Austri - 09.11.1995, Blaðsíða 6
6
AUSTRI
Egilsstöðum, 9. nóvember 1995.
Stöð 2
Fimmtudagur 9. nóvember
16.45 Nágrannar
17.10 Glæstar vonir
17.30 MeðAfa(e)
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.20 Eiríkur
20.45 Systurnar (17:22)
21.40 Almannarómur (8:12)
22.45 Seinfeld (5:21)
23.15 Faðir brúðarinnar (Father of
The Bride). Lokasýning.
01.00 Á flótta (Run). Lokasýning
02.30 Dagskrárlok.
Föstudagur 10. nóvember
15.50 Popp og kók (e)
16.45 Nágrannar
17.10 Glæstar vonir
17.30 Köngulóarmaðurinn
17.50 Eruð þið myrkfælin?
18.15 NBA-tilþrif
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.25 Lois og Clark (20:22)
21.20 A Hard Day’s Night. Fyrsta
þemamynd mánaðains um Bítlana.
Dúndrandi Bítlastemmning fyrir fólk
á öllum aldri. Aðalhlv. John, Paul, Ge-
orge og Ringo. 1964.
22.50 Ein og hálf lögga (Cop and a
Half). Devon er átta ára gutti sem
dreymir um að verða lögga. Þegar
hann verður vitni að glæp nei tar hann
að aðstoða lögregluna nema að hann
fái sína eigin lögreglustjörnu og að
taka þátt í rannsókn málsins. Þar með
verður draumu r Devons að martröð
Nicks McKenna, miðaldra rannsókn-
arlögreglumanns sem þarf að taka
strákinn upp á sína arma. Þetta er
spennandi ga manmynd fyrir alla Qöl-
skylduna. Aðalhlv. Burt Reynolds og
Norman D. Golden. 1993.
00.25 Feilspor (One False Move)
Lokasýning.
02.10 Red Rock West. Mögnuð
spennumynd um atvinnulausan, fyrr-
verandi hermann sem kemur til smá-
bæjarins Red Rock West í atvinnuleit.
Leið hans liggur inn á krá í bænum og
þar rambar hann á eiganda búll unnar
sem dregur hann afsíðis og réttir hon-
um dágóða peningaupphæð sem fyrir-
framgreiðslu fyrir að myrða eiginkonu
sína. Maltin gefur þrjár stjömur. Aðal-
hv. Nocolas Cage, Dennis Hopper og
Lara Flynn Boyle. Stranglega bönnuð
bömum.
03.45 Dagskrárlok.
Laugardagur 11. nóvember
09.00 Með afa
10.15 Mási makalausi
10.40 Prins Valíant
11.00 Sögur úr Andabæ
11.25 Borgin mín
11.35 Ráðagóðir krakkar
12.00 Sjónvarpsmarkaðurinn
12.30 Að hætti Sigga Hall (e)
13.00 Fiskur án reiðhjóls (e)
13.20 Þegar hvalirnir komu (When
the Whales Came). Lokasýning
15.00 3-bíó: Sagan endalausa (The
Neverending Story) Undursamleg æv-
intýri um tíu ára strák sem er
skammaður af föður sínum fyrir að
lifa í heimi dagdraumanna og láta
námið sitja á hakanum. Hann lokar sig
af með dularfulla bók sem heitir Sagan
endalausa og upp fyri r honum lýkst
ævintýraveröld þar sem hann hittir
furðuverur og kynjadýr. 1984.
16.30 Andrés Önd og Mikki mús
17.00 Oprah Winfrey (23:30)
17.45 Popp og kók
18.40 NBA-moIar
19.19 19:19
20.00 Bingó Lottó
21.05 Vinir (16:24)
21.35 Beint á ská 33 1/3 (Naked Gun
33 1/3: The Final Insult). Þriðja mynd-
in um lögreglumanninn vitgranna
Frank Drebin og ævintýri h ans. Geð-
veikislegur húmor einkennir þessar
myndir sem hafa fengið metaðsókn
um allan heim. Hér glíma Drebin og
félagar við hryðjuver kamenn sem
ætla að sprengja Óskarsverðlaunahá-
tíðina í loft upp. Einnig þarf Drebin að
bregða sér í gervi fanga og dveljast í
alræmdu fangelsi til að komast inn í
glæpaklíkuna. Þar hvetur hann til upp-
reisnar í matsalnum vegna þess að
hvítvínið með matnum er ekki nó gu
fínt. Atriði úr frægum myndum eru
skopstæld og nýir brandarar birtast á
augnabliksfresti. Aðalhlv. Leslie Niel-
sen, O.J. Simpson og George Kenn-
edy. 1994.
23.00 Hvítir sandar (White Sands).
Lík af velklæddum manni finnst í
eyðimörkinni. I annarri hendi manns-
ins er skammbyssa en hin held ur um
tösku sem inniheldur hálfa milljón
dollara í reiðufé. Þetta er sannarlega
dularfull gáta sem lögreglumaðurinn
Ray Dolezal fær að glíma við. Var
þetta morð eða sjálfsmorð? Ef þetta
var morð hvers vegna tók morðinginn
ekki peninga? Og hví skyldi einhver
ferðas t óraleiðir inn í eyðimörkina til
að stytta sér aldur? Aðalhv. Willem
Dafoe, Samuel J. Jackson, Mimi
Rogers og Mickey Rourke. 1992.
Stranglega bönnuð bömum.
00.45 Rauðu skórnir (39:40)
01.10 Dauðasyndir (Moral Sins).
Lokasýning.
02.40 Dögun (Daybreak) Skæð farsótt
ógnar bandarísku þjóðinni og barátt-
uglöð ungliðahreyfing leitar uppi alla
þá sem hugsanlega eru smitaðir og
sendir í sóttkvíar sem minna helst á
fangelsi. Aðalhv. Cuba Gooding Jr. og
Moria Kelly. 1993. Stranglega bönnuð
bömum.
04.10 Dagskrárlok
Sunnudagur 12. nóvember
09.00 Afmælisveislan mikla
09.25 Dýrasögur
09.40 Náttúran sér um sína
10.05 í Erilborg
10.30 Snar og snöggur (1:20). Nýr
spennandi teiknimyndaflokkur með ís-
lensku tali.
10.55 Ungir eldhugar
11.10 Brakúla greifí
11.35 Sjóræningjar
12.00 Frumbyggjar í Ameríku
13.00 Iþróttir á sunnudegi
16.30 Sjónvarpsmarkaðurinn
17.00 Húsið á sléttunni (18:24)
18.00 í sviðsljósinu (9:37)
18.45 ListaspegiII (e)
19.19 19:19
20.05 Islenskt, já takk. Skemmtilegur
þáttur þar sem fjallað er á léttu nótun-
um um mikilvægi þess að velja ís-
lenskt og bmgðið upp s vipmyndum af
ýmsu því sem innlendir listamenn em
að fást við þessa dagana. Umsjón:
Steingrímur Ólafsson.
21.05 Brestir (Cracker). Ný syrpa í
þessum hörkuspennandi breska saka-
málamyndaflokki með Robbie Coltra-
ne í hlutverki vafasams sálfræ ðings
sem blandast í glæpamál og tekur á
þeim með sínum hætti.
22.50 60 mínútur (4:35)
23.40 Bekkjarfélagið (Dead Poets
Society) Lokasýning.
01.45 Dagskrárlok.
Mánudagur 13. nóvember
16.45 Nágrannar
17.10 Glæstar vonir
17.30 Regnboga birta
17.55 Umhverfís jörðina í 80
draumum
18.20 Maggý
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.20 Eiríkur
20.45 Að hætti Sigga Hall (9:14)
21.15 Brestir (Cracker) (3:3)
22.00 Sekt og sakleysi (8:22)
22.55 Engir englar (Fallen Angels)
(1:6). Nýr bandarískur myndaflokkur.
Aðalhv. Gabriella Anwar, Gary Oldm-
an og Meg Tilly.
23.20 Fyrirtækið (The Firm).
Dramatísk spennumynd um Mitch
McDeere sem hefur brotist til mennta
og er nýútskrifaður frá lagadeildinn i í
Harvard. Fyrirtæki í Memphis býður
honum gull og græna skóga og Mitch
tekur tilboðinu. Aðalhv. Tom Cruise,
Jeanne Tripplehorn, G ene Hackman
og Holly Hunter. 1993. Bönnuð böm-
um.
01.50 Dagskrárlok.
Þriðjudagur 14. nóvember
16.45 Nágrannar
17.10 Glæstar vonir 1
7.30 Lísa í Undralandi
17.55 Lási Iögga
18.20 Stormsveipur
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.20 Eiríkur
20.40 VISASPORT
21.10 Handlaginn heimilisfaðir
(23:25)
21.35 Sögur úr stórborg (Tales of the
City) (1:6). Athyglisverður bandarísk-
ur myndafiokkur sem gerist í San
Francisco á sjöunda árat ugnum.
Olympia Dukakis er í hlutverki frjáls-
lyndrar konu á miðjum aldri sem rekur
gistihús en þangað leitar ungt fólk sem
er að taka st á við lífið og upplifa æv-
intýrin í San Fransisco.
22.25 New York Iöggur (5:22)
23.15 Hvað með Bob? (What About
Bob?). Lokasýning.
00.50 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 15. nóvember
16.45 Nágrannar
17.10 Glæstar vonir
17.30 I vinaskógi
17.55 Jarðarvinir
18.20 VISASPORT (e)
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.20 Eiríkur
20.45 íslandsmeistarakeppnin í
samkvæmisdönsum (1:2)
21.40 Fiskur án reiðhjóls (7:10)
22.10 Tildurrófur (4:6)
22.40 Tíska (36:39)
23.10 Ástareldur (Hearts on Fire).
Lokasýning.
00.45 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
Fimmtudagur 9. nóvember
10.30 Alþingi. Bein útsending frá
þingfundi
16.25 Einn-x-tveir (e)
17.00 Fréttir
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar (e)
18.30 Ferðaleiðir. Við ystu sjónar-
rönd - Indland.
19.00 Hvutti (6:10)
19.30 Dagsljós
20.00 Fréttir
20.25 Veður
20.30 Dagsljós framhald.
21.00 Syrpan
21.30 Ráðgátur (6:25)
22.25 Roseanne (18:25)
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok
Föstudagur 10. nóvember
17.00 Fréttir
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Eldfuglinn. Bandarísk teikni-
mynd
18.30 Fjör á fjölbraut (3:39)
19.30 Dagsljós
20.00 Fréttir
20.35 Veður
20.40 Dagsljós framhald
21.10 Happ í hendi. Umsjón Her-
mann Gunnarsson
21.50 Smábær í Texas (Texasville).
Þetta er sjálfstætt framhald myndar-
innar The Last Picture Show og seg-
ir frá lífi nokkurra vina í smábæ í
Texas sem er að nálgast miðjan ald-
ur. Aðalhv. Jeff Bridges, Cybill
Shepherd, Annie Potts, Timothy
Bottoms, Randy Quaid, Clor is
Leachman, William McNamara og
Eileen Brennan.
00.00 Kattafólkið (Cat People)
Hrollvekja frá 1942 um samband
ungs skipaverkfræðings og
serbneskrar listakonu sem heldur
því fram að yfir sér hvíli bölvun.
Aðalhlv. Simone Simon, Tom
Conway og Kent Smith.
01.10 Útvarpsfréttir í dagskrár-
lok.
Laugardagur 11. nóvember
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
Myndasafnið Sögur bjórapabba,
Stjörnustaðir, Burri, Dagur leik-
ur sér, Bambusbirnirnir
10.50 Hlé
13.30 Syrpan (e)
14.00 Alþjóðlegt tennismót, bein
úts. frá Kópavogi.
16.00 Landsleikur í knattspyrnu.
Beint. Island-Ungveijaland.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Ævintýri Tinna (22:39)
18.30 Flauel
19.00 Strandverðir (6:22)
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.35 Lottó
20.40 Radíus
21.05 Hasar á heimavelli (16:22)
21.35 Fortíðarsýn (Brother Future)
Ævintýramynd um ungan svertingja
sem verður fyrir bíl og þegar hann
rankar við sér er hann staddur í Suð-
urríkjunum árið 1822 og á fyrir
höndum þrælslíf. Aðalhv. Phill
Lewis, Carl Lumbly og Michael
Burgess. 1992.
23.25 Fífldjarfur flótti (La fille de
l’air) Spennumynd um konu sem
frelsar eiginmann sinn úr fangelsi.
Aðalhlv. Beatrece Dalle, Thi erry
Fortineu og Hippolyte Girardor.
1993.
01.10 Útvarpsfréttir í dagskrár-
lok.
Sunnudagur 12. nóvember
09.00 Morgunsjónvarp barnanna.
Tuskudúkkurnar, Sunnudaga-
skólinn, Geisli, Oz-börnin.
Dagbókin hans Dodda
10.35 Morgunbíó - Jóki og geim-
bimimir
12.05 Hlé
13.20 Ungir norrænir einleikarar.
Jyri Nissilá, klarin.leikari
14.00 Kvikmyndir í eina öld.
Kvikmyndagerð á Norðurlöndum
15.00 í skugga stjarnanna. (In the
Shadow of the Stars) Heimilda-
mynd um kórsöngvara í óperum
sem verða að sætta sig við að falla í
skuggann af stórstjömunum.
16.30 Bertel Thorvaldsen
17.00 Heimskautafarinn Vil-
hjálmur Stefánsson.
17.40 Hugvekja.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.30 Pfla
19.00 Geimstöðin (26:26)
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.35 Benjamín í Berlín og
Moskvu. Ný heimildamynd eftir
Einar Heimisson. Dr. Benjamín Ei-
ríksson talar opinskátt um hin ör-
lagaríku n ámsár sín í Berlín og
Moskvu á 4. áratugnum. Og um
samband sitt við barnsmóður sína,
Vem Hertsch, en þær Sólveig Erla,
dóttir þeirr a Benjamíns, urðu síðar
fómarlömd hreinsana Stalíns.
21.00 Martin Chuzzlewit (6:6)
21.55 Helgarsportið
22.15 Bréf frá Spáni (A Letter
From Spain) Japönsk bíómynd frá
1993 um ungan pilt sem gengur í
sirkusskóla á Spáni. Aðalhlv. Naoto
O gata, Keisuké Minamoto, Tomyo
Harada, Makoto Fujita og Yoshiko
Sakuma.
00.00 Útvarpsfréttir í dagskrár-
lok.
Mánudagur 13. nóvember
16.35 Helgarsportið (e)
17.00 Fréttir
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Þytur í laufi (60:65)
18.30 Leiðin til Avonlea (13:13)
19.30 Dagsljós
20.00 Fréttir
20.25 Veður
20.30 Dagsljós, framhald.
21.00 Lífíð kallar (19:19)
22.00 Einkalíf plantna (1:6), Fræ
eru ferðalangar. Breskur heimilda-
myndaflokkur um jurtaríkið og und-
ur þess eftir hinn kunna sjónvar ps-
mann David Attenborough.
23.00 Ellefufréttir og Evrópubolti
23.20 Er hægt að lifa á sjávarút-
vegi?
23.35 Dagskrárlok.
Þriðjudagur 14. nóvember
13.30 Aþingi. Bein útsending
17.00 Fréttir
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Gulleyjan (24:26)
18.25 Pfla (e)
18.55 Bert (1:12). Sænskur mynda-
flokkur gerður eftir víðfrægum bók-
um Anders Jacobsons og Sörens
Olssons sem komið hafa út á ís-
lensku.
19.30 Dagsljós
20.00 Fréttir
20.25 Veður
20.30 Dagsljós, framhald
21.00 Staupasteinn (21:26)
21.30 Ó. Umsjón: Dóra Takefusa og
Markús Þór Andrésson.
21.55 Derrick (3:16)
23.00 Ellefufréttir
23.15 Stuttmyndir í Reykajvík.
Þáttur um stuttmyndadaga sem
haldnir voru í Rvk. í vor.
00.15 Dagskrárlok.
Miðvikudagurl5.nóvember
13.30 Alþingi. Bein útsending
17.00 Fréttir
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Myndasafnið (e)
18.30 Sómi kafteinn (17:26)
18.55 Úr ríki náttúrunnar. Vís-
indaspegillinn. Blóðið
19.30 Dagsljós
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.35 Dagsljós, framhald
20.45 Víkingalottó
21.00 Nýjasta tækni og vísindi
21.30 Hvíta tjaldið
22.00 Fangelsisstjórinn (4:5)
23.00 Ellefufréttir
23.15 Einn-x-tveir
23.50 Dagskrárlok.
Leiðrétting
í síðasta tölublaði Austra var grein unnin upp úr
skýrslu frá Skógræktarfélaginu í Neskaupstað. Það var
greint frá hæðarmælingum á trjám þar í bæ og talin upp
hæstu trén sem mæld voru. Undirrituð skyldi skýrsluna
svo að þar væru tíunduð öll tré í bænum sem náð hefðu
tíu metra hæð og kom fram í fréttinni að þau væru níu
að tölu. Hið rétta er að tré sem náð hafa þeirri hæð í
bænum skipta tugum ef ekki hundruðum en einungis
voru mæld þau hæstu.
‘E*7 sþaC (Cpeða
við þig veí
Umsjón:
Ágústa Ósk Jónsdóttir
Heil og sœl!
Vinur þáttarins hringdi og spurði
hvort ég kynni engar hestavísur.
Það er nú svo að ég kann engin
ósköp af vísum yfirleitt, en á
ýmislegt sem hefur safnast á riss-
blöðin gegnum árin. Auðvitað
lærði ég hestavísur Páls Ólafsson-
ar, sem barn. Vísur um Stjörnu,
Langa-Brún og Yngri Rauð, að
ógleymdri Litlu Löpp sem var svo
fótviss að:
Hún er viss með hvergi að hnjóta,
hvað þáfalla,
þótt hún missi þriggjafóta
og það í halla.
Einhver munur eða trunturnar
sem duttu á rennisléttum götun-
um. Ég á eina eftirlætis hestavísu,
en því miður veit ég ekki um höf-
und hennar, í henni er viss lífs-
skoðun, ekki verri en margar aðr-
ar:
Við skulum brokka, Blakkur minn,
báðir skamma œvi.
Mérfinnst varla að vekurðin
veröldinni hæfi.
Eyjólfur Jónsson í Sólheimum
gerði vísu um folald sem Dropi
hét:
A þig set ég allt mitt traust
í alvöru og skopi,
þegarfer að hríða í haust
hýsi ég þig, Dropi.
Gunnar A. Thorsteinsson, Arnar-
stöðum, kveður um Faxa sinn:
Þegar Faxafann ’eg spor
fannst mér tíminn sœtur,
vekur yndi og eilíft vor
að eiga þessa fœtur.
Og um annan góðhest:
Töltir nett og tekur sprett
tyllir létt ífótinn,
gripin réttu þrífur þétt
þegar slétt er rótin.
jÖ)
Falleg er vísa Jóns Þorsteinssonar
á Amarvatni, um Litlu-Rauðku:
Sporið hreina og þelið þitt
þúsund meinum bifa.
Þú ert eina yndið mitt
efég reyni að lifa.
Egill Jónsson á Húsavík sendi
vini sínum, kunnum hestamanni,
þessa afmæliskveðju:
Minnast vil ég merkisdags
mœni á þínar slóðir.
Ég þó hafi ei hófnéfax,
hneggja ég til þín, bróðir.
Þorsteinn Guðmundsson, Skálpa-
stöðum, kvað:
Vel égfinn mér vœri það
veigamestur auður,
efþú gcetir gert mig að
góðum manni, Rauður.
Þjóðin dýrkaði góðhestinn og
söng honum lof og prís, samt varð
henni notadrýgst nafnlausa hross-
ið sem þjónað lengst og best - það
vissi Káinn:
Eina ég hitti um aftanskeið
austur á Svartaskeri.
Hugurinn bar mig hálfa leið
en hittfór ég á - meri.
Og svo er um eitt sjónarmið. Ingi-
björg Bergþórsdóttir í Fljótstungu
orðaði það svo í limru:
Hrossin? - Um hrjósturlönd
feta þau
hnarreist, - og ég kanna að
meta þau
soðin eða steikt, söltuð, ný
og reykt.
- Ég kann þó alltént að éta þau.
Þakka ykkur lesturinn.
Ágústa Ósk
„SILFUR-
MAÐURINN“
Seinna í þessum mánuði kemur út
bókin „Silfurmaðurinn“, sem fjallar
um íþróttaferil Vilhjálms Einarsson-
ar. Hún er að mestu skrifuð af hon-
um sjálfum og í bókinni leitast hann
m.a. við að svara spurningunum:
1. Hvemig gat drengur, fæddur á
Austfjörðum í kreppunni, komist á
verðlaunapall á Ólympíuleikum 22
ámm síðar?
2. Hvernig voru kringumstæður
„silfurmannsins" næstu ár, helstu
keppnir, sigrar og vonbrigði?
I leit að svörum við spurningun-
um greinir Vilhjálmur ítarlega frá
uppruna sínum og uppeldisáhrifum
í bemsku og æsku og leitast við að
draga fram það, sem mestu máli
skipti á hverjum tíma. Vilhjálmur
fjallar ítarlega um íþróttalíf á Aust-
urlandi á vakningatímanum upp úr
1930 og fram að landsmótinu á Eið-
um 1952. Hann greinir frá aðdrag-
anda helstu íþróttaafreka með
áherslu á mikilvægi hugarástandsins
eða sálarlífsins, þegar nálgast mikla
keppni.
Leikgleði, jákvœtt hugarfar og
bjartsýni eru miðlœgir þættir ífrá-
sögninni.
Vilhjálmur greinir af opinskárri
einlægni frá aðstæðum sínum í upp-
vexti og á keppnisárum, eins og þær
koma honum fyrir sjónir nú. Auk
hans eiga Örn Eiðsson og Ólafur
Unnsteinsson þátt í ritun bókarinn-
ar, Örn gerir skil umfjöllun fjöl-
miðla um helstu keppnir Vilhjálms
árin 1952-1962 og Ólafur sér um ít-
arlega tölfræði hvað varðar met og
árangur hans frá ári til árs en aðrir
íþróttagarpar koma þar einnig við
sögu.
Bókin er hvatning æskufólki,
þjálfurum og leiðbeinendum, með
þeirri áherslu sem lögð er á alhliða
iðkun íþrótta og leikja, í skóla sem
utan. Dæmi Vilhjálms sýnir, að ekki
er nauðsynlegt að hefja á unga aldri
þjálfun í einstakri íþróttagrein með
alvöru keppninnar að markmiði.
Öllum þeim, sem ekki telja sig hafa
fullkomna aðstöðu til iðkunar íþrótt
sinni ætti að vera uppörvun í lestri
bókarinnar.