Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Side 32
SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 70 Verð 375.000,-
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 525.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 275.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 375.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 70 Verð 445.000,-
L 202 cm Leður ct. 25 Verð 665.000,-
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
L 224 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
BOTANIC model 3185
L 162 cm Leður ct. 10 Verð 345.000,-
L 192 cm Leður ct. 10 Verð 375.000,-
Í sumar mun Borgarbókasafn Reykjavíkur bjóða upp á fjöl-
breyttar smiðjur í öllum söfnum Borgarbókasafns. Skemmtileg
dagskrá er fyrir ungmenni í allt sumar en meðal annars verða
tónlistarsmiðjur, ritsmiðjur, dansnámskeið og borðspilasmiðja.
„Við höfum áður verið með sumarsmiðjur fyrir börn en í ár
verðum við líka með smiðjur fyrir ungmenni og verða þær í OK-
inu í Gerðubergi. Indíana Rós verður með kynlífsfræðslu, það
verður Hipphopp-danssmiðja og Improv-smiðja, svo eitthvað sé
nefnt,“ segir Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna-
og unglingastarfs Borgarbókasafnsins.
„Það er byrjað að fyllast í sumar smiðjurnar en nóg laust í
aðrar. Við erum spennt að sjá hvernig unga fólkið tekur í þetta.“
Allar upplýsingar um sumarsmiðjurnar er að finna á
www.borgarbokasafn.is. Smiðjurnar eru allar ókeypis.
asdis@mbl.is
Vísindi, dans og borðspil
Börn og unglingar geta lært margt og skemmt sér í
leiðinni í sumarsmiðjum Borgarbókasafnsins.
Borgarbókasafnið býður krökkum á
aldrinum níu til sextán ára að taka þátt
í sumarsmiðjum í allt sumar.
Það verður margt í boði fyrir
ungmenni í sumar en allar
smiðjurnar eru ókeypis.
Krafa um dugandi innflytjendur
til Grímseyjar birtist í Morgun-
blaðinu í byrjun maí fyrir hálfri
öld. Hún kom fram í viðtali við
Alfreð Jónsson, sem þá var odd-
viti í eynni.
„Það er nóg að gera og þar
getur líka öllum sem nenna að
vinna liðið vel,“ sagði Alfreð.
„Það ganga 12 trillur þaðan á
handfæri og vertíðin stendur yfir
frá því um páska og langt fram á
haust. … Í fyrra nam framleiðsla
okkar rúmlega 4.000 pökkum af
fullverkuðum saltfiski og auk
þess söltuðum við í 1.500 tunnur
síldar. Þú sérð að þetta eru ekki
lítil útflutningsverðmæti, þegar
þau koma til skipta 60 íbúa eyj-
arinnar.“
Notaði Alfreð tækifærið til að
skora á blaðamann að hvetja
„unga, duglega sjómenn til að
koma til okkar … Við viljum fá
dugandi innflytjendur.“
Alferð kvaðst ekki aðeins
sinna oddvitastörfum, um
veturinn hefði enginn fengist til
að sinna barnafræðslu í eynni
og hann því tekið það að sér:
„Að vísu er ég lítið vanur
kennslu – nema þá skíðakennslu
frá því í gamla daga heima á
Siglufirði.“
GAMLA FRÉTTIN
Íbúa vantar
í Grímsey
Alfreð Jónsson var oddviti og flugvallarstjóri í Grímsey í 25 ár. Hann var
einnig fréttaritari Morgunblaðsins í Grímsey. Alfreð lést árið 2015.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Guðmundur Franklín Jónsson
forsetaframbjóðandi
Alec Baldwin
bandarískur leikari
Adriano Paroli
ítalskur stjórnmálamaður