Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Side 16

Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Side 16
16 SJÓNARHORN „Hve gott og fagurt og indælt er“ Sigri fagnað í Noregi Föstudaginn 6. ágúst undirritaði Noregskonung- ur ný lög sem staðfesta sambúð fólks af sama kyni. Þar með er Noregur orðinn annað ríkið í heimin- um til að viðurkenna sambúð lesbía og homma fyrir lögum. Sami agnúi er þó á þessum lögum og þeim dönsku, sem gengu í gildi fyrir þremur árum, að samkynhneigðir í sambúð geta ekki ætt- leitt börn. Sá þáttur baráttunnar er enn í fullu gildi og fyrir honum verður að berjast í framtíð- inni þangað til fullur sigur er tryggður. Sú stefnubreyting sem Clinton Bandaríkjaforseti boðaði í kosn- ingabaráttunni gagnvart lesbíum og hommum í Bandaríkjaher, er að engu orðin, segja talsmenn bar- áttuhreyfinganna vestan hafs. „Þessari nýju stefnu verður á end- anum hafnað af dómstólum, „segir Kevin Cathcart einn af talsmönn- um homma. „Nýjar yfirlýsingar Clintons fela það í sér að hommar og lesbíur verða að sverja eið um varanlegt skírlífi og að þegja um kynhneigð sína ef þeir vilja þjóna í hemum.“ Yfirmenn herafla Bandaríkjanna eru sem að líkum lætur kátir yfir „skilningi og sveigjanleika" nýja forsetans. „Þetta er lausn sem allir geta sæst á og hún vemdar herinn, vemdar einkalíf allra þeirra sem þar þjóna, og er um leið skref í átt til meira frjálsræðis,“ segir Colin Powell fyrrum herráðsforseti. Bill Clinton hefur tilnefnt lesbíu í ráðherrahóp sinn. Það verður Ro- berta Actenberg lögfræðingur sem verður fyrsti samkynhneigði ráð- herrann í Bandaríkjunum svo vit- að sé. Hún mun taka sæti aðstoðar- ráðherra húsnæðismála, en hún hefur unnið að húsnæðismálum í San Francisco og er margreyndur Rúmlega eitt þúsund manns söfn- uðust saman þennan dag við ráð- húsið í Osló þar sem nokkur pör vom gefin saman og fögnuðu ákaft þegar þau birtust á tröppunum. Slík voru fagnaðarlætin að tíu „kristnir“ sem ætluðu sér að mót- mæla, urðu hreinlega að engu í manngrúanum. lögfræðingur. Auk þessa hefur hún verið virk í réttindabaráttu lesbía til fjölda ára. Nýi ráðherrann flyst til Washington ásamt eiginkonu sinni, dómaranum Mary Morgan og Benjamín syni þeirra. Samtök homma og lesbía hafa lýst því yfir að þessi tilnefning Clintons sé sögulegur viðburður. Fyrstar allra Norðmanna í „skráða sambúð fólks af sama kyni“ voru þær Karen-Christine (Kim) Friele og Wenche Lowzow. „Þetta var svo gaman að ég gæti bara hugsað mér að endurtaka það,“ sagði Kim í viðtali við norska sjónvarpið á tröppum ráð- hússins. Og þær vom svo sannar- lega vel að þeim heiðri komnar, því að í rúman aldarfjórðung var Kim í fararbroddi mannréttinda- baráttu lesbía og homma á Norður- löndum. Með gáfum sínum, rök- vísi og orðheppni rétti hún okkur öllum vopn í hendur sem seint verða fullþökkuð. Meðal annars varð hún var fyrst allra Norður- landabúa til að skrifa af róttækni og þekkingu um reynslu og hlut- skipti lesbía og homma þegar hún sendi frá sér bókina Fra under- trykkelse til oppr0r árið 1975. Wenche Lowzow var um árabil þingmaður Hægri flokksins í Noregi og kom úr felum sem lesbía meðan hún sat á þingi. Hún hafði orð á sér fyrir að vera svartasta íhald, en eftir að þær Kim kynntust árið 1977 fór svo að Wenche Lowzow gerðist skeleggasti mál- svari samkynhneigðra á norska Stórþinginu. Þessi óvænta afstaða hennar í mannréttindamálum varð þó til þess að hún einangraðist að lokum algerlega í flokki sínum. Kim Friele hvarf úr starfi sínu sem aðalritari Forbundet av 1948 árið 1989 og hlaut þá í virðingar- skyni árleg heiðurslaun frá norska ríkinu fyrir framlag sitt til mann- réttindamála. Hvert stefnir í Bandaríkjunum - efnir Clinton loforð sín? Bara ef þú læðist með veggjum Roberta Achtenberg ráðherra húsnæðismála Svo fjúki ekki í flest skjól Tvískinnungur kaþólsku kirkjunnar * I hvorn fótinn á að stíga? Hræringar í austurálfu - ný tímarit Kaþólska kirkjan veit sjaldnast í hvorn fótinn hún á að stíga þegar hommar og lesbíur eiga í hlut. Flestar yfirlýsingar hennar um kúgun og misrétti gagnvart þeim hljóma því oftast eins og hver ann- ar vindur úr merarrassi. Kaþólska kirkjan í Mexíkó hef- ur nýverið sent yfirvöldum þar í landi bréf þar sem hrottaleg morð á tólf samkynhneigðum í bænum Tuxla Guitierrez eru fordæmd og farið er fram á að morðingjarnir verði sakfelldir. I bréfinu stendur m. a.: „Kirkjan viðurkennir ekki samkynhneigð sem samkvæmt kaþólsku siðferði er ónáttúruleg. En allt fólk á rétt á lífi í öryggi óháð siðferði og þjóðfélagsstöðu." Þessari afstöðu mexíkósku kirkjunnar svipar til þeirrar sem Jóhannes Páll páfi, sjálfur leiðtogi kaþólskra, hefur tekið í nýlegum bullum sínum. Fyrir einungis tveimur árum voru kynmök milli fólks af sama kyni ólögleg í Hong Kong, en nýir tímar hafa runnið upp og þróunin lofar góðu og fyrsta fréttablað homma og lesbía þar í borg, Hong Kong Connection, kom út í júnímánuði. Ritstjórar þess lofa fréttum, greinaflokkum og lífsreynslusög- um frá öllum löndum í Austurlönd- um fjær. I Rússlandi er baráttan loksins sýnileg. Jeltsín forseti hefur lagt fram frumvarp að nýrri refsilög- gjöf þar sem refsiákvæði sem varða mök milli karlmanna skulu afnumin. Það er hið illræmda §121.1. Samkynhneigðir þar í landi óttast þó að þingmenn muni víkja sér undan atkvæðagreiðslu um þá grein af ótta við að verða sjálfir teknir fyrir homma eða les- bíur. En hræringamar leyna sér ekki því að í sumar kom út fyrsta fréttablað samkynhneigðra í Rúss- landi, nánar tiltekið í St. Péturs- borg, fékk það nafnið Kristofer og tengist blaðið Tsjaíkovskí-stofn- uninni, en hún gegnir forystuhlut- verki í baráttunni þar um slóðir. Fyrir áhugasama þá eru heimilis- föng þessara tímarita: Hong Kong Connection, P. O. Box 47352, Norrison Hill Post Office, Hong Kong; og Kristofer, Box 1002, St. Petersburg, Russland. Enginn er eyland. Ert þú félagi í Samtökunum 78?

x

Samtökin '78 - Sjónarhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Sjónarhorn
https://timarit.is/publication/1491

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.