Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.5. 2020
08.00 Strumparnir
08.20 Adda klóka
08.45 Blíða og Blær
09.10 Dóra og vinir
09.30 Zigby
09.40 Mia og ég
10.05 Lína langsokkur
10.30 Latibær
10.50 Lukku láki
11.15 Ævintýri Tinna
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.25 Nágrannar
13.30 Friends
13.50 Borgarstjórinn
14.15 McMillions
15.10 Sápan
15.40 Drowning in Plastic
16.35 60 Minutes
17.40 Víglínan
18.20 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Sportpakkinn
19.00 Framkoma
19.30 The Greatest Dancer
20.40 Between Us
21.25 Killing Eve
22.15 Gasmamman
23.00 Prodigal Son
23.45 Manifest
00.30 Cardinal
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Eitt og annað fyrir
bragðlaukana
20.30 Tónlistaratriði úr Föstu-
dagsþættinum
Endurt. allan sólarhr.
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Eldhugar: Sería 3 (e)
21.30 Hugleiðsla með Auði
Bjarna (e)
21.45 Bókin sem breytti mér
(e)
Endurt. allan sólarhr.
16.10 Malcolm in the Middle
16.30 Everybody Loves
Raymond
16.55 The King of Queens
17.15 How I Met Your Mother
18.10 Mannlíf
18.35 Áskorun
19.10 Love Island
20.10 Jarðarförin mín
20.45 Madam Secretary
21.35 Law and Order: Special
Victims Unit
22.25 Ray Donovan
23.20 The Walking Dead
24.00 FBI
00.45 Proven Innocent
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Árbæj-
arkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Glans.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu: Heima
í Hörpu V.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Óborg.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.29 Lalli
07.36 Tulipop
07.40 Molang
07.43 Klingjur
07.54 Minnsti maður í heimi
07.55 Hæ Sámur – 48. þáttur
08.02 Hrúturinn Hreinn
08.09 Bréfabær
08.20 Letibjörn og læmingj-
arnir
08.27 Stuðboltarnir
08.38 Konráð og Baldur
08.50 Nellý og Nóra
09.00 Múmínálfarnir
09.23 Ronja ræningjadóttir
09.45 Krakkafréttir vikunnar
10.00 Eldsmiðjan
10.45 Poppkorn – sagan á
bak við myndbandið
11.00 Silfrið
12.10 Menningin – samantekt
12.35 Eurovision – Europe
Shine A Light
14.45 Eurovision – partý
16.50 Poppkorn 1986
17.20 Herra Bean
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Söguspilið
18.25 Lífsins lystisemdir
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Landinn
20.15 Músíkmolar
20.25 Úti
20.55 Viktoría
21.45 Framúrskarandi vin-
kona: Saga af nýju
ættarnafni
22.45 Finnskir bíódagar: Mað-
ur án fortíðar
00.15 Kafbáturinn
13 til 16 Pétur Guðjóns Góð tónlist og létt spjall á
sunnudegi.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með DJ Dóru Júlíu
Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir vinsæl-
ustu lög landsins á K100. Tónlistinn er eini opinberi
vinsældalisti landsins, unninn upp úr gögnum frá Fé-
lagi hljómplötuframleiðanda.
18 til 00 K100 tónlist Besta blandan af tónlist á
K100 í allt kvöld.
Gunnlaugur
Bragi Björnsson,
sem búsettur er
í Danmörku,
segir í samtali
við Síðdegis-
þáttinn að for-
gangsröðun í
landinu á því í
hvaða röð slakað verði á takmörkunum og aðgerðum
vegna faraldurs kórónuveirunnar sé töluvert ólík því
sem sé á borðinu á Íslandi en hann segir að opnun
ölkráa (d. værtshus), sem opnaðar verða mánudaginn
18. maí, hafi komið honum á óvart. Til samanburðar
verða sundlaugar opnaðar hér á landi sama dag, 18.
maí, og líkamsræktarstöðvar viku síðar, en í Dan-
mörku verður ekki heimilt að fara í sund eða í ræktina
fyrr en um miðjan ágúst.
Nánar er fjallað um málið á fréttavef K100, K100.is.
Opna ölkrár á mánudag
en ræktina í ágúst
Manila. AFP. | Viðureign Muhammads Alis og Joes Fraziers í Manila fyrir
45 árum fór í sögubækur hnefaleikanna, en eftir slaginn, sem stóð í 14 lot-
ur, höfðu þeir gengið sér svo nærri að þeir báru þess merki til frambúðar.
Þeir áttust við um miðjan dag í þrúgandi hita á Filippseyjum. Frazier
missti næstum sjónina
og Ali var við það að gef-
ast upp. Að lokum ákvað
þjálfari Fraziers að gefa
viðureignina og sigurinn
fór til Alis, en báðir voru
aðframkomnir.
„Ali og Frazier urðu
aldrei samir eftir að eyða
næstum allri sinni orku
og úthaldi í Manila,“ seg-
ir Recah Trinidad, sem
skrifar dálka um box á
Filippseyjum. „Ætlun
hnefaleikaranna var að
rústa hvor öðrum, ekki
bara hafa betur.“
Ali hafði sigrað
George Forman í frægri
viðureign í Saír árið áð-
ur. Hann var orðinn 33
ára og hans bestu ár að
baki. Þeir börðust af
slíku harðfylgi að blóðið
slettist yfir áhorfendur,
þar á meðal Imeldu
Marcos, konu Ferdin-
ands Marcosar, sem þá
var einræðisherra í land-
inu, í Araneta-höllinni
þar sem sátu 25 þúsund
manns.
„Þetta var eins og dauði, það næsta sem komist verður dauða svo ég
viti,“ sagði Ali síðar.
Ali hafði kynt undir illindum fyrir viðureignina og reitt Frazier, sem var
31 árs, til reiði með því að líkja honum við górillu.
Viðureignin var að degi til svo hægt væri að senda hana út að kvöldlagi í
Bandaríkjunum. Fjöldi áhorfenda og sjónvarpsljósin urðu loftkælingunni
ofviða. Frazier sagði síðar að þeir hefðu ekki bara barist hvor við annan,
heldur líka við hitann.
Hægra auga Fraziers var bólgið eftir högg Alis svo hann gat lítið séð
með því og hann var nánast blindur á vinstra eftir meiðsl á æfingu. Frazier
reifst við þjálfara sinn, Eddie Futch, og vildi fara í 15. lotuna, en Futch lét
stöðva bardagann.
Síðar kom fram að Ali vildi binda enda á viðureignina.
„Lota 14 er það næsta sem ég hef komist því að sjá mann drepa mann,“
sagði Ferdie Pacheco, læknir Alis í bardaganum, í heimildamyndinni
Thrilla in Manila frá 2008.
Ali átti eftir að verja heimsmeistaratitil sinn sex sinnum til viðbótar og
endurheimta hann í viðureign við Leon Spinks 1978, en hann hafði látið á
sjá eftir barsmíðarnar í Manila. Frazier barðist aðeins tvisvar eftir að
hann mætti Ali í Manila. Hann lést árið 2011.
Joe Frazier stendur yfir Mohammad Ali í Madison
Square Garden í New York 1971. Þá sigraði Fra-
zier, en hann laut í lægra haldi í blóðugum bar-
daga í Manila fjórum árum síðar.
ALI OG FRAZIER SLÓGUST TIL ÞRAUTAR 1975
Háðu blóðugan
bardaga í Manila
AFP
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Rými fyrir
ráðstefnur
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnur