til að fjárfesta
í rúmgóðum fataskáp
með 15% afslætti.
Allir skápar eru
framleiddir eftir máli. í
boði ýmiss konar útlit,
m.a. speglar og ýmsar
viðartegundir.
Umsjón :
Arndís Þorvaldsdóttir
Ég skal kveða
við þig vel
Ágætu lesendur!
Enn eru að berast botnar við
fyrripart Einars Péturssonar sem
hljóðaði svo:
Á þorrablótum þykir mér
þægilega gaman.
Svavar Gunnþórsson á Hreimsstöð-
um botnar:
Við mat og drykk menn una sér
og enda í bóli saman.
Hallveig Guðjónsdóttir frá Dratthala-
stöðum sendi inn tvo botna:
Lífíð er eins og litað gler
og ljúf og fjörug daman.
Því matarlistin mögnuð er
og margir hlæja saman.
I kaupbæti lét Hallveig fylgja með
fyrripart handa lesendum að spreyta
sig á:
Þorrasólin þykir skær
þegar hún skín á hjamið.
I síðara bindi Breiðdælu sem kom
út fyrir nokkrum árum í ritstjóm Ei-
ríks Sigurðssonar og Guðjóns Sveins-
sonar eru skáldum og hagyrðingum í
Breiðda! gerð góð skil og er þar að
finna mikið af ljóðum og stökum eftir
fjölda höfunda frá ýmsum tíma. Einn
þeirra er Gísli Brynjólfsson (1794-
1827), en hann yrkir svo um heima-
sveit sína:
Breiðdalur er blómasveit,
bæði góð og fögur.
Aldrei gleymast í þeim reit
íslensk ljóð og sögur.
Sigurjón Jónsson í Snæhvammi
kveður:
Þegar vor um völl og ál
veltir gulli sínu,
þá er eins og önnur sál
yrki í brjósti mínu.
Þá er í bókinni sérstakur þáttur sem
nefnist “Þorvaldsstaðafólk” og hefur
hann að geyma æviágrip og ljóð fimm
systkina, foreldra þeirra, föðurbróður
og móðurömmu. í þessum hópi er
Helga Björg Jónsdóttir, en ljóð eftir
hana hafa oft birst í Austra. Um ör-
lögin segir Helga Björg:
Mörgum þykir eitthvað að
örlög spinna þráðinn.
það tjáir ekki að tala um það,
þau taka af flestum ráðin.
Að þrauka á móti því sem hljótum
þýðir ekki hót.
Öll við göngum feigum fótum
framtíðinni mót.
Yngst systkinanna frá Þorvalds-
stöðum er Þórey Jónsdóttir. Hún
sendir kveðju heim á æskustöðvamar:
Ljúfi dalur landsins prýði
langt þú berð af þínum grönnum.
Einn þú slíka undrafegurð
átt í regni sól og fönnum.
Tignarlegir tindar rísa,
töfrum þínum enginn gleymir.
Bömin þín sem burtu fóru,
á björtum nóttum um þig dreymir.
Hagyrðingum í Breiðdal verða ekki
gerð skil í örstuttum vísnaþætti. Að
þessu sinni verður botninn sleginn í
þáttinn í takt við ástandið í þjóðfélag-
inu og endað á vísum um verkföll eft-
ir Gísla Björgvinsson í Þrastarhlíð:
Fréttir af verkföllum
Starfsþegar og stjómarmenn
stíft um launin þjarka.
Stóð í nótt og stendur enn
stöðugt meiri harka.
Um verkfallsrétt presta
Launamál prestanna leiðrétta ber,
lausn verður á því að finna.
Þeir hugleiða verkföll því óborguð er
öll þeirra helgidagsvinna.
Verkfall leikara
Litlu mig varðar þó langt verði hlé
og leikarar hverfi af skjánum,
því list sína ókeypis láta í té
lífsglaðir þrestir í trjánum.
Meira verður ekki kveðið að sinni.
AÞ
- TIL SÖLU -
77/ sölu er fasteignin að Stekkjarbrekku 9
Reyðarfirði.
íþúðin er í almenna kaupleigukerfinu.
íbúðin er 129 m2 5 herbergja.
Umsóknarfrestur til og með þriðjudeginum
14. mars nk.
V
Allar nánari upplýsingar fást á hrepps-
skrifstofu Reyðarfjarðar.
Fyrir hönd KOLLS hf.
B. fulltrúinn á Reyðarfirði
Sumarbsklingurinn er kominn
Spennandi áfangastaðir á góðu verði
Hvert vilt þú faral
Vid höfum ferðina.
SAMVINNUFERÐIR-LANDSÝN
Umboðsmaður á Egilsstöðum:
Sigrún Lárusdóttir
© 12387 e. kl. 5.